Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2012, Side 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2012, Side 26
26 – Sjómannablaðið Víkingur það yrði gert í Svíþjóð. Við tókum einar áttatíu tunnur af saltaðri suðurlandssíld í fragt fyrir Gísla Vilhjálmsson síldar- kaupmann á Akranesi og kom hann með, sem farþegi. Einnig vorum við með 20 pakka af saltaðri löngu, sem við áttum sjálf- ir. Og svo töluvert af gömlum vélavarahlutum, sem strákarnir höfðu safnað saman og seldu í brotajárn. Ég var búinn að vera með undanþágu, sem skipstjóri, frá því að ég byrjaði, vegna þess að ég hafði bara tveggja mánaða siglingatíma, sem stýri- maður og þó að ég hefði verið vélstjóri, þá var það ekki tekið gilt. Þarna um vorið fékk ég fullgilt atvinnuskírteini, svo það var í lagi að fara með bátinn í þessa ferð. Við vorum mjög heppnir með veður alla leið. Komum við í Færeyjum til að taka olíu. Það er ábyggilega fátítt að fá alveg hvítalogn frá Keflavík og til Gautaborgar. Þangað komum við kvöldið 16. júní. Einhver misskilningur var á milli vélaverksmiðjanna og Gísla Johnsen, því þeir tóku það þannig að það ætti að fara glóðar- hausvél í bátinn en ekki díselvél og þeir sem áttu að taka að sér verkið, voru búnir að fá vél á staðinn og voru ekki tilbúnir að taka þetta verk að sér. Svo þeir Gísli og verksmiðjan urðu að fara að leita að nýjum verktaka. Svo kom annað í ljós. Það var innflutningsbann á síld til Svíþjóðar til ákveðins tíma, sem ég man ekki lengur hver var og þurfti Gísli Vill. eins og hann var kallaður, að sækja um konunglegt leyfi til að fá síldinni landað, en langan og nokkrar tunnur af þorskhrognum, seldust strax. Það tók eina sex daga að fá leyfið frá Stokkhólmi. Það stóð á endum, því búið var að finna verktaka til að taka verkið að sér. Þetta voru fyrir- tæki á suðaustur horni Svíþjóðar, í bæ sem heitir Simrishamn, fallegur sumarbær. Nú voru hafðar snarar hendur við að losa farminn úr bátn- um. Ég man að við fengum um 300 kr. sænskar fyrir kílóið af löngunni og 600 kr. fyrir tunnuna af hrogn- unum, en þetta voru iðnaðarhrogn og ekki hátt skrifuð í Svíþjóð. Tuttugu krónur voru borgaðar í fragt af hverri tunnu af síldinni. Gísli Vill. fékk umboðsmann í Gautaborg fyrir okkur, til að sjá um að við fengjum borgað sem okkur bar. Við sem fórum þessa ferð auk mín, voru Árni Þorsteinsson, gamalreyndur skipstjóri, og sigldi hann sumum af blöðrunum heim á sínum tíma, Sigurður Kristjánsson, vélstjóri frá Stöðv- arfirði, jafnaldri minn, góður vélstjóri og sjómaður, Lárus Hörður, bróðir minn, tvítugur og svo Gísli Vill. sem farþegi. Okkur kom saman um að við yrðum að fá kunnugan mann með okkur, þennan síðasta áfanga. Umboðsskrifstofan fékk gamlan fragtskipstjóra til að koma með. Ég man að við fórum frá Gautaborg seinni part dags og stóð karlinn út fyrir allar eyjar. Lét hann mig svo taka við og bað mig að vekja sig, þegar við færum að nálgast Kullin, en það er norðurendi Eyrarsunds, Svíþjóðarmegin. Ég skildi lítið í kortunum, sem sá gamli var með og notaði bara mín gömlu kort frá Stýrimannaskólanum. Þegar karlinn var kominn upp og sá hvaða kort ég hafði siglt eftir, varð hann alveg óður, því hann sagði að ég hefði farið í gegn um tundurdufla svæði, sem ekki væri búið að hreinsa eftir Þjóðverja, frá því í stríðinu. Ég gat þó róað hann með því, að við værum þó komnir í Eyrarsund heilir á húfi. Ferðin gekk vel það sem eftir var. Við fórum í gegn um skipaskurð rétt fyrir sunnan Málmey, sem heitir Falsterbro, og styttum leiðina um marga klukkutíma. Áður en við skildum, lóðsinn og ég, bað hann mig að kaupa ný kort af leiðinni og lofaði ég honum því. Verktakarnir komu strax og tóku á móti okkur. Skipa- smiðurinn var maður á miðjum aldri og með mikla reynslu í bátasmíði, hafði smíðað tvo báta fyrir Íslendinga, Víðir frá Eski- firði, þann fræga bát og Ólaf Magnússon frá Akranesi. Hann gat byrjað strax á sínu verki, en vélsmiðurinn var búinn að missa marga menn í sumarfrí, en hélt samt að verkið yrði búið um miðjan ágúst. Bátasmiðurinn, sem hét Albert Davidson, var jarðbundnari og hélt að báturinn yrði ekki tilbúinn fyrr en um miðjan september. Því var ákveðið eftir símtal við föður minn að ég kæmi heim með mannskapnum og færi með Jón Guð- mundsson á reknet, því það átti ekki að skila honum fyrr en í september lok. Ég fór svo með strákana til Kaupmannahafnar og kom þeim í flug, en fór aftur til Svíþjóðar. Mér fundust lausu endarnir of margir, til dæmis þurfti að taka einn olíutank úr bátnum, til að koma fyrir ljósavélinni. Eins bað ég Davidson að bera farva á botninn á meðan báturinn væri í slipp og við drógum upp hvernig ég vildi að stjórntækjunum yrði komið fyrir í stýrishúsinu og ýmsu smávegis. Ég flaug svo heim viku seinna. Við höfðum svo samband við Gísla Johnsen og fylgdust með ganginum. „Full spit“ Það var lítil rekneta veiði. Við fengum nokkra róðra vestur í jökuldýpi af góðri og feitri síld, sem fór í frystingu í beitu. Svo datt öll veiði niður allsstaðar, svo pabbi lánaði okkur bátinn til að renna fyrir ufsa á handfæri, aðal- lega til að halda körlunum saman. Við þurftum að borga olíu og fæði. Það gekk bara ágætlega, við rótfisk- uðum ufsa í kringum Eldeyjar sker- in og við Geirfugls dranginn, og fengum allt borgað á bryggjunni. Menn voru mjög ánægðir með þetta og ég hélt mannskapnum saman, því þetta voru sömu mennirnir og ætluðu að vera með mér á Sæborg- inni, þegar hún kæmi. Ég fór svo út til Svíþjóðar í gegn um Kaup- mannahöfn fyrstu vikuna í septem- ber og fékk strákana út viku seinna og kom faðir minn með þeim, en þetta var í eina skiptið á ævinni sem hann yfirgaf skerið. Strax og ég kom út sá ég að hlutirnir voru ekki eins og um var samið við vélarframleiðandann, enginn ljósavél var komin í bátinn, svo að ég fékk samband við þá í gegn um skipasmiðinn og á minni bestu skandinavísku spurði ég um ástæðuna. Þá höfðu þeir gleymt að semja við þá þarna suðurfrá um niður- setninguna. Svo að það varð að samkomulagi að Davidson smíðaði undirstöðurnar og ljósavélin kæmi í Gautaborg. Við byrjuðum að skrapa bátinn og mála skrokkinn. Pabbi gamli var með okkur í fjóra eða fimm daga, síðan fylgdi ég hon- um til Kaupmannahafnar. Það var búið að panta mann til að rétta af áttavitann og þegar hann kom var vélin ekki orðin gangfær, svo við urðum að snúa bátnum á spottum á milli bryggja og var það í meira lagi kindugt. Mig minnir að við færum frá Simrishamn þann 16. septem- ber, með ný sjókort, að sjálfsögðu, en í kortabúðinni fræddi af- greiðslumaðurinn mig á því að öll tundurdufl við strendur Svíþjóðar, hefðu verið fjarlægð fyrstu fimm árin eftir stríðið. Við vorum búnir að fara í tvær reynslu ferðir og látið laga ýmis- legt. Það var maður frá verksmiðjunum með og kom líka með okkur til Gautaborgar, enda voru þetta svo nýjar vélar frá þeim að það þurfti að fylgjast með ýmsu. Strax og ég setti stefnuna með fram sænsku ströndinni, sá ég að áttavitinn var kolvitlaus, munaði einu og hálfu striki. Það voru baujur, sem siglt var eftir, Sæfari KE 53.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.