Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2012, Side 48
48 – Sjómannablaðið Víkingur
Eins og lesendur Víkings vita hefur
blaðið staðið fyrir ljósmyndakeppni
meðal sjómanna undanfarin ár og hafa
15 bestu myndirnar farið áfram í sam-
norræna ljósmyndakeppni sjómanna.
Að þessu sinni stóð finnska sjómanna-
þjónustan (MEPA) fyrir keppninni sem
fór fram 10. febrúar sl. í húsakynnum
þeirra við ferjuhöfnina í miðborg Hels-
inki. Alls voru 75 ljósmyndir lagðar
fram og voru dómurunum, Torsti Laine
og Tatu Korhonen, mikill vandi á hönd-
um.
Eftir tveggja tíma yfirsetu dómaranna
lágu niðurstöður keppninnar fyrir. Í
fyrsta sæti varð mynd Svíans Jörgen
Språng, Perustefni, en Jörgen hefur nú
unnið fyrsta sæti í keppninni þriðja árið
í röð. Hlaut hann að launum stafræna
myndavél að verðmæti 5.000 dkr. sem
Walport Scandinavia gaf. Í öðru sæti
varð mynd Sigurbjörns Ragnarssonar
trillusjómanns af flaki Hrafns Svein-
bjarnarsonar og var ekki laust við að
gleði hafi ríkt í herbúðum okkar Vík-
ingsmanna að ná vinningi heim en engin
íslensk mynd vann til verðlauna í keppn-
inni árið á undan. Hlýtur hann að laun-
um myndavél að verðmæti 5.000 nkr.
sem norska Siglingamálastofnunin gaf.
Þriðja sætið hlaut Finninn Aku Kaik-
konen fyrir mynd sína brottför frá Græn-
landi og eru verðlaunin ljósmynda-
búnaður fyrir 5.000 skr. sem Shipping
Gazette í Svíþjóð gaf. Fjórða sætið kom
í hlut landa hans Markus Raitio fyrir
myndina Vetrarhörkur í Kílarskurði og
að launum fær hann 350€ sem Eimskip
gaf. Fimmta sæti kom svo í hlut Norð-
mannsins Øyvind Larsen fyrir mynd
hans Þjónustuskip í ís en hann hlaut að
launum 300€ sem Finnlines gaf.
Dómararnir völdu síðan tvær myndir
sem fengu heiðurstilnefningu en það
voru myndir Dananna Benedikte Posthu-
mus og Eli Jacupsson. Dómararnir áttu
erfitt val og og auk þess að tilnefna tvær
myndir í heiðurssæti þá ákváðu þeir
einnig að raða í sæti 8 til 12. Í áttunda
sætinu lenti íslenska vinningsmyndin
sem tekin var af Eyþóri Björgvinssyni.
Í allt tóku 204 sjómenn þátt í keppn-
unum á öllum Norðurlöndunum og var
framlag þeirra 1.268 ljósmyndir.
Við óskum öllum vinningshöfum til
hamingju með glæstan árangur og jafn-
fram vill Sjómannablaðið Víkingur færa
Eimskip sérstakt þakklæti fyrir að gefa
verðlaun í Norðurlandakeppni sjómanna.
Hér að neðan eru tenglar á sjómanna-
þjónusturnar í Finnlandi og Danmörku
sem eru samstarfsaðilar Víkingsins í
keppninni. Og athugið, fleiri myndir úr
keppninni verða birtar í næsta blaði.
http://www.hfv.dk/nordisk-fotokonkur-
rence-2011.2724.aspx
http://mepa.yhdistysavain.fi/mepa/kulttu-
uri/photo-contest-2011/
Aðstandendur hinnar Norrænu ljósmyndakeppni sjó-
manna, talið frá vinstri: Jimmy Eriksson, Jesper Larsen,
Sirpa Kittilä, Line Myklebust og Hilmar okkar Snorra-
son.
Fyrstu verðlaun. Jörgen Språng, Svíþjóð.