Fréttablaðið - 15.10.2022, Page 40

Fréttablaðið - 15.10.2022, Page 40
Allar fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur. Umsóknarfrestur er til og með 25. október nk. Endurskoðunarfyrirtæki vill ráða öflugan löggiltan endurskoðanda eða reynslumikinn viðskiptafræðing sem hefur starfsreynslu hjá endurskoðunarfyrirtæki. Viðkomandi þarf að vera glöggur, þekkja og hafa reynslu til að geta svarað fyrir endurskoðuð verkefni, stór sem smá. Leitað er að aðila sem getur unnið sjálfstætt og hefur mikinn metnað fyrir starfi sínu. Fyrirtækið býður fjölskylduvænan vinnustað, sjálfstæði og sveigjanleika í starfi, vinnutíma í dagvinnu og laun samkvæmt samkomulagi. Ekki spillir létt skap og ánægja af mannlegum samskiptum. Freistar starf í endurskoðun? hagvangur.is Sótt er um starfið á hagvangur.is Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi fyrir starfið. Umsóknarfrestur er til og með 30. október nk. Nánari upplýsingar veita Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is, og Hallveig Hafstað Haraldsdóttir, hallveig@hagvangur.is, ráðgjafar hjá Hagvangi. Bókari Arnarlax ehf. óskar eftir að ráða vanan bókara í fjölbreytt og krefjandi starf á fjármálasviði. Helstu verkefni og ábyrgð • Almenn bókhaldsstörf • Þátttaka í afstemmingu lánardrottna og bankareikninga, virðisaukaskattskil og önnur afstemming fjárhagsbókhalds • Þátttaka í mánaðarlegu uppgjöri Arnarlax og tengdra félaga • Upplýsingagjöf og skýrslugerð innanhúss • Þátttaka í innra eftirliti fyrirtækisins • Önnur tengd verkefni Menntunar- og hæfniskröfur • Mikil reynsla og þekking á bókhaldi, afstemmingu og uppgjörsvinnu • Reynsla af bókhaldskerfum. Reynsla og/eða þekking á Navision er kostur • Góð Excel kunnátta • Góð þjónustulund og samskiptahæfni • Góð íslensku- og enskukunnátta • Árangursmiðað hugarfar og skipulagshæfni Arnarlax býður • Spennandi vinnuumhverfi í ört vaxandi atvinnugrein • Flutningsstyrk ef við á • Góð tækifæri til að þróast, bæði persónulega og faglega • Fjölbreytt verkefni, námskeið og þjálfun • Stuðning til náms á því sviði sem starfið tekur til • Samkeppnishæf laun hagvangur.is Meginstarfsstöð getur verið hvort sem er á aðalskrifstofu okkar á Bíldudal eða í Reykjavík. Arnarlax er leiðandi laxeldisfyrirtæki á Íslandi með aðalstarfsemi á Vestfjörðum og með höfuðstöðvar á Bíldudal. Fyrirtækið er að fullu lóðrétt samþætt með alla þætti virðiskeðjunnar á sinni hendi, þar með talið seiðaframleiðslu, eldi, vinnslu og sölu. Arnarlax teymið samanstendur nú af rúmlega 180 manns á öllum stigum virðiskeðjunnar. Við erum með starfsemi í 5 mismunandi sveitarfélögum með starfsstöðvar á Bíldudal, Patreksfirði og í Reykjavík og með seiðaframleiðslu á Tálknafirði, Þorlákshöfn og Hallkelshólum. Arnarlax framleiddi 11.500 tonn af laxi árið 2021 og gerir ráð fyrir miklum vexti á komandi árum. Arnarlax er jafnlaunavottað fyrirtæki. Arnarlax hvetur alla áhugasama einstaklinga til að sækja um starfið, óháð kyni. Sótt er um starfið á hagvangur.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.