Fréttablaðið - 15.10.2022, Page 41

Fréttablaðið - 15.10.2022, Page 41
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is. Umsóknarfrestur er til og með 30. október nk. Upplýsingar veita Elín Dögg Ómarsdóttir, elin@hagvangur.is, og Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is. Með umsókn skal fylgja kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið. Á Sólheimum í Grímsnesi búa að jafnaði yfir 100 manns og eru starfsmenn Sólheima um 70 talsins. Hlutverk Sólheima er að skapa sjálfbært samfélag, byggt á kristnum gildum og hugmyndum mannspeki, sem veitir íbúum tækifæri til að vaxa, þroskast og vera virkir þátt- takendur. Starfsmenn Sólheima og aðstaða er sniðin að því að þjóna fólki með fötlun sem býr yfir starfsgetu. Gildi Sólheima eru kærleikur, fagmennska, sköpunargleði og virðing. Forstöðumaður Sólheimar auglýsa eftir drífandi einstaklingi til að taka að sér starf forstöðumanns Sesseljuhúss og tveggja gistiheimila Sólheima. Starfið felur í sér ábyrgð og umsjón með daglegum rekstri. Forstöðumaður er leiðandi og mótandi í sjálfbærni og umhverfisvernd innan Sólheima. Hann hefur m.a. umsjón með móttöku gesta, fræðslu um Sólheima og sjálfboðaliðum sem koma til starfa á Sólheimum. Auk þess hefur hann umsjón með gistiþjónustu og starfsemi sem henni tengist. Hagstætt og gott leiguhúsnæði er í boði en búseta á staðnum er æskileg. Helstu verkefni er varða Sesseljuhús og sjálfboðaliða • Daglegur rekstur og umsjón • Framkvæmd samstarfssamninga Sesseljuhúss • Móttaka gesta og kynning á sögu og starfsemi Sólheima, umhverfissetri og sjálfbærni • Stuðla að frekari sjálfbærni og umhverfisvernd innan Sólheima og efla vitund íbúa með kynningum og fræðslu • Ábyrgð á ráðstefnuhaldi, sýningum og fræðslu sem tengist sjálfbærni og öðru sem samræmist starfseminni • Öflun styrkja • Samskipti og samstarf við fyrirtæki, stofnanir, hópa sem tengjast starfseminni og samfélög sem falla undir ECO villages eins og Sólheimar • Stuðla að komu hópa og efla samstarf við erlenda háskóla á sviði sjálfbærni • Umsjón með sjálfboðaliðum og aðstöðu þeirra Helstu verkefni er varða Gistiheimilin Veghús og Brekkukot • Ábyrgð á daglegum rekstri gistiheimilanna • Dagleg umsjón með rekstri gistiþjónustunnar, s.s. bókanir, umsjón með bókunarvefjum, gestamóttaka, reikningagerð, þjónusta við gesti, skipulag, tilboðsgerð í gistingu og o.fl. • Stuðla að markaðssetningu á gistiheimilum, Vigdísarhúsi og Sesseljuhúsi í samráði við framkvæmdastjóra og stjórn • Eftirlit með þrifum á gistiheimilum og tryggja að verkferlum sé fylgt Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, umhverfisfræði kostur • Þekking og brennandi áhugi á umhverfisvernd og sjálfbærni • Þekking og reynsla af rekstri gistiheimila er æskileg • Reynsla í kynningar- og fræðslumálum • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum • Frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná árangri • Lausnamiðuð hugsun • Mannkærleikur • Góð færni í ræðu og riti á íslensku og ensku hagvangur.is Sótt er um starfið á hagvangur.is Þátttakandi í íslensku atvinnulífi í meira en 50 ár hagvangur.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.