Fréttablaðið - 15.10.2022, Page 47

Fréttablaðið - 15.10.2022, Page 47
VIÐ BYGGJUM UPP SAMFÉLÖG Verkís er öflugt og framsækið ráðgjafarfyrirtæki sem býður fyrsta flokks þjónustu á öllum sviðum verkfræði. Yfir 350 manns starfa hjá fyrirtækinu að fjölbreyttum verkefnum á Íslandi og erlendis. Verkís er með útibú í öllum landshlutum. Það er metnaður stofunnar að veita staðbundna þjónustu sem víðast á landinu með stuðningi annarra sérfræðinga Verkís. Nánari upplýsingar veita Ari Guðmundsson, sviðsstjóri Starfsstöðvasviðs, arg@verkis.is Áslaug Ósk Alfreðsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum, aoa@verkis.is Umsóknarfrestur er til og með 31. október 2022. Sótt er um á umsokn.verkis.is Útibússtjóri Verkís á Austurlandi Við leitum að verkfræðingi, tæknifræðingi eða byggingafræðingi í stöðu útibússtjóra starfsstöðva Verkís á Austurlandi með aðsetur á Egilsstöðum eða Reyðarfirði. Viðkomandi einstaklingur þarf að hafa reynslu af verkefnastjórnun og búa yfir góðum stjórnunar-, samskipta- og skipulagshæfileikum. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf fyrir metnaðarfullan einstakling. Mikilvægt er að umsækjandi hafi gott vald á íslensku og ensku. Verkefni og ábyrgð Útibússtjóri ber ábyrgð á almennum rekstri starfsstöðva Verkís á Egilsstöðum og Reyðarfirði. Verkefnin eru fjölbreytt og felast m.a. í verkefnaöflun, tilboðs- og áætlanagerð, markaðsmálum, verkefnastjórnun og verkefnavinnu. Þá fer útibússtjóri með mannaforráð viðkomandi starfsstöðva. Starfið heyrir undir Starfsstöðvasvið og er næsti yfirmaður sviðsstjóri þess sviðs. RÁÐGJÖF RÁÐNINGAR RANNSÓKNIR Að gera betur í dag en í gær er drifkraftur nýrra hugsana og betri árangurs. Starfsmenn eru lykill að árangri allra fyrirtækja. Rannsóknir auka þekkingu og gera ákvarðanir markvissari Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.