Fréttablaðið - 15.10.2022, Page 54

Fréttablaðið - 15.10.2022, Page 54
Byggingafulltrúi Hlutverk byggingarfulltrúa er að sjá til þess að byggingarmál í sveitarfélaginu séu í samræmi við ákvæði laga um mannvirki nr. 160/2010 og reglugerð þeim tengdum. Byggingarfulltrúi vinnur í nánu samstarfi við skipulagsfulltrúa og verkefnastjóra framkvæmda. Helstu verkefni: • að yfirfara hönnunargögn og önnur umsóknargögn tryggja að þau séu í samræmi við kröfur í lögum, reglugerðum og skipulagi. • að gefa út byggingarleyfi skv. 1. og 2. mgr. 9. gr laga um mannvirki. • að hafa eftirlit með byggingarleyfisskyldum framkvæmdum á byggingartíma • að taka út framkvæmdir á framkvæmdatíma og skrá byggingarstig mannvirkja • að hafa umsjón með fasteignaskráningu, lóðaskrá og gerð lóðaleigusamninga. • að eiga samskipti og samstarf við aðila utan og innan stjórnsýslunnar sem sinna verkefnum á sviði byggingarmála. • að vera íbúum, framkvæmdaaðilum og sveitarstjórn til ráðgjafar um byggingarmál. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun á sviði byggingarmála skv. 8. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. • Löggilding sem hönnuður skv. 25. gr. mannvirkjalaga. • Þekking og reynsla á sviði byggingarmála. • Þekking og reynsla af úttektum og mælingum • Þekking á lögum um mannvirki og byggingarreglugerð. • Þekking á og reynsla af opinberri stjórnsýslu. • Hæfni í mannlegum samskiptum, góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar. • Góð íslenskukunnátta og hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti. • Góð almenn tölvukunnátta. Verkefnastjóri framkvæmda Verkefnastjóri framkvæmda sér um verkefnastjórn vegna nýframkvæmda og viðhaldsfram- kvæmda á vegum sveitarfélagsins, vegna fasteigna sem falla undir Eignasjóð. Verkefnastjóri vinnur í nánu samráði við sveitarstjóra, byggingafulltrúa og skipulagsfulltrúa. Helstu verkefni: • Hefur umsjón með framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins. • Gerir áætlanir um og undirbýr framkvæmdir og viðhald á vegum sveitarfélagsins. • Undirbýr útboð og verðfyrirspurnir vegna framkvæmda og viðhaldsverkefna. • Hefur eftirlit og umsjón með framkvæmdum og viðhaldi á vegum sveitarfélagsins. • Kemur að gerð fjárhagsáætlunar eignarsjóðs og fasteigna sveitarfélagsins. • Undirbýr umsóknir um leyfi og/eða styrki vegna framkvæmda. Menntunar- og hæfniskröfur: • Menntun á sviði bygginga-, verk- eða tæknifræði, iðnmenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi. • Góð þekking á áætlanagerð og undirbúningi framkvæmda. • Reynsla af verkefnastjórnun. • Góð almenn tölvukunnátta. • Hæfni í mannlegum samskiptum, þjónustulund og lausnamiðuð hugsun. • Nákvæmni, samviskusemi og skipulagshæfileikar. Störf í Þingeyjarsveit Þingeyjarsveit er nýtt sveitarfélag sem varð til við sameiningu Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar og tók til starfa um mitt ár 2022. Sveitarfélagið er stærsta sveitarfélag landsins og nær yfir 12.021 km2. í því eru margar af stórfenglegustu perlum íslenskrar náttúru. Þar er fallegt landslag, fjölbreytt náttúrufar, fjölskrúðugt fuglalíf, fiskur í vötnum og orka í iðrum jarðar. Íbúar sveitarfélagsins eru 1.350. Þar af búa um 345 í þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins að Laugum og í Reykjahlíð. Meginstoðir atvinnulífsins eru landbúnaður og ferðaþjónusta. Með umsóknum um störfin skal fylgja greinargóð starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og færð rök fyrir hæfni umsækjanda í starfið. Umsóknarfrestur er til og með 31. október 2022. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um störfin veitir Jón Hrói Finnsson, sveitarstjóri í síma 464 3328 eða í tölvupósti á jonhroi@thingeyjarsveit.is. Umsóknir skal senda á umsokn@thingeyjarsveit.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu. Verkstjóri / Staðarstjóri Hörkuduglegur og reynslumikill verk-/staðarstjóri með daglega verkstjórnun og rekstur á bygging- arsvæðum. Um er að ræða skemmtilegt, krefjandi og fjölbreytt starf þar sem öryggi, gæði og afköst skipta meginmáli. HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ • Rekstur byggingarsvæðis með öllu sem því tilheyrir • Fagleg yfirumsjón með framkvæmdum • Undirbúningur og uppsetning verka • Úttekt á verkum undirverktaka • Stjórnun á verkstað • Umsjón með dagsskýrslum og verkskýrslum • Mælingar á verkstað • Geta gripið til verka MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR • Meistararéttindi í húsasmíði eru áskilin • Reynsla vegur þungt • Góð færni í samskiptum • Drifkraftur Viðskiptavit ehf. er framsækið fyrirtæki í byggingariðnaði sem sinnir verktöku ásamt alhliða verkefnastjórnun og ráðgjöf. Viðskiptavit hefur innan sinna raða reynslumikið og hæfileikaríkt starfsfólk á sviði byggingarstarfsemi og verkefnastjórnunar. Tæknimaður Viðskiptavit ehf býður áhugavert framtíðarstarf og spennandi verkefnastöðu fyrir tæknimann sem hefur reynslu af byggingarverkefnum. Viðkomandi mun vinna náið með eigendum að fjölbreyttum verkefnum. HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ • Sjá um magntökur og uppgjörsmál • Undirbúa útboð • Sinna útboðs-/tilboðsgerð • Undirbúningur og utanumhald verkefna ásamt gerð áætlana og samninga • Samskipti við opinbera aðila og samstarfsaðila MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR • Verk- eða tæknifræðimenntun • Stundvísi, sjálfstæði og vinnusemi • Árangursdrifin og lausnamiðuð nálgun • Samskiptafærni, frumkvæði og framúrskarandi þjónustulund Kostnaðar- verkfræðingur Vegna góðrar og ört vaxandi verkefnastöðu býður Viðskiptavit ehf áhugavert framtíðarstarf fyrir kostnaðarverkfræðing sem hefur haldbæra reynslu af kostnaðarstýringu byggingarverkefna. HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ • Eftirfylgni og greining á kostnaði í verkefnum félagsins • Eftirlit og eftirfylgni á innkaupakostnaði • Gerð og eftirfylgni verk- og kostnaðaráætlana • Uppgjör á verkum félagsins • Samskipti við opinbera- og samstarfsaðila • Gerð verksamninga við verkkaupa, birgja og undirverktaka • Tímastjórnun í MS Project MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR • Tækni- eða verkfræðimenntun og marktæk reynsla við rekstur og fjárhagsstjórnun • Góð tölvukunnátta, reynsla af notkun á MS Project, DK og Ajour æskileg • Stundvísi, sjálfstæði og vinnusemi • Árangursdrifin og lausnamiðuð nálgun • Samskiptafærni, frumkvæði og framúrskarandi þjónustulund Verkefnastjóri Vegna góðrar og vaxandi verkefnastöðu býður Viðskiptavit ehf áhugavert framtíðarstarf fyrir verkefnastjóra sem hefur stýrt byggingar- verkefnum og unnið á verkstað. HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ • Stjórnun og umsjón verkefna • Stjórn og eftirfylgni innkaupa • Gerð og eftirfylgni verk- og kostnaðaráætlana • Reikningagerð og uppgjör verka • Samskipti við opinbera- og samstarfsaðila • Gæðaeftirlit í Ajour • Timastjórnun í MS Project MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR • Iðn-/tækni-/verkfræðimenntun og marktæk reynsla á verkstað • Góð tölvukunnátta, reynsla af notkun á Auto- Cad, Ms Project og Ajour æskileg • Stundvísi, sjálfstæði og vinnusemi • Árangursdrifin og lausnamiðuð nálgun • Samskiptafærni, frumkvæði og framúrskarandi þjónustulund Umsóknarfrestur er til og með 23. október 2022. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað. Fólk af öllum kynjum og uppruna er hvatt til að sækja um. Umsóknir skulu berast til baldur@vvit.is með ferilskrá og nöfnum umsagnaraðila. Vegna góðrar og ört vaxandi verkefnastöðu óskar Viðskiptavit ehf eftir starfsfólki til eftirfarandi starfa: 18 ATVINNUBLAÐIÐ 15. október 2022 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.