Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.10.2022, Qupperneq 74

Fréttablaðið - 15.10.2022, Qupperneq 74
„Ég byrja oft bara á því að fara yfir handritið. Hvað stendur þar, hvað segir mín persóna og hvað er sagt um hana,“ segir hún, en með þessu leggur hún drög að uppkasti sem síðar meir þróast og mótast. „Ég vil átta mig á stóru myndinni og reyna að átta mig á því sem höf- undurinn er að segja. Þá líður mér eins og ég sé að teikna útlínurnar, en svo fer ég inn og bæti við litum. Þá byrjar yfirleitt persónan að lifna við og hreyfa sig. Smám saman verður þetta svo að lifandi manneskju,“ segir hún og bætir við: „En rauði þráðurinn er sá að ég er alltaf að leita að mennskunni. Sama hversu ógeðfelld persónan er, eða ólík mér, þá verð ég að finna innra með mér skilning á henni. Ég verð að geta samsamað mig með henni.“ Sumarljós og svo kemur nóttin Svandís segir að samstarfið við Elfar Aðalsteinsson, leikstjóra myndar- innar hafi verið frábært og hún hafi fengið mikið pláss til að þróa sína eigin persónu. „Ég leik hana Þuríði. En bókin er rosalega margar sögur. Við fáum að vera fluga á vegg og fylgjast með fólkinu í þorpinu. Persónan mín er svo ein sagan. Hún er algjörlega yndisleg kona, afskaplega góð. Hún er hjúkrunarfræðingur þorpsins, hjálpsöm og í raun algjör kær- leiksbjörn sem hefur afskaplega mikla ást að gefa en hefur ekki enn fundið ástina. En hún byrjar síðan að banka upp á úr ólíklegustu átt,“ segir hún. „Elvar er algjör listamaður sem unun er að vinna með. Hann nær að fanga Kalman í þessari mynd og ljóðrænan er í þorpsröddinni sem Vigdís Gríms talar fyrir og hún gerir það alveg ótrúlega vel enda er hún algjör töfrakona. Hann nær að halda þessari einlægni og berskjöldun í persónunum. Það eru engir stælar þar sem hann treystir persónunum.“ Alltaf verið skapandi Svandís Dóra segir að hún hafi allt frá því hún var barn verið skapandi manneskja og snemma haft til- hneigingu til þess að búa til eigin veröld, þrátt fyrir að hún kæmi ekki sjálf úr leikarafjölskyldu. „Ég gat setið heilu stundunum ein með sjálfri mér þar sem ég ímynd- aði mér heilu heimana. En ég kem meira úr svona íþróttabakgrunni og hestamennsku og það var enginn sem ég þekkti sem var leikari. En ég hef alltaf verið mjög skapandi,“ segir hún. Svandís Dóra ólst upp í Kópa- vogi en var þó ávallt með annan fótinn á landsbyggðinni. „Ég segi yfirleitt að ég sé svona til helminga Kópavogsmær og svo komin úr Gnúpverjahreppi. Sem reyndar heitir Skeiða- og Gnúp- verjahreppur í dag. En þar erum við með litla jörð og hús. Þannig að ég er mikil sveitamanneskja.“ Leiklistin kallar Svandís segir að hún hafi snemma vitað að hún vildi leggja fyrir sig leiklistina en hafi þó ekki tekið það hlutskipti fyllilega í sátt fyrr en síðar. Hún sótti nám í Versló vegna Nemó en endaði þó ekki á því að fara í prufur fyrr en á síðasta ári sínu og komst þá strax inn. „Þar fæ ég frábært hlutverk, en sýningunni sem ég tók þátt í var leikstýrt af Jóhanni G. Jóhannssyni. Að endingu sagði hann hreinlega við mig: Svandís, þú átt bara að vera í þessu, hvað ertu að pæla?“ Eftir menntaskólann tók við nám í Listaháskólanum þar sem örlögin börðu aftur að dyrum. „Við maðurinn minn kynnumst í nemendaleikhúsinu í Listaháskól- anum. Hann er leikskáld og var að skrifa eitt af útskriftarverkefnunum og við kynnumst þarna en vorum fyrst bara vinir,“ segir hún, en Svan- dís Dóra er gift Sigtryggi Magna- syni, leikskáldi og rithöfundi. Blóðugt bónorð í Berlín Það var í enda námsins sem þau náðu saman, en Svandís segir sam- bandið hafa þróast hratt eftir að hann bað hana að vera í verki eftir sjálfan sig. „Þetta gerðist í raun allt rosalega hratt, þar sem við urðum ástfangin þarna í kringum mína útskrift.“ Tveimur árum seinna í Berlín hafi þau svo ætlað að hitta vini sem voru þar við sýningar á dansverki. „Þetta var sýningin eftir Ernu Ómars og við ætluðum bara að hitta þarna vini, eða að minnsta kosti var það þann- ig sem ég hélt að þetta yrði. Þegar við ætluðum baksviðs eftir á komu dansarar á móti og okkur og sögðu: „Hey, förum eitthvað að fíflast,“ og þá byrjuðum við smá svona spuna,“ eitthvað sem Svandís Dóra segir að sé henni eðlislægt enda oft stutt í spunann hjá leiklistarfólki. „Fyrir aftan okkur var altari sem var allt í blóði með útlimum hang- andi á sér og dansararnir sjálfir voru útataðir í blóði. Svo sat ég þarna og dansararnir mættu með fötu fulla af blóði sem Sigtryggur teygði sig ofan í og náði í hringabox, og ég hugsaði: „Vá var þetta partur af þessu öllu?“ Hann spurði mig þá hvort ég vildi giftast honum – en ég hélt að það væri bara partur af spunanum. Hann spurði mig þá aftur og ég hélt bara áfram að hlæja. Það var ekki fyrr en hann var búinn að spyrja þrisvar eða fjórum sinnum sem ég áttaði mig. Hann kraup fyrir framan mig skjálfandi og sagði „Svandís, ég er ekki að grínast, viltu giftast mér.“ Svandís Dóra og Sigtryggur hafa nú verið saman í 12 ár og eiga saman 4 börn. Úlf Egil þriggja ára og svo á Sigtryggur þrjú börn úr fyrra sam- bandi, þau Þóri Bríeti og Rebekku. Jafnvíg á leikhús og kvikmyndir Svandís Dóra hefur nú verið reglu- legur gestur á fjölum leikhúsa lands- ins en hefur í auknum mæli leikið í kvikmyndum og sjónvarpsefni á síðustu árum, þar á meðal í Ófærð, Fyrir framan annað fólk og Harry og Heimi. Sjálf skilgreinir hún sig sem listakonu. „Ég myndi segja að ég sé sjálfstætt starfandi listakona. Ég er vissulega lærð leikkona en mér þykir lista- kona líka svo fallegt orð. Af því það er svona aðeins opnara.“ Hún segir það geta verið krefjandi að vera leikkona á Íslandi í dag. „En ég elska það að vera leikkona. Þetta er hark en það er líka hluti af lífinu. Ég fór á samning í Þjóðleikhúsinu sirka ári eftir að ég útskrifaðist og hef alltaf verið þar í einhverju formi þangað til ég flutti út til Berl- ínar 2016. Ég mun svo stíga aftur á svið Þjóðleikhússins eftir áramót í verkinu Til hamingju með að vera mannleg.“ Hennar næsta verkefni er svo þættir sem eru í tökum núna og munu bera nafnið Afturelding og verða sýndir í Ríkissjónvarpinu næstu páska. Þar leikur hún á móti Ingvari E. Sigurðssyni en þættirnir voru skrifaðir af Dóra DNA og Haf- steini Gunnari Sigurðssyni. n Rauði þráðurinn er sá að ég er alltaf að leita að mennskunni. Sama hversu ógeðfelld persónan er, eða ólík mér, þá verð ég að geta samsamað mig með henni. Svandís Dóra Einarsdóttir Leitar að mennskunni og einlægninni Svandís Dóra Einarsdóttir leikkona segir rauða þráðinn í nálgun sinni að hlutverkum vera að finna mennskuna í persónunni, en hún fer með hlutverk í nýrri mynd byggðri á skáldsögu Jóns Kalmans, Sumarljós og svo kemur nóttin. ragnarjon@frettabladid.is Maður safn- ar í bak- p o k a . Í hann setur maður alls kyns tól og tæki sem manni berast í gegnum nám og reynslu annars staðar. Þú til dæmis ferð í skóla og lærir alls konar tækni, en svo á endanum er það undir þér komið hvað hentar þér,“ segir Svandís Dóra, þegar blaðamaður biður hana að lýsa því hvernig hún nálgast hlutverk sín. Ragnar Jón Hrólfsson ragnarjon @frettabladid.is Svandís Dóra Einarsdóttir, leikkona. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTONBRINK 42 Helgin 15. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.