Andvari - 01.01.2016, Qupperneq 19
ANDVARI
ÓLAFUR BJÖRNSSON
17
ust til Reykjavíkur, fór Ásthildur með þeim í bæinn, en Ólafur í eitt
ár til afa síns á Auðkúlu.12 Árið 1921 sameinaðist þó fjölskyldan á
ný, er séra Birni var veitt Auðkúla eftir föður sinn, og fluttist hann
þá þangað frá Bergstöðum. Bjuggu foreldrar hans og börn þar með
honum. Séra Stefán, faðir hans, hafði reist stórt steinhús á Áuðkúlu,
og sást þaðan vítt um sveitir.13 Séra Björn var samvinnumaður og
studdi Framsóknarflokkinn. Séra Stefán hallaðist hins vegar að
Ihaldsflokknum og var aðdáandi Jóns Þorlákssonar, verkfræðings og
forsætisráðherra. Var Ólafur Björnsson mjög hændur að afa sínum.14
Prestssonurinn á Auðkúlu, Ólafur Björnsson, var bráðger, snemma
læs, gat sex ára þulið utanbókar Skúlaskeið eftir Grím Thomsen og
gerði það stundum fyrir gesti.15 „Ég get ekki sagt, að ég hafi verið
mjög hneigður til búverka, vann að vísu öll venjuleg störf, er til féllu,
en fann það glögglega, þegar ég var í tvo mánuði í farskóla vetur-
inn 1924-1925, að lærdómurinn átti best við mig,“ sagði Ólafur síðar.
„Einkum hafði ég gaman af reikningi, en stærðfræði hefir jafnan verið
eftirlætisnámsgrein mín.“16 Kennari Ólafs þennan stutta tíma, Bjarni
Jónasson, kennari og fræðimaður frá Þórormstungu í Vatnsdal, hafði
mikil áhrif á hann.17 Ólafur undirbjó sig undir nám hjá föður sínum
og settist haustið 1927 í 2. bekk Menntaskólans á Akureyri, þar sem
skólabróðir séra Björns var skólameistari, Sigurður Guðmundsson.
Bjó Ólafur í heimavist skólans, en þar var aðbúnaður heldur lakur,
enda fjárhagur nemenda almennt bágborinn. Þótt Ólafur væri af grón-
um prestaættum, vöknuðu með honum efasemdir í trúmálum í nátt-
úrufræðitímum hjá Pálma Hannessyni, síðar rektor Menntaskólans
í Reykjavík. Þá kynntist hann skýringum raunvísindanna á ýmsum
fyrirbærum og kastaði trúnni á framhaldslíf, sem hafði verið honum
huggun eftir móðurmissinn.18
Ölafur Björnsson lauk gagnfræðaprófi frá Menntaskólanum á
Akureyri vorið 1929 með hæstu einkunn allra nemenda, 7,29 á 0rsted-
kvarða, þar sem hámarkið var 8. Næsthæstur varð Steingrímur J.
Þorsteinsson, síðar norrænufræðingur, með 7,15.19 Ólafi varð minnis-
stæð slitaræða Sigurðar skólameistara þetta vor. Hún var hörð gagn-
rýni á þá Adam Smith og Arnljót Ólafsson, sem skrifað hafði fyrsta
hagfræðiritið á íslensku, Auðfrœði. Taldi Sigurður þá lofsyngja sjálfs-
elsku, sem væri alls ekki gangráður flestra manna. Tók hann dæmi af
móðurást. „Halda þeir, að móðir velti því lengi fyrir sér, áður en hún
hefur hjúkrun á sjúklingnum smáa, hvort hún græði á slíkri vöku og