Andvari - 01.01.2016, Blaðsíða 25
ANDVARI
ÓLAFUR BJÖRNSSON
23
Hagfrœðingur og áhugamaður um stjórnmál: 1938-1944
Þegar Ólafur Björnsson sneri heim til Islands sumarið 1938, sat að völd-
um minnihlutastjórn Framsóknarflokksins undir forsæti Hermanns
Jónassonar, en Alþýðuflokkurinn hafði gengið úr stjórninni þá um
vorið. Þjóðin var fátæk, verg landsframleiðsla á mann miklu minni en
í Danmörku, erfiðleikar í sjávarútvegi og ójafnvægi í hagkerfinu, sem
reynt var að leysa með höftum. Fyrstu mánuðina eftir heimkomuna
vann Ólafur í endurskoðunardeild Landsbankans, en varð síðan að-
stoðarmaður og síðar fulltrúi á Hagstofunni, til 1942. Hvort tveggja
var, að Ólafur hafði tekið mjög gott próf í Kaupmannahöfn og var
nákvæmur og samviskusamur starfsmaður, en ekki spillti fyrir, að
Þorsteinn Þorsteinsson hagstofustjóri hafði verið bekkjarbróðir séra
Björns Stefánssonar, föður Ólafs, í menntaskóla. Urðu þeir Ólafur
og Þorsteinn góðir vinir, og kom Ólafur oft á heimili Þorsteins.46
A útmánuðum 1939 hóf Ólafur einnig stundakennslu í hagfræði í
Viðskiptaháskólanum í Reykjavík, sem stofnaður hafði verið haustið
áður. Var skólinn í upphafi einkum ætlaður þeim, sem hugðust starfa
á sviði utanríkisviðskipta, og veitti Steinþór Sigurðsson, kennari í
stærðfræði og eðlisfræði í Menntaskólanum í Reykjavík, honum for-
stöðu. Voru í fyrsta árgangnum 10 nemendur, og var lögð áhersla á
málanám. Kennsla fór fyrsta árið fram í íþöku, húsi Menntaskólans
í Reykjavík.47 Ólafur varð þó ekki fyrsti fasti kennarinn í skólanum.
Sumarið 1939 hafði Gylfi Þ. Gíslason verið ráðinn stundakennari í
rekstrarhagfræði eftir próf í þeirri grein að loknu þriggja ára námi í
Frankfurt-háskóla í Þýskalandi. Kona Gylfa, Guðrún Vilmundardóttir,
var dóttir Kristínar, móðursystur Ólafs. Veturinn 1939-1940 fór
kennsla í Viðskiptaháskólanum fram í húsi atvinnudeildar Háskóla
Islands, en veturinn 1940-1941 var hún haldin í aðalhúsi Háskólans.
Gylfi var skipaður dósent í Viðskiptaháskólanum 1940, en Ólafur var
áfram stundakennari. Vorið 1941 var Viðskiptaháskólinn með lögum
sameinaður lagadeild Háskóla Islands, og voru fyrstu viðskiptafræð-
ingarnir með cand. oecon. próf brautskráðir frá Háskólanum vorið
1941.
Vorið 1939 myndaði Hermann Jónasson samstjórn Framsóknarflokks,
Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks, sem kölluð var þjóðstjórnin. Felldi
hún gengið til að auðvelda sjávarútveginum leikinn og reyndi að búa