Andvari - 01.01.2016, Page 33
ANDVARl
ÓLAFUR BJÖRNSSON
31
Hannibal Valdimarsson var nánast eini maðurinn, sem hélt fram á
síðasta dag uppi andófi gegn stjórnarskránni 1944. Nokkrum dögum
eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna sendi Olafur Björnsson honum bréf, og
sagði þar meðal annars:
Eg býst við, að það veki undrun yðar, að yður ókunnur maður skuli taka sig
til og skrifa yður bréf, en tilefni þessara lína er það að vegna þess aðkasts,
sem ég tel víst, að þér hafið orðið fyrir vegna afstöðu yðar í sambands- og
lýðveldismálinu, tel ég rétt, að þér verðið einnig varir við, að til eru menn,
sem líta öðrum augum á þetta og þora að kannast við það, og meðal þeirra
margir — og þar á meðal ég — sem ekki eru pólitískir samherjar yðar að öðru
leyti. ... Ég er heldur ekki viss um það, að einlæg sjálfstæðisþrá hafi vakað
fyrir þeim aðilum, er staðið hafa í fylkingarbrjósti hraðskilnaðarliðsins, en
það eru kommúnistar og klíka þeirra manna í Sjálfstæðisflokknum, er undan-
farið hafa matað [svo] krókinn á Ameríkuviðskiptum. ... Margir áhrifamenn í
hraðskilnaðarliðinu hafa heldur ekki farið dult með það, að norræn samvinna
sé eitur í þeirra beinum og þeir séu andvígir þátttöku íslendinga í henni. Ég
tel því fulla ástæðu til þess, að efnt sé til samtaka milli þeirra manna, sem
vilja áframhaldandi samvinnu íslendinga og hinna Norðurlandaþjóðanna, en
staðið sé í móti hinum rússnesku og amerísku áhrifum, sem nú vaða uppi í
þjóðfélaginu.83
Hér kom upp í Olafi Björnssyni sama andófseðli og í langafabróður
hans, Magnúsi Eiríkssyni guðfræðingi. Múgurinn skyldi ekki beygja
manninn. Olafur var einnig eins og margir aðrir menntamenn á þeirri
tíð hrifnari af norrænni samvinnu en auknum tengslum við engilsax-
nesku stórveldin á Norður-Atlantshafi, þótt hann gerði sér grein fyrir
því síðar, að í varnar- og öryggismálum ættu Norðurlandaþjóðirnar
ekki samleið, eins og kom í ljós í misheppnaðri tilraun til að stofna
norrænt varnarbandalag 1948, og átti ísland þó ekki einu sinni að fá
aðild að því.84
Dósent öðrum lengur: 1944-1948
Olafur Björnsson gekk í Sjálfstæðisflokkinn haustið 1944, og hafði
skólabróðir hans, Einar Asmundsson lögfræðingur, milligöngu um
það. Hafði Olafur ekki viljað ganga í flokkinn fyrr vegna andstöðu
sinnar við stefnu flokksins í sambandsmálinu.85 Þetta sama haust
myndaði Ólafur Thors samstjórn Sjálfstæðisflokks, Sósíalistaflokks