Andvari - 01.01.2016, Síða 135
ANDVARI
ÞÝÐING ÞRIGGJA GUÐSPJALLA
133
þ.e. ad sér tekid sitt óskabarn. 1841 er sitt óskabarn breytt í sitt barn. Þarna
hefur talsverðu verið breytt frá 1813: hann mynnest (1584 minntisi) miskunar
(1584 sinnar), og hiálpar á fœtur sínum þjón Israel (1584 og medtók sinn
þion Israel). Eina breyting Sveinbjarnar í lokaerindinu er að við að efna þau
heiti verður með því að efna þau heit en meiri breyting var gerð 1841. Þar
er textinn svona: hann hefur minnst miskunnar þeirrar er hann hét að veita
feðrum vorum, Abraham og nidjum hans, œfinlega.
Annað sýnishorn úr Lúkasarguðspjalli er úr 10. kafla, versum 25-37:
25. Nú stód upp (skriftjlærdur madur nokkur, vildi revna hann (freista hans)
og tók svo til orda. Meistari, hvörnin á eg ad breyta, svo eg verdi æfin-
lega sæll (eignist eilíft líf)?
26. Hann mælti: hvad er skrifad i lögmáls bókinni? hvörninn les þú?
27. Hann mælti: Þú átt ad elska (Elska skaltu) Drottinn Gud þinn af öllu
hjarta, af allri Sálu, af öllum kröptum og öllum huga og náunga þinn
einsog siálfan þig.
28. Hann mælti - þú svaradir rétt. Breyt þú svo og mun þér vel vegna.
29. Nú vildi hann auglýsa rádvendni sína (leita sér lofs) og spurdi Iésum:
hvörr þá væri hans náungi.
30. Iésús mælti: madur nokkur ferdadist frá Jórsölum (Ierúsalem) til Ieríkó
og féll í hendur revfara (reyfurum) sem ræntu hann (flettu hann klædum)
og veittu honum áverka, fóru sídan burtu og letu hann eptir daudvona.
31. Svo bar til, ad prestur nokkurr fór þenna sama veg og er hann sá hann
gékk hann framhjá,
32. eins Levítinn, þegar hann kom til þess stadar og sá hann, gékk hann
einin framhjá.
33. en samverskur madur nokkurr er fór um farinn veg, kom þar ad og er
hann sá hann kénndi hann í briósti um hann,
34. kom og batt sár hans og hellti í þau vidsmiöri og víni, setti hann sídan
uppá sinn eginn eyk og flutti hann til herbergis (gestgiafahúss) og lét sier
hugarhalldid um hann.
35. Degi sídar, er hann var ferdbúinn, tók hann upp tvo peninga (einn eyri),
gaf (fékk) húsbóndanum (gestgiafanum) og mælti: al þú önn fyrir honum
og þad sem þú kostar meiru til, skal eg borga þér, þegar eg kém aptur.
36. Hverr af þessum þremur sýnist þér vera náungi þess, sem féll í hendur
reyfurunum?
37. Hann mælti: sá sem miskunar verkid giördi á honum. Iesús mælti: breyt
þú þá einsog hann (far þú og gjör hid sama).