Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1988, Blaðsíða 68
66
megináherslu á kúabú. Strandamenn vinna þvi væntanlega litið i
heyryki, en Sunnlendingar allmikið sérstaklega eftir
óþurrkasumur.
Vinnubrögð voru þau að fyrst var öllum þáttakendum sent
bréf þar sem könnunin var kynnt og sagt i fáum orðum frá
fyrirkomulagi hennar. í Vikurumdæmi fór siðan einn höfunda
(H.K.) heim á bæ til viðkomandi, lagði fyrir spurningalista um
einkenni frá öndunarfærum og við hann bætt spurningum um
einkenni frá öndunarfærum tengd vinnu i heyi og einnig um
heyverkunaraðferðir, gerði öndunarpróf, mældi blóðþrysting,
hæð og þyngd og tók loks blóð fyrir fellipróf. Á Ströndum voru
vinnubrögð i meginatriðum þau sömu, nema þar unnu fleiri að
(H.K., A.E., T.Á. og V.M., þetta eru upphafsstafir þeirra sem
þar unnu) og ekki var farið heim á alla bæi vegna
timaþrengdar, en fólki stefnt i heilsugæslustöð eða i skólahús
þar sem þvi var viðkomið. Fellimótefni voru mæld á
Tilraunastöð Háskólans að Keldum gegn M. faeni. T. vulaaris og
A. fumiaatus. Niðurstöður voru siðan færðar inn á diskettu á
Reiknistofu Búnaðarfélags íslands, en tölvuvinnslu annaðist
Reiknistofa Háskólans. Við staðtölulega útreikninga var notuð
chi2 aðferð.
III. Niðurstöður
Á svæði A (Vikurumdæmi) náðist i 99,1% úrtaks, en 84% á
svæði B (nyrsta hluta Hólmavikurlæknishéraðs). Aðeins tveir
einstaklingar neituðu að taka þátt i rannsókninni, sinn á
hvoru svæði. 1. tafla synir þátttöku i rannsókninni.
2. tafla synir aldurs- og kyndreifingu á báðum svæðum.
Var greinilega um mjög sambærilega hópa að ræða.
3. tafla synir hlutfall votheys af heyfeng. Litil
votheysverkun var á svæði A, en hún var mikil á svæði B.
4. tafla synir lungnaeinkenni. Enginn munur var á þessum
einkennum nema bændur i Strandasyslu voru siður mæðnir við
gang á jafnsléttu.
5. tafla synir einkenni eftir vinnu i heyryki og
niðurstöður felliprófa gegn M. faeni. Enginn munur var milli
hópanna á tiðni hósta og mæði eftir vinnu i heyi. Hins vegar