Fréttablaðið - 26.11.2022, Blaðsíða 45
Á Fosshótel Reykjavík í
Þórunnartúni má finna fjöl-
breytta flóru veitingastaða
og frábæra aðstöðu til veislu-
og fundarhalda.
Haust Restaurant er með eitt glæsi-
legasta hlaðborð landsins og á Bjór-
garðinum má finna mikið úrval af
alls konar bjór í notalegu umhverfi.
Hótelið býður einnig upp á fjöl-
breytta aðstöðu til að halda fundi
og veislur þar sem hægt er að njóta
metnaðarfullra veislukræsinga við
allra hæfi. Þar starfar samheldinn
hópur fagfólks sem leitast við að
uppfylla kröfur viðskiptavina og
vinna að því að upplifun gesta sé
hin ánægjulegasta.
Góð liðsheild skilar sér til allra
Guðni Hrafn Grétarsson er einn
reyndasti og skemmtilegasti veit-
ingastjóri á Íslandi. Hann starfaði
í Perlunni í 15 ár og Hörpunni í 10
ár og tók þátt í að enduropna Haust
eftir heimsfaraldurinn. „Hér fæ ég
að gera ýmislegt eftir mínu höfði
með góðu starfsfólki og það er það
skemmtilegasta sem ég get hugsað
mér,“ segir hann.
„Við erum alltaf að gera nýja
hluti og þróa okkur áfram, við
vorum til dæmis aðeins að breyta
Haust Restaurant og gera hann
hlýlegri. Þar er hægt að fá bæði
hádegis- og kvöldverðarhlaðborð
og þriggja rétta matseðil, jafnvel
halda brúðkaup, allt eftir þörfum.
Við viljum vera í fremstu röð bæði í
mat og þjónustu, svo einfalt er það.“
Hann segir stóra ameríska jóla-
hlaðborðið vera vinsælt bæði í
hádeginu og á kvöldin fyrir vinnu-
staði, vinahópa og fjölskyldur.
„Krakkarnir eru spenntir fyrir jóla-
húsinu þar sem þau geta leikið sér
á meðan foreldrarnir eru að borða
og taka því rólega. Á hlaðborðinu
er mikið í boði fyrir börnin og
eftirréttahlaðborðið er í miklu
uppáhaldi hjá þeim.“ Guðni bendir
einnig á að aukning hafi orðið hjá
hótelinu í erlendum ráðstefnum og
kvöldverðum fyrir háttsetta gesti.
„Stofnanir með miklar kröfur velja
okkur og það segir sitt um gæðin.“
Hann þakkar velgengni staðar-
ins góðu starfsfólki og frábærri
liðsheild. „Sem gerir starfið svo
skemmtilegt og er lykilatriði í
öllum hótel- og veitingabransa.
Við höfum fengið að vita að það
skilar sér til kúnnans hvað okkur
finnst gaman í vinnunni og höfum
mikinn sameiginlegan metnað.“
Eitthvað fyrir alla á hlaðborðinu
Ásgeir Erlingsson, yfirkokkur á
Haust Restaurant, bendir á að
allur matur sé unninn frá grunni
og úr ferskasta hráefni sem völ
er á hverju sinni. „Við erum með
mismunandi áherslur á hlað-
borðunum út yfir árið, byrjum á
grænkeraborði í janúar og svo taka
við sjávarréttir í mars, okkar sívin-
sæla breytilega borð yfir sumarið,
villibráð í október og svo stóra
ameríska jólahlaðborðið sem hefur
heldur betur slegið í gegn.
Þó að við séum með þema þá er
alltaf eitthvað fyrir alla á hlað-
borðinu því við leggjum upp úr
því að allir geti farið saman út að
borða. Við erum til dæmis alltaf
með vegan mat í boði og reynum
að vera sem mest glútenlaus. Allir
réttirnir á hlaðborðinu eru merktir
með innihaldsefnum ef fólk er
með ofnæmi og svo er líka hægt að
hafa samband ef fólk er á sérfæði.
Við erum líka með bakara hjá
okkur sem gerir alla eftirréttina frá
grunni svo þeir séu sem ferskastir.“
Hugmyndir sem fara út fyrir
kassann velkomnar
Hildur Kristinsdóttir, verkefna-
stjóri ráðstefna, segir hótelið bjóða
upp á aðstöðu fyrir ólíka viðburði
af ýmsum stærðum. „Við erum
með aðstöðu fyrir fundi og getum
svo líka haldið afmæli, fermingar,
jólahlaðborð og allt þar á milli.
Við sníðum viðburðina í góðri
samvinnu við gestina og tökum vel
í allar hugmyndir. Við reynum að
verða við öllum óskum, til dæmis
má fólk koma með skreytingar til
að gera salina að sínum ef óskað
er.“
Hótelið er einnig búið frábæru
eldhúsi svo veitingarnar eru ekki
af verri endanum. „Við erum með
pinnamatseðil fyrir móttökur eða
til að halda upp á vel heppnaðan
fund í lok dags. Eins stærum við
okkur af mjög metnaðarfullum
veisluseðli þar sem hægt er að velja
úr úrvals réttum. Fermingarhlað-
borðin okkar hafa slegið í gegn þar
sem við bjóðum upp á sambland
af heitum og köldum réttum
ásamt kökuhlaðborði. Við leggjum
metnað í að allir geti notið þess
að borða hjá okkur og reynum að
taka fullt tillit til allra sérþarfa í
mataræði.“
Hún nefnir að eftirsótt sé að
halda brúðkaupsveislur af öllum
stærðum á hótelinu. „Veisluseðill-
inn er unninn í samráði við brúð-
hjónin og salurinn dekkaður upp
eftir þeirra óskum. Stóru svíturnar
okkar tvær á 16. hæð henta vel
fyrir brúðhjón til að hafa sig til
hvort í sínu lagi með sínu nánasta
fólki og við mælum eindregið með
að dvelja í svítunni á brúðkaups-
nóttina svo hægt sé að njóta þess
að sofa út og fara í brönsinn okkar
á Haust.“
Vinsælt er að halda ráðstefnur
á hótelinu enda aðstaðan frábær.
„Við bjóðum upp á sex sali í heild-
ina sem geta tekið allt upp í 220
manns. Á sextándu hæð er hægt að
halda litla fundi með stórkostlegu
útsýni yfir borgina. Hinir salirnir
eru á annarri hæð hótelsins og eru
með innbyggðu hljóðkerfi fyrir
ræðuhöld, skjái og skjávarpa og
möguleika á streymistengingu. Við
getum boðið upp á túlkaþjónustu
og streymi af fundum og létta
morgun- og eða síðdegishress-
ingu.“
Hildur segir hugmyndir sem eru
aðeins út fyrir kassann alltaf vel-
komnar. „Við fögnum því að fá stór
verkefni sem gefa okkur tækifæri
til að sanna hvað við getum og læra
nýja hluti í leiðinni.“
Mesta úrval af jólabjór á landinu
Alex Rocha kom til starfa á Bjór-
garðinum fyrir ári og segir garðinn
frábæran valkost þegar kemur að
bjórdrykkju í Reykjavík.
„Við erum hluti af hóteli og þess
vegna eru þægindi og öryggi okkar
aðalsmerki. En Bjórgarðurinn er
samt auðvitað bjórgarður með af-
slöppuðu og líflegu andrúmslofti.
Hér hittast hótelgestir og heima-
menn sem vinna í nágrenninu
og njóta þess að smakka nýjar og
spennandi bjórtegundir. “
Bjórúrvalið er mikið, 26 bjórar á
krana og 90% íslensk framleiðsla.
„Núna erum við til dæmis með
mesta úrval af jólabjór á landinu
og allt á krana,“ segir Alex og
minnist sérstaklega á húsbjórinn,
sem er framleiddur í samstarfi við
bruggstofuna Gæðing. Og matinn.
„Við erum með borgara og fisk og
franskar og vegan valkosti fyrir þau
sem það vilja. Eitthvað fyrir alla.“
Bjórgarðurinn hefur líka tekið
þeim stakkaskiptum að þar er
nú hægt að fylgjast með alþjóð-
legum íþróttaviðburðum og halda
fundi og viðburði. „Margir funda
á morgnana í Bjórgarðinum og fá
sér síðan hádegismat, annaðhvort
þar eða á Haust og það er að mælast
mjög vel fyrir.“ Bjórgarðurinn er
opinn frá hádegi til ellefu á kvöldin
og til eitt um helgar.
Í Þórunnartúni eru næg bíla-
stæði og auðvelt að leggja svo það
er ekkert því til fyrirstöðu að kíkja
á Haust í hlaðborð eða bjór og njóta
gæða, þjónustu og þæginda í fal-
legu umhverfi . n
Glæsihótel með framúrskarandi veitingar
Guðni Hrafn Grétarsson, Hildur Kristinsdóttir og Ásgeir Erlingsson bjóða gesti velkomna með bros á vör. Fréttablaðið/Ernir
Eftirréttirnir á Haust njóta vinsælda hjá öllum aldurshópum enda gerðir frá
grunni af bakara hótelsins.
Alex Rocha segir heimamenn og hótelgesti mætast í þægilegu andrúmslofti
í Bjórgarðinum.
Á hlaðborðinu á
Haust er boðið
upp á úrval rétta
við allra hæfi og
tekið er sérstakt
tillit til sérþarfa í
mataræði.
Við viljum vera í
fremstu röð bæði í
mat og þjónustu, svo
einfalt er það.
Guðni Hrafn Grétarsson
ALLT kynningarblað 3LAUGARDAGUR 26. nóvember 2022