Fréttablaðið - 26.11.2022, Page 83
Í Sjónarafli er
mikið unnið með
eftirfarandi setningu: Því
lengur sem við horfum á
listaverk, því meira
sjáum við!
Ragnheiður Vignisdóttir
Listasafn Íslands gefur út
nýtt rafrænt fræðsluefni þar
sem lögð er áhersla á þjálfun
í myndlæsi. Fræðsluefnið
er hluti af stærra verkefni
sem ber nafnið Sjónarafl, en
fræðsludeild safnsins hefur
unnið að verkefninu undan-
farin ár og er þessi útgáfa
afraksturinn af þeirri vinnu.
„Sjónarafl miðar með markvissum
hætti að því að tengja kennslu í
myndlæsi og listasögu við skóla-
kerfið og auka þekkingu nemenda
á menningarsögu og menningar-
arfi þjóðarinnar. Þjálfun í mynd-
læsi eykur einnig hæfni í tjáningu,
virkri hlustun, hugtakaskilningi,
rökleiðslu og gagnrýnni hugsun.“
Þetta segir Ragnheiður Vignis-
dóttir, fræðslu- og útgáfustjóri
Listasafns Íslands.
Fræðsluverkefnið Sjónarafl felur
í sér valdeflingu þátttakenda til að
skilja og takast á við myndrænar
upplýsingar og heiminn eins og
hann kemur þeim fyrir sjónir.
„Í myndlæsi er unnið markvisst
með umræðu- og spurnaraðferð
kennslufræðinnar þar sem þátt-
takendum er gefið gott rúm til að
tjá sig og lýsa eða túlka það sem
þeir sjá. Með tímanum fá þátttak-
endur í verkefninu dýrmæta lykla
sem veita þeim hæfni til að skoða
og njóta myndlistar í hvaða formi
sem er. Þá eru einungis tvö lista-
verk tekin fyrir í hverri safnaheim-
sókn eða kennslustund, en tekinn
er allt að hálftími til að greina,
ræða um og rýna í hvert verk með
virkri þátttöku nemenda,“ útskýrir
Ragnheiður.
Skilningur sem situr eftir
Í Sjónarafli er unnið mikið með
eftirfarandi setningu: „Því lengur
sem við horfum á listaverk, því
meira sjáum við!“
„Það er svo fallegur sannleikur í
þessari setningu,“ segir Ragnheið-
ur. „Við sjáum þetta raungerast í
heimsóknum nemenda til okkar,
þar sem til verður dýpri skilningur
á listaverkinu sem skoðað er hverju
sinni – skilningur sem situr eftir.
Það er einstaklega dýrmætt, ekki
síst nú þegar allt hreyfist svo hratt
og myndir dynja á okkur úr öllum
áttum.“
Myndlæsisþjálfunin fer fram
með því að styðjast við valin verk
úr safneign Listasafns Íslands og er
fræðsluefnið sjálft unnið sérstak-
lega með kennara í huga – þann-
ig að hvaða kennari sem er geti
tekið efnið og notað í kennslu, eða
komið í heimsókn á safnið sem
hluta af náminu.
„Efnið er unnið út frá alþjóð-
legum rannsóknum og kennsluað-
ferðum í myndlæsi. Í Safnahúsinu
við Hverfisgötu stendur nú yfir
sýningin Viðnám þar sem mynd-
list og vísindi mætast og þar má
sjá lykilverk úr safneign Lista-
safns Íslands sem tekin eru fyrir í
fræðsluefni Sjónarafls,“ upplýsir
Ragnheiður.
Aukið sjálfstraust og færni
Í Listasafni Íslands starfa sérfræð-
ingar í íslenskri myndlist. Hluti
af gæðastarfi safnsins í fræðslu-
málum var að byrja verkefnið í
þróunarfasa þar sem hægt var að
meta praktísk atriði ásamt raun-
verulegum árangri.
„Síðasta ár var Listasafnið í sam-
starfi við kennara og nemendur
í Barnaskóla Hjallastefnunnar í
Reykjavík þar sem verkefnið var
á þróunarstigi. Með því samstarfi
gátu sérfræðingar í fræðsluteymi
safnsins lagt mat á árangur nem-
enda sem tóku miklum fram-
förum á tímabilinu. Til dæmis
varð geta þeirra til að lesa í myndir
og beita aðferðum myndlæsis
Sjónarafl – nýtt kennsluefni í myndlæsi
Ragnheiður Vignisdóttir er fræðslu-
og útgáfustjóri Listasafns Íslands. Í Sjónarafli fer fram myndlæsisþjálfun þar sem stuðst er við valin verk úr eigu Listasafns Íslands. MYNDIR/AÐSENDAR
Geta nemenda til að lesa í myndir og beita aðferðum myndlæsis hefur sýnt sig að verða áberandi góð eftir þátttöku
þeirra í Sjónarafli. Þá jókst bæði sjálfstraust nemenda í tjáningu og færni þeirra í rökhugsun.
Fræðsluefnið sjálft er unnið sérstaklega með kennara í huga – þannig að hvaða kennari sem er geti tekið efnið og
notað í kennslu eða komið í heimsókn á safnið sem hluta af náminu.
áberandi góð, sjálfstraust nemenda
í tjáningu jókst og færni þeirra í
rökhugsun að sama skapi,“ greinir
Ragnheiður frá.
Lengi hefur verið kallað eftir
fræðsluefni eins og Sjónarafli, jafnt
frá skólastofnunum í nærumhverf-
inu og eins frá skólastjórnendum
og kennurum á landsbyggðinni
sem ekki hafa sama svigrúm til
safnaheimsókna og skólar á höfuð-
borgarsvæðinu.
„Við höfum nú þegar fengið
pantanir frá kennurum sem vilja
nota efnið í sinni kennslu. Þá hefur
fræðsluefnið verið gert aðgengilegt
á vef Listasafns Íslands, listasafn. is,
og verður því meðal annars fylgt
eftir með námskeiðum og kynn-
ingum fyrir kennara á næstu
mánuðum. Ég hvet áhugasama
skólastjórnendur og kennara til
að hafa samband við okkur og fá
nánari kynningu á efninu,“ segir
Ragnheiður.
Aukinn sýnileiki myndlistar
Listasafn Íslands sinnir lögbundnu
menntunarhlutverki.
„Með Sjónarafli og fram-
setningu þess er safnið að þróa
nýja leið til að styðja við kennslu
í mynd- og menningarlæsi með
faglegum hætti í beinum tengslum
við listaverkaeign þjóðarinnar,
aðalnámskrár, Barnasáttmálann
og myndlistar- og menntastefnu
stjórnvalda til ársins 2030. Er það
von okkar að verkefnið muni
stuðla að auknum sýnileika mynd-
listar og að hún fái meira vægi við
menntun komandi kynslóða,“
segir Ragnheiður, en með henni í
fræðsluteymi Sjónarafls eru Marta
María Jónsdóttir, Hólmar Hólm og
Anja Ísabella Lövenholdt. n
Sjá listasafn.is og listasafn.is/laera/
sjonarafl-thjalfun-i-myndlaesi/
ALLT kynningarblað 5LAUGARDAGUR 26. nóvember 2022