Rökkur - 01.06.1932, Side 62
60
R O Ií K U R
sköttum. Er því litlum efa und-
irorpið, að þær 80 milj. sterlpd.,
sem ógreiddar voru 14. febr. í
ár greiðast fyrir 31. þ. m. Enn-
fremur hefir komið í ljós, að
tolltekjur eru meiri það sem af
er þessu ári en á sama tima í
fyrra. Tollgreiðslurnar það sem
af er árinu, nema 10 milj.
sterlpd. umfram það, sem áætl-
að var. — Hinsvegar er því ekki
að leyna, að svo mjög hefir
verið sorfið að breskum skatt-
greiðendum vegna ríkisþarfa,
að leggja verður álierslu á að
létta skattbyrðar manna. Ljóst
er mönnum einnig, að liinar
miklu skattgreiðslur bitna á við-
skiftum, vegna þess að kaupgeta
manna er lömuð. Þó er ljóst, að
ríkisbúskapurinn er bersýnilega
að komast í svo gott horf, að
fvrirsjáanlegt er, að hægt verð-
ur að lækka greiðslubyrðar al-
mennings.
Frá Irlandi.
—o—
Eins og getið hefir verið í
skeytum, urðu úrslitin í frírík-
iskosningunum þau, að lýðveld-
issinnar eða Fiannafailflokkur-
inn kom að flestum þingmönn-
um. Þá skortir þó nokkur at-
kvæði til þess að hafa hreinan
meiri hluta, en eiga visan stuðn-
ing verkamanna, sem að eins
komu að 7 frambjóðöndum. En
því fer, að sögn, mjög fjarri,
að verkamenn muni fylgja De
Valera og flokki hans i hlindni.
Verkamannaflokkurinn mun
fastráðinn í að beita aðstöðu
sinni til þess að koma í veg fyr-
ir, að De Valera fari of geyst.
John S. Steele, aðalfréttarit-
ari Tlie Chicago Tribune, átti
þ. 23. febr. viðtal við Tom
Johnson, sem um margra ára
skeið var skrifari írska verka-
mannaflokksins, en nú er Tom
Johnsop talinn aðalleiðtogi
írskra verkamanna.
Johnson lagði áherslu á það,
í viðtali sínu við John Steele,
að flokkurinn hefði eigi tekið
neina ákveðna stefnu i utanrík-
ismálum, en ef Fiannafail-
flokkurinn reyndi að spilla
friðnum milli fríríkisins og
Bretlands, mundu verkamenn
þegar fella Fiannafailstjórnina
með aðstoð stjórnarflokksins
fyrrverandi, óháðra og bænda.
Hvað af því mundi leiða er ann-
að mál. Afleiðingin gæti orðið
sú, að Cosgrave kæmist aftur til
valda, eða að almennar kosn-
ingar færu aftur fram. Og
þriðji möguleikinn er sá, að
verkamenn aðhyltust stofnure
þjóðstjórnar til bráðabirgða.
Verkamenn, sagði Johnson,