Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1969, Side 9

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1969, Side 9
Kirkjuferð er mér minnisstæð. Jörpum lresti af Guðbrandsdalskyni var beitt fyrir vagn óðalsbóndans. Tveir synir bónda, komnir undir tvítugt eins og ég, átu fullt í fangi með að hemja þann jarpa, er hann var settur fyrir vagninn. Fjörið leiftraði í tinnudökkum augunum, hver taug titraði, liver vöðvi var þaninn, eins og væri hann veðhlaupa- hestur í upphali keppni, en hann stilltist þegar, er hann fann taumana komna í hendur ekilsins, óðalsbóndans. Við hlið hans sat kona hans, ávalh jafn glaðlynd og kát, en hann alvörugefinn, stundum þungbúinn, nú hátíðlegur á svip. Einn sonanna sat mér við hlið, en gegnt okkur tvær telpnanna með sálmabækurnar sínar í höndunum. Ekið var eftir þjóðvegi lengst af, þar sem furuskógur hávaxinn var á báðar liendur. Svo hratt brokkaði sá jarpi, að mér fannst að við færum sem fugl flygi, og hraðinn ávallt jafn, og jafnlétt brokkaði hann alla leiðina, 30 kílometra vegalengd eða vel það. Og brokkhljóðið berg- málaði um allan skóginn og lét vel í eyrum og sameinaðist bergmáli klukknahljómsins, er komið var í námunda við kirkjustað. Þar var vagn við vagn og margt af kirkjufólkinu í þjé)ðbúningum. í kirkjunni tóku allir þátt í sálmasöngnum og það ómaði af honum lengi á eftir og mér fannst ómurinn af honum og klukknahringunni hafa sam- einast brokkhljóðinu á leiðinni heim og vera helgi yfir því. Eg minnist líka guðsþjónustu og hátíðarsamkomu á Stiklastöðum. Þar talaði Lars Eskeland, líklega mesti mælskumaður Noregs, eftir daga Björnstjerne Björnson, — hann talaði á landsmáli og mér fannst það fagurt í hans munni, og það var sungið á landsmáli, Gud signe Norigs land, eftir Arne Garborg, ogDei stod paa Stiklastad fylka til strid, den gamla og so den nya tid, eftir Per Sivle. Skömmu eftir kornu mína fór einn sonanna, sextán-seytján ára piltur til sumardvalar á óðali suður í Guðbrandsdal. Kvöld var, og ég var eitthvað að rangla úti í skógi skammt frá bænum og heyrði allt í einu blístrað og nam staðar. Pilturinn, sem að heiman fór, var kominn, og sagði hann mér alla söguna. Hann undi ekki vistinni fyrir heimþrá — og strauk heim. Hann kom með næturlest til Steinkjær og hafði svo falist í skóginum, því að hann óttaðist reiði föður síns. Og nú bað liann mig að fara á fund móður sinnar. Það erindi rak ég fúslega, því að löng kynni þurfti ekki til að sjá, að hún var ein þeirra kvenna, sem allt mildaði, og jafn augljóst var, að bóndi hennar virti hana og dáði. Pilturinn fór til vinnu sinnar að morgni. Undir liádegi um daginn gekk faðir hans til mín og sagði eitthvað á þá leið, að mér mundi víst hafa fundist sonurinn kjarklítill. Mér datt ekki annað í hug til svars en að segja frá atviki sem ég hafði verið vitni að, er unglingi á íslenzku heimili var skipað að vinna 3

x

Rökkur : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.