Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1969, Blaðsíða 46
Það væri mjög heppilegt, og má segja nauðsynlegt, að til sé
opinber fréttastofa, sem erlendar stofnanir, svo sem fréttastofur
og blöð og fleiri, geta snúið sér til með fyrirspurnir og annað,
en einkum væri mikilvægt fyrir viðskiptafyrirtæki og erlenda
kaupsýslumenn, sem skipta við ísland, að hafa aðgang að slíkri
stofnun, en það ætti að verða eitt hennar verkefni, að semja
mánaðarlegt yfirlit á ensku, að meginefni fjárhags- og viðskipta-
legt sem slíkum mönnum mætti að gagni koma. Er mér kunnugt
um frá ferðum mínum sem fréttamanns erlendis, að íslenzkir við-
skiptafulltrúar erlendis telja mikla þörf á, að gefið væri út slíkt
yfirlit, en dreifingu þess til þeirra, sem óskuðu eftir því, mætti
fela íslenzkum sendifulltrúum erlendis og ræðismönnum Islands.
Slíkt mánaðaryfirlit (bulletin) ætti að prenta, og yrði þar, auk
þess sem að ofan greinir, getið í stuttu máli menningarlegra og
stjórnmálalegra viðburða og breytinga, eftir því sem ástæða er
talin til hverju sinni.
Ég lít svo á, að ekki megi dragast öllu lengur, að stofnað sé
til slíkrar þjónustu, og ef stofnuð yrði Fréttastofa Islands, yrði
þetta að sjálfsögðu eitt hennar verkefni, en dragist stofnun hennar
fyrirsjáanlega enn alllengi, hljóta að vera leiðir til þess að full-
nægja þesari þörf á annan hátt til bráðabirgða.
Mér þótti eftir atvikum rétt að víkja að þessu með nokkrum
orðum, þótt annað sé höfuðefni greinar minnar, en það er að geta
að nokkru fréttastofunnar, sem Blaðamannafélag Islands stofnaði
til fyrir hartnær 4 áratugum. Var því hreyft við mig fyrir alllöngu,
að ég segði frá henni hér í blaðinu, þótt dregizt hafi úr hömlu að
koma þessu frá. En áður en lengra er farið vil ég leggja áherzlu
á, hversu þróunin á hverjum tíma hefur sín áhrif, hver áhrif hún
hafði á FB á hennar tíma, og einnig hvernig þróunin á vettvangi
blaðaútgáfu, fréttaöflunar og dreifingar o. s. frv. er nú, á þeim
tíma, sem málið er á ný á dagskrá, og hverjar eru líkurnar fyrir
að hún verði.
,,Nú geta menn pó tálaö saman“.
Áður en lengra er farið, vil ég minnast þess frá fyrri árum, er
við blaðamenn eitt sinn sátum á fundi í veitingasal Hótel Borgar,
að Ari heitinn Jónsson Arnalds, fyrr ritstjóri og alþingismaður,
gekk til okkar brosandi og hafði á orði, hve ánægjulegt það væri,