Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1969, Blaðsíða 20

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1969, Blaðsíða 20
bernskusumur á Mýrum vestur, eins hefi ég oft hugsað til þess með þakklátum huga, að liafa dvalist á unglingsárunum í Hvann- eyri, og mest fyrir þau áhrif, sem Halldór skólastjóri hafði á mig, en þau voru slík, í fáum orðum sagt, að þau reyndust veganesti, sem mér var mikili styrkur að, er mest á reyndi. Þau áhrif — áhrif kynna og hvatningar, hafa aldrei máðst út. Og söm mun hafa orðið reyndin fjölda margra annarra en mín, sem nutu handieiðslu hans, er þeir voru að harðna og mannast undir lífsbaráttuna. Eg vildi mega minna á það hér, að það var með lögum frá árinu 190.5, sem gerð var mikil breyting á búnaðarfræðslunni í landinu, og komu þau til framkvæmda 1907. Mið hinum nýju lögum var búnaðarskólanum á Hvanneyri breytt í bændaskóla. Og þá urðu þar skólastjóraskifti. Fyrirrennari Halldórs var Hjörtur Snorrason, síðar bóndi á Skeljabrekku og alþingismaður, mikill athafnamaður, góður kennari og stjórnandi, að sögn þeirra er nutu, og á alla lund og á alla lund mikilhæfur maður og vel virtur. Halldór kom að skólanum rúmlega þrítugur að aldri. Hann var vel undir starfið búinn og vel til foringja fallinn. Hann var fæddur 14. febrúar 1875 í Laufási við Eyjafjörð, sonur Vilhjálms Bjarnarsonar, síðar bónda í Kaupangi og að Rauðará, en þeir voru albræður Vilhjálmur og Þórhallur biskup, en móðir Halldórs var Sigríður, systir Björns á Dvergasteini, Hall- dór fór í Möðruvallaskóla og lauk þaðan gagnfræðaprófi, en var síðan um nokkurt skeið heima hjá foreldrum sínum og hjá síra Birni móðurbróður sínurn. Árið 1901 fór Halldór utan til þess að stunda nám í landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn og lauk hann prófi 1904 og dvaldist svo um árs bil áfram í Danmörku til þess að kynna sér danskan landbúnað og skólastarfsemi og var þá m.a. í lýðskólanum í Askov. Heim til íslands fór hann 1905. Fyrsta starfið var að ferðast fyrir Búnaðarfélag íslands milli rjómabúanna, sem þá voru allvíða um land. Var ferðin farin í eftirlits og leiðbeiningarskyni. Varð hann á skömmum tíma kunnur fyrir þá röggsemi, sem einkenndi allt hans ævistarf. Næstu tvö ár var Halldór svo kennari á Eiðum og jafnframt ráðunautur Búnaðarsambands Austurlands. Og svo hefst aðalævistarf hans sem skólastjóra og bónda á Hvanneyri. Rak hann búið fyrir eigin reikning. Allt var með miklum myndarbrag og framkvæmdir miklar. Aðsókn að skólanum 14
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Rökkur : nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.