Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1969, Blaðsíða 28
því í blaði sínu, Kirkjublaðinu, að Páll hefði lesið Njálu á hverj-
um vetri eigin málvöndunar vegna, og Vilhjálmur Þ. Gíslason
segir í formálsorðum að bókinni „Brautryðjendur“, að það sem
gert hafi sögurit Páls vinsæl meðal leikra og lærðra hafi ekki ein-
ungis verið það, að þau bættu úr fróðleiksþörf manna, heldur
einnig hitt, að „stíll þeirra og málfar var alþýðlega látlaust, en
þó virðulegt og fagurt“.
Minningarnar um Pál eru tengdar því, að ég var farinn að eign-
ast bækur þó nokkru fyrir fermingaraldur. Allar mundu þær telj-
ast smárit nú á dögum, en ég hef alla ævi litið á sumar þeirra
sem dýrgripi. Og ekki voru þær dýrar í aurum eða krónum talið.
Meðal fyrstu bókanna, sem ég eignaðist, var mikill dýrgripur, og
það var Sigurði Kristjánssyni bóksala að þakka, að ég gat eignast
hann, en það var Sigurður sem hóf alþýðlega útgáfu Islendinga-
sagna, og seldi svo lágu verði að allir gátu eignast, að minnsta
kosti smám saman, en bókin var Gunnlaugs saga ormstungu, og
kostaði ef ég man rétt 35 aura.
En vorið 1909 eignaðist ég bók, sem var í fimm- eða sexfalt
stærra broti en nokkur, sem ég fyrr hafði eignast, og var hún
fermingargjöf frá Páli Melsteð, sem varð 97 ára um haustið sama
ár, en andlát hans bar að höndum í febrúar árið eftir.
Þessi góða gjöf var bókin Rundt Norgc fra Tistedalen til Jakobs-
elven, gefin út 1882, með mörgum myndum. Þessi bók var mér
því kærari sem lengur leið, en ég gluggaði fljótt í hana og naut
hennar betur af því að ég var þá búinn að marglesa sveitasögur
Björnsons.
1 þessari bók, sem hefst á lýsingu á áðurnefndum dal, segir á
einum stað á þessa leið:
Hver sá, sem kemur inn í dalinn mun komast að raun um, að
hann er fagur og hlýlegur og hefur bætandi áhrif á hugann.
Öldungurinn vissi vel hvað hann var að gera, er hann sendi
mér fagra, góða, þroskandi bók, á þeim tímamótum er bernsku-
og æskuárin voru að baki og unglingsárin framundan og ýmiss
vandi, því að með góðum bókum er jafnan vísuð leið inn í þá dali,
sem huganum er gott og hollt að dveljast. Og er það ekki eitt af
því, sem dýrmætast er, þegar árin færast yfir, séu menn á annað
borð andlega lifandi, að því fegurri lendur og víðari er yfir að
líta, og hið andlega landnám Páls Melsteðs hefur verið vítt og
22