Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1969, Blaðsíða 50
4. Loftskeyti eru daglega send til skipa, almennar fréttir og
aflafréttir. Ber þess og að minnast með þakklæti, að Félag ís-
lenzkra botnvörpuskipaeigenda og Eimskipafélag íslands styrkja
FB til þessa.
5. Ýmsum fyrirspurnum er svarað bréflega og símleiðis.
6. Ýmsar tilkynningar eru sendar daglega til blaða, stundum til
annarra, samkvæmt óskum þeirra, sem tilkynningarnar eru frá.
Flestar tilkynningarnar hafa verið frá sendikennara Dana. Til-
kynningar þessar eru ýmsar Danmerkurfréttir, einkanlega er
snerta bæði ísland og Danmörku. FB fær tiikynningar þessar
ókeypis og ber þess að minnast með þakklæti.
7. Þá hefur FB sent blöðunum ýmislegt, sem gerist meðal Is-
lendinga í Vesturheimi, og væri gert meira að því, ef eigi væri
takmarkað rúm í blöðunum. Þessarar starfsemi hefur verið minnst
þakksamlega í vestur-íslenzku blöðunum.
8. Forstöðumaður FB sendir iðulega fréttaklausur eða greinir
til fréttastofu í London, sem hefur sambönd út um allan heim.
Hefur fréttastofa þessi látið í ljós ánægju sína yfir að fá þessar
fréttir, sem sumar hafa verið langar og ýtarlegar. Má t. d. nefna:
Mannskaðana í vetur og leitina að togurunum, Loftismálið, skíða-
för L. H. Miiller og félaga hans, Þjóðleikhúsið, Landspítalann,
skýrslur um útfluttar afurðir o. m. fl. Einnig hefur FB beðið
fréttastofu þessa að geta í tilkynningu til allra blaða, sem fá
fréttir frá henni, um bæklinga þá um ísland sem ferðamannaland,
sem út eru gefnir. Eru þá send allmörg eintök af bæklingunum
til úthlutunar.
Fleira mætti til tína, en læt þetta nægja. Þess þarf væntanlega
ekki að geta, að FB svarar fúslega þeim fyrirspurnum, er hún
fær, og reynir að vekja eftirtekt á íslandi erlendis.
Ber ég það traust til manna, að Fréttastofan verði ekki dæmd
á ósanngjarnan hátt. Mun henni vafalaust vaxa fiskur um hrygg
smám saman."
I niðurlagi greinargerðinnar drap ég á, að fréttastofur erlendis
hefðu aukið starfsemi sína, þar sem útvarpið var komið til sög-
unnar, og vafalaust mundi það sama verða uppi á teningnum hér,
en um þetta voru ýmsir á allt öðru máli á þesum árum, og þjóð-
kunnur máli á þessum árum, og þjóðkunnur ritstjóri lét í ljós
við mig þá skoðun sína, að framtíð blaðanna væri mjög óviss vegna
44