Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1969, Blaðsíða 58
Þróunin.
Þróunin, sem ég gat um, og öll stefndi í áttina til sjálfstæðrar
fréttamennsku, þar sem hvert blað gæti farið sínar götur til þess
að vera „fyrst með fréttirnar" og sett sinn svip á þær, hélt áfram
og hefur gert fram á þennan dag.
Hún hafði sín áhrif, að því er FB varðaði, e.r á leið, og einnig
að því er varðaði fréttasölu útvarpsins til blaðanna. Hún lagðist
niður vegna sömu þróunar. Blöðin vildu sjálf afla sér frétta, —
fljótt og milliliðalaust.
Þörfin fyrir fréttastofu.
Nú munu menn ef til vill spyrja, hvort nokkur þörf sé, að stofn-
uð verði Fréttastofa íslands, eins og stungið hefur verið upp á,
þar sem þróunin á undangengnum tíma hefur verið sú, sem að
framan hefur verið lýst, og ætla má að hún verði áfram. Skoðanir
kunna að verða skiptar, en þetta er mál, sem þarf að vera áfram
til athugunar og umræðu. Ég fyrir mitt leyti tel slíkar stofnunar
þörf og drap í fyrri grein minni á verkefni, sem slík stofnun ætti
að inna af hendi. Nú hefur legið niðri um hríð, að ræða stofnun
Fréttastofu Islands, eins og lagt var til með nefndartillögunum,
sem minnt var á í fyrri grein, en væri ekki vegur, að athugað væri
hvort ekki gæti náðst samkomulag um stofnun fréttastofu, sem
hefði takmarkað verkefni, — væri tengiliður blaðanna og hins
opinbera, — annaðist miðlun opinberra tilkynninga, ríkisstjórnar-
innar og opinberra stofnana, félaga og fyrirtækja — svaraði fyrir-
spurnum erlendis frá og annaðist útgáfu mánaðarskýrslu á ensku
um efnahag, viðskipti o. fl. í þágu erlendra stofnana, viðskipta-
fyrirtækja og einstaklinga o. s. frv. Væri þannig unnt að koma á
slíkri þjónustu nú, mætti jafnframt miða að því, að leggja grund-
völl að víðtækari fréttamiðlun síðar til blaðanna, telji þau sér
hag að, en hér er í rauninni, við nútíma skilyrði, sérstakt athug-
unarefni, þar sem fullnægja yrði þörfum einstakra blaða með til-
liti til þeirrar þróunar, sem gerð hefur verið að umtalsefni.
Að síðustu: Hugmyndinni um stofnun Fréttastofu íslands ber
að halda vakandi við forystu Blaðamannafélags fslands.
52