Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1969, Side 12

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1969, Side 12
saga baráttu, átaka, valdagræðgi, kúgunar og Mammonsdýrkunar. Og á ekki enn í dag við að mestu lýsing hins mikla danska skálds Holgers Drachmanns, sem fæddist 1846 og lézt 1908: En kringum oss gnæfa kirkjur og krær og bankar og þing og auður og ógnar kynstur af örbirgð og svívirðing. Þessi lýsing átti ekki síður við tímabilið milli heimsstyrjaldanna en tíma Drachmanns og fyrri tíma. Enn átti — í hinni síðari heimsstyrjöld, að sigra heiminn með valdi vopnanna, og í kjölfar allra þeirra ógna rennur upp tími, sem við vitum ekki enn hvort verður aðeins hlé milli heimsstyrjalda eins og hitt, en meðal þess, sem einkennir tímann eftir heimsstyrjöldina síðari er sívaxandi virðingarleysi fyrir því, sem gamalt er og gott og vert að halda í, gerbreytt viðhorf mikils fjölda manna í löndunum, tilgangsleysi og uppgjöf í lífsbaráttu, og þetta gerist með sídvínandi örbirgð og stvaxandi velgengni í hinum vestræna heimi. Jafn- vel fyrir heimsstyrjöldina síðari var fluttur boðskapurinn Farið heilar fornu dygðir, þær máttu fara, þær voru búnar að slíta sér til húðar, þær gátu „pukrast hljóðlega burt,“ því að þeirra var ekki þörf lengur. Og hvað kemur í ljós eftir síðari heimsstyrjöld, á þeim tíma, sem við lifum á Einhver grimmilegasta styrjöld, sem sögur fara af, er háð í landi smáþjóðar og í stað vandamála fátæktar og örbirgðar, sem áður var við að glíma einnig í menningarlöndunum, eru komin vandamál velgengninnar í ótal myndum, oft átakanlega, og augljóslega svo erfið viðfangs, að engu er líkara en að þeir, sem ættu að hafa forustuna til varnar fái enga rönd við reist, eða sljóleiki og sinnuleysi ríki þar sem síst skyldi. Þessu til sönnunar væri auðvelt að bregða upp ótal myndum frá nágrannalöndunum og fleiri löndum, en margir munu ekki gera sér nægilega ljóst hver gerbreyting hefur orðið á hugsunarhætti hinnar upprennandi kynslóðar og hver vá er víða fyrir clyrum. Það liggur við, að manni finnist stundum, að við hverju sem er megi búast, en ég verð að játa, að það kom mér óvænt, er ég las grein í einu útbreiddasta blaði Danmerkur, að eftir einn áratug yrði ekki borin virðing fyrir neinu. Og ekki eru nema nokkrar vikur síðan er merkur brezkur gagnrýnandi sagði í blaðaviðtali: Velsœmi er fégráðugum kvikmyndaframleiðendum óþekkt dyggð og með sama áframhaldi verða svið leikhúsanna vettvangur siðleysisins. Á Gestapo- eða nazismatímanum í Þýzkalandi var fólki hent í gas- klefa til útrýmingar. Nú á tímum ræða sumir visindamenn um liknar- dauða sem eitt ráðið til úrlaustnar vegna offjölgunarvandamálsins. 6

x

Rökkur : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.