Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1969, Page 13

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1969, Page 13
Ekki þarf að fara í neinar grafgötur um að hvortveggja er sprottið úr sama jarðvegi og ekki er það jarðvegur mannkærleikans. Og fleira mætti telja eftir að farið var að hverfa frá þeim clygðum, sem eitt sinn voru taldar lífsnauðsyn hverri þjóð, sem veit sitt hlutverli, en eitt sinn var kveðið: Hver þjóð, sem veit sitt hlutverk er helgast afl um heim.. Og nú hverfum við sem snöggvast aftur að því, sem ég vék að í upp- hafi, myndinni, sem ég sá í kvikmyndahúsinu við Strikið, en það var hún, sem hafði þau áhrif á mig, að hugurinn leitaði á slóðir gamalla minninga. Sagan í myndinni er í stuttu máli á þessa leið: Iðnaðarmaður i Kaupmannahöfn, heiðarlegur og vandaður maður, hefir komist í góð efni og getur veitt sér og sínum allt, sem þorra manna nú á dögum er keppikefli. Dóttir hans og konu hans, er að verða stúdent og miklar vonir bundnar við framtíð liennar. língur maður sem varpað hefur af sér viðjum allra dygða, kenmr inn í líf hennar, og fyrr en varir er hún komin í hóp ungs fólks, sem lítur svipuðum eða sömu augum og hann á lífið, ber ekki virðingu fyrir neinu og telur sér allt leylilegt. Hann kernur óboðinn gestur á heimili hennar, skömmu eftir að þau eru farin að vera saman, kemur þar þegar foreldrar hennar hafa efnt til fagnaðar með henni og boðið til námsfélögum henn- ar, en tilefnið, að marki var náð á námsferlinum. í myndinni er hinn ungi maður sá, sem boðar hið nýja lífsviðhorf virðingarleysisins og hömluleysisins, lítur á sig sem Messias, Frelsara — hins nýja tíma, og kallar sig enda svo. í þessu hófi boðar hann hina nýju stefnu, þegar setið er undir borðum. Vín glóir á skálum og postu- línsfötin eru hlaðin krásum. Húsráðendur eru í ekki ósvipaðri aðstöðu og óðalsbóndinn forðum, finna að vá er í lofti — og meira en það, hún er komin inn til þeirra og eitrar andrúmsloftið, en það er ekki tekinn neinn postulínsdiskur og sleiktur, né fluttur neinn reiðilestur, enda væri það hálfri öld of seint. Viðbrögð húsbóndans einkennast af hátt- vísi nútímamannsins, hann aðhefst ekkert, veit heldur ekki hvað gera skal, veitir ekkert viðnám, lyppast niður. I þeim hópi, sem stúlkan er komin í, eru frjálsar ástir í hávegum hafðar á samverustundum, hvort sem fleiri eða færri eru saman, og til þess að kóróna allt saman, hefur hinn nýi Frelsari tekið mynda- vélina í notkun til kvikmyndatöku af öllu, sem fram fer. Það sem gerðist í hófinu verður heimilisföðurnum mikið umhugsunar- efni, er hann sér hve náin tengslin eru orðin milli dóttur hans og piltsins. Honum getur ekki dottið annað vænlegra í hug til bjargar 7

x

Rökkur : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.