Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1969, Side 22

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1969, Side 22
Halldór var þéttari um herðar og sterklegri en aðrir nrenn, sem ég hefi þekkt, að undanteknum Jóhannesi Jósefssyni gfímukappa, en fjörið og snerpan þó meiri en kraftarnir. Og ekki fór Halldór dult með það, að síra Björn frændi hans hefði verið allmiklu sterkari, en þeir reyndu oft með sér. En þess er að geta, að síra Björn var saman rekinn kraftamaður og að sögn með handsterkustu mönnum. Áður en ég vík nánara að kynnum mínum af Halldóri sem drengur og nemandi, vil ég endurtaka eftirfarandi, sem ég hefi áður sagt í lengra máli: Þegar breytingin verður (sbr. það, sem áður var sagt), kemur Halldór að skólanum fullur brennandi áhuga, nýbúinn að afla sér menntunar í Landbúnaðarháskóla Danmerkur, og að kynnast dönskum bændum og búnaðarháttum. Haifdór sá glöggt hvað af hinu marga, er hann kynnti sér erlendis, gat orðið hér til nokkurrar fyrirmyndar, en framar öðru fann hann sárt til þarfarinnar, að vekja hina upprennandi bændur landsins til dáða og athafna. Gamlar, úreltar vinnuaðferðir, allt sleifarlag og deyfð var eitur í hans beinum. Hann vildi nota véla- og liestaflið, þar sem því yrði við komið, og það var ekki minnst vert um forgöngu hans á því sviði. Kynbótatilraunir hans á nautgripastofninum báru góðan árangur. Mjólkurafurðir Hvanneyrarbúsins urðu eftirsótt vara. Hann hófst handa um ræktun fóðurrófna. Baráttu hans fyrir votheysverkun verður lengi minnzt. Menntun hans og reynzlu undir skólastjórastarfið hefi ég minnzt á, en hann hafði marga aðra góða kosti til að bera sem skólamaður og leiðtogi. Hann var þróttmikill og framsækinn, hress í lundu, bjartsýnn, hvetjandi, — það sópaði jafnan að honum, ungir menn hændust að honum og dáðu hann, hann var drengskaparmaður, en ómyrkur í máli um það, sem honum þótti miður fara. Stöku mönnum sárnaði vi ðhann, en nær ávallt greri fljótt um heilt. Allir virtu hann. Flestum þótti vænt um hann. Hann var skýr og skemmtilegur kennari og framúrskarandi búhöldur. Svo mikið orð fór fljótt af honum, að menn fóru þegar að streyma í skólann úr öllum sýslum landsins. Aðsókn og áliti hélt skólinn alla tíð Halldórs sem skólastjóra, þótt aðeins drægi úr aðsókn í bili (vegna aðstreymis að héraðsskólunum, er þeir komu til sögunnar), en hún jókst fljótt aftur. Halldór valdi 16

x

Rökkur : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.