Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1969, Page 29

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1969, Page 29
fagurt. Slíkir menn mega ekki gleymast né aðrir beztu synir þjóðarinnar sem gengnir eru, og um þá, sem mikill styrr stóð, vil ég segja fyrir mitt leyti: Þjóðin á að muna þá eins og þeir voru mestir og beztir. Það var ekki nema steinssnar til húss Bjarnar Jónssonar rit- stjóra, sem enn stendur, milli Vallarstrætis og Austurstrætis. Skrifstofa hans var á neðri hæð hússins sunnan megin og fyrstu minningarnar um hann eru frá sama tíma (kringum aldamótin). Austurvöllur var þá leikvöllur okkar barnanna og ég man, að mér varð snemma tíðlitið á skrifstofugluggana, er kempan gekk þar um gólf fram og aftur og settist svo alla jafna eftir nokkra hríð við skrifborð sitt og tók til við skriftirnar, en enga hugmynd hafði ég um það þá, að þetta var maðurinn, sem hafði að vopni „skarpasta penna“ sinnar tíðar, en myndirnar af mikilmenninu sem voru eins og skuggar, er brá fyrir, þegar inn um gluggana var litið, skýrðust fljótt, er ég var læs orðinn, og var það við- burður hvert sinn, er blöð orðsins snillinga eins og Bjarnar Jóns- sonar og síðar Þórhalls Bjarnarsonar lektors og síðar biskups, komu út (Isafold og Nýtt kirkjublað). Margar eru stundirnar minnisstæðar um Björn, og nefni ég sem dæmi, er hann þakkaði fyrir „hina virðulegu sunnudagsheimsókn“ af svölum forsætis- ráðherrabústaðarins, einnig er hann flutti varnaræðu sína á þingi (vantraustið), og seinast en ekki síst snjallrar ræðu hans af svöl- um Hótel Reykjavíkur, Austurvallar-megin, fyrir minni íslands, en hann hóf hana með því að hafa yfir þetta erindi Gríms: Hún er fögur með fanna kögur um f jalla brún, hamra, gjögur, holt og tún; um nes og ögur óð og sögur og aldna rún, göfug geymir hún. Júnígolan lék um silfurhvítt hárið. Magni þrungin röddin, ávallt sérkennileg og fögur, nú hlý og án nepju, greypti erindið í hug- ann, svo það gleymdist aldrei. 23

x

Rökkur : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.