Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1969, Síða 45

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1969, Síða 45
BLAÐAMANNAFÉLAG ÍSLANDS OG HUGMYNDIN UM STOFNUN „FRÉTTASTOFUÍSLANDS“ i. C23./2. 196S). Eins og ýmsa mun reka minni til samþykkti Blaðamannafélag Islands (í september 1961), að beita sér fyrir stofnun Fréttastofu íslands, eftir að málið hafði verið rætt á fundi í félaginu, en þar hafði Jón Magnússon forstöðumaður Fréttastofu útvarpsins (FÚ) framsögu og færði ýmis rök fyrir því, að það yrði til léttis blaða- Btgáfu og mikils sparnaðar, að ein fréttastofa annaðist öflun frétta fyrir öll blöðin. I Vísi segir um þetta 4. september 1961: „Enn fremur taldi hann, að það myndi verða verkefni slíkrar fréttastofu, að dreifa opin- herum tilkynningum frá ríkisstjórninni og ýmsum opinberum stofnunum og því líklegt, að ríkisvaldið myndi hlaupa undir bagga við stofnun fréttastofu“. Eélagið fól síðan sérstakri nefnd athugun málsins, skilað var ýtarlegu áliti og tillögum, og málið rætt við útgefendur blaða, en Þ®r leiddu ekki til frekari aðgerða, og hefur málið legið niðri um hríð. Það er að sjálfsögðu undir samstarfi margra aðila komið, að Unnt verði að starfrækja hér fréttastofu eins og ráðgert var með tillögunum, en líklegt má þykja, að málið verði tekið upp að nýju fyrr eða síðar, er byrlegar blæs fyrir stofnun siíks fyrirtækis. Nú er það augljóst mál, að rekstur slíkrar stofu nú hlýtur að verða ^Jög dýr, eigi hún að geta fullnægt þeim kröfum, sem til hennar Verða gerðar, en mörgum mun finnast, að það sé ekki vansalaust aÖ slík stofnun skuli ekki vera til í landinu. Ég vil benda á eitt atriði, sem hér að lýtur: 39

x

Rökkur : nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.