Bændablaðið - 06.10.2022, Síða 1
„Ekki í mínum
villtustu draumum“
32-33
18. tölublað 2022 ▯ Fimmtudagur 6. október ▯ Blað nr. 619 ▯ 28. árg. ▯ Upplag 35.000 ▯ Vefur: bbl.is
Myndarlegur fjárhópur á haustbeit í Hænuvík í Patreksfirði. Líklegt er að fallþungi þessara lamba sé minni en dilka sem slátrað var í fyrra, en á öllu landinu
hafa gripir skilað sér rýrari af fjalli en árið 2021. Helstu skýringarnar sé að finna í köldu sumri sem varð til þess að gróður tók ekki almennilega við sér.
Sláturtíð stendur sem hæst um þessar mundir og hafa rúmlega 250 þúsund dilkar farið í gegnum sláturhús landsins. Að meðaltali er fallþunginn 700
grömmum lægri en á sama tíma í fyrra. Minnst þyngdartap er í norðvesturfjórðungi, mest á austur- og norðausturhluta landsins. Einar Kári Magnússon,
yfirkjötmatsmaður hjá Mast, segir að þrátt fyrir þetta sé árið gott í sögulegu samhengi. Mynd / Ástvaldur Lárusson
Feiknarlegur skjálfti á orkuverði
í Evrópu hefur leitt til mikilla
verðhækkana á köfnunarefni.
Bændablaðið setti sig í samband
við íslenska áburðarsala sem
allir voru sammála um að
áburðarverðið héldi áfram að
hækka. Enginn þeirra gat gefið
nákvæma tölu þar sem mikil
óvissa er með þróun mála. Allir
áburðarsalar sögðust hafa gert
samninga við sína birgja um að fá
það magn sem þeir þurfa.
Sú hækkun sem hefur þegar
verið á áburðarverði undanfarin
ár mun ekki ganga til baka. Helsti
drifkrafturinn er verðhækkun á
gasi sem er notað til að framleiða
köfnunarefni í Evrópu. Hráefni eins
og fosfór og kalí hækka líka þar sem
flutningsleiðir hafa lengst eftir að
viðskipti við Rússland lokuðust.
Sprenging leiðslu hefur áhrif
Til að bregðast við þessu hefur
Yara lokað 65% af verksmiðjum
sínum í heimsálfunni sem búa til
köfnunarefni og flutt framleiðslu
niturs til Afríku og Norður-
Ameríku. Elías Hartmann Hreinsson
hjá Sláturfélagi Suðurlands segir að
ekki sé hægt að fá gefið upp neitt
verð á köfnunarefnisáburði erlendis
þessa dagana.
Um leið og fregnir bárust
af sprengingu Nord Stream-
gasleiðslunnar í Eystrasalti komu
fram hækkanir á hráefnum. Þó
svo að lokað hafi verið fyrir
flæði gass í gegnum lögnina fyrir
sprengingarnar, þá er hér með
útilokað að gasflæðið fari í eðlilegt
horf þó svo að stríðinu myndi
skyndilega ljúka.
Yara fékk mest allt sitt kalí
í gegnum Rússland og Hvíta-
Rússland fyrir stríðið. Núna
þarf að flytja það frá fjarlægari
slóðum, s.s. frá norðvesturströnd
Norður-Ameríku, sem hefur leitt
til verðhækkunar. Fosfórinn hefur
hækkað í verði, en ekki eins mikið
og önnur efni.
Elías hjá SS getur ekki svarað
því hvenær verðskráin þeirra verði
birt. Hann segir þó að viðræður við
Yara séu í fullum gangi og SS hafi
tryggt sér það magn sem óskað var
eftir. „Þetta lítur ekki vel út og á
meðan stríðið varir heldur verðið
áfram að hækka.“
Verðhækkun um tugi prósenta
„Það stefnir í að áburður muni hækka
um tugi prósenta. Markaðurinn er
mjög kvikur eins og er og verðið
getur breyst frá viku til viku,“ segir
Lúðvík Bergmann hjá Skeljungi.
Hann segist ekki geta nefnt neina
ákveðna tölu í því samhengi, þar
sem enginn geti séð fyrir þróunina.
„Því nær sem líður að áramótum því
meira vitum við.“
Köfnunarefni hækkar mest en
verð á öðrum áburðarefnum hafi
ekki hækkað eins mikið. Hækkunin
er líka misjöfn eftir því á hvaða
formi köfnunarefnið kemur. Úrea er
til að mynda hlutfallslega ódýrara en
ammoníumnítrat, en það síðarnefnda
er algengasta form köfnunarefnis í
áburði á Íslandi og í Norður Evrópu.
Birgjar halda að sér höndum
Jóhannes Baldvin Jónsson segir
Lífland vera í þreifingum við sína
áburðarbirgja. „Við höfum fengið
vísbendingar um að verðið sé heilt
yfir til hækkunar milli ára – hvar
það endar liggur ekki fyrir,“ segir
hann. Þar sem ammoníumnítrat sé
mikill drifkraftur hækkana vegna
framboðsskorts sé til skoðunar að
auka úrvalið á áburðartegundum
sem byggja á úrefni sem
köfnunarefnisgjafa.
Samkvæmt honum sé erfitt að fá
erlenda birgja til að gefa nákvæmt
verð þar sem markaðurinn haldi
að sér höndum. „Birgjar vilja ekki
liggja með hrávöru í stórum stíl sem
þeir kaupa inn á verði sem óvíst er
hvort hitti í mark þegar markaðurinn
tekur við sér.“
Jóhannes líkir ástandinu núna
við það sem var í fyrravetur, nema
talsvert snúnara og flóknara.
Verður enginn áburðarskortur
„Ef við horfum á heimsmarkaðsverð
þá lítur út fyrir hækkanir miðað við
síðast,“ segir Úlfur Blandon hjá
Fóðurblöndunni.
„Við höfum ekki áhyggjur af því
að það verði einhver áburðarskortur
á Íslandi. Spurningin er bara um
verðið – það er ekki komið í ljós
enn þá. Við erum enn að bíða til að
sjá hvernig þetta þróast.“
Áburðurinn verður dýr
„Okkar birgir sagði að ekkert benti
til annars en hann gæti selt okkur
áburð. Við höfum ekki fengið
staðfesta neina prósentutölu á
verðbreytingum en okkur er sagt
að hann verði dýr,“ segir Einar
Guðmundsson hjá Búvís. Hann
vonast til að fá skýrari mynd á þessi
mál síðar í þessum mánuði. /ÁL
Tugprósenta hækkun á áburðarverði
Landbúnaðarsýningar hafa lengi
notið vinsælda.
Fyrr á tímum voru þær samkomur,
markaður og kaupstefnur sveitafólks
í Evrópu og víðar um heim. Höndlað
var með búfé og matvæli, verkfæri
voru kynnt og seld og fólk dansaði,
duflaði og gerði sér glaðan dag.
Á sýningunum voru lengi og eru
víða enn sýndir gæðagripir en smám
saman hafa landbúnaðarsýningar
orðið meira að kynningum á búvélum
og nýjustu tækjum til landbúnaðar.
Fyrsta landbúnaðarsýningin á
Íslandi þar sem sýnd voru búsáhöld
og landbúnaðartæki var haldin við
Gróðrarstöð Búnaðarfélagsins við
Laufásveg í Reykjavík og í Vatns-
mýrinni árið 1921. Á sýningunni
voru verkfærin reynd og bændum
leiðbeint með notkun þeirra.
Alls voru sýnendur 124 og hátt í
fjórtán hundruð sýningargripir.
Árið 1968 var haldin land-
búnaðarsýning í Laugardalshöllinni
sem var stærsta sýning sem haldin
hafði verið á Íslandi til þess tíma.
Sýningin Íslenskur landbúnaður
verður haldin í
Laugarda ls -
höllinni 14.–16.
október næst-
komandi. Bænda-
samtök Íslands
og Bændablaðið
bjóða gestum
s ý n i n g a r i n n a r
velkomna í bás
B 14. /VH
22
Rekstur auðveldari
á stærra búi
Landbúnaður í
hundrað og eitt ár
Blaðauki fylgir