Bændablaðið - 06.10.2022, Page 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2022
100% organic snyrtivörur Benja næra bæði líkama og sál.
Myndir / Aðsendar
LÍF&STARF
Hér verður haldið fram með kveðskap
Jóns Ingvars Jónssonar, sem lést
í ágústmánuði sl. Nóg er til eftir
hann sem betur fer. Eitt aðalsérkenni Jóns
Ingvars var fádæma rímleikni, og hreint
ótrúlegt skopskyn. Í síðasta þætti fengu
lesendur sýnishorn af „Spakhendum“ Jóns.
Byrjum á smá viðbót:
Hafi prestur hægðateppu
hiklaust búast má við kreppu.
Borði gamall biskup kleinu
breytir það víst ekki neinu.
Þegi maður þunnu hljóði
þá er hann í öðru ljóði.
Alls kyns orðaleikir og útúrsnúningar voru
Jóni Ingvari sérlega tamir. Undir sérstöku
„háttatali“ orti Jón Ingvar:
Aldarháttur:
Lífið allt er unaðslegt og algjör veisla.
Töfraorðið nú er neysla.
Sofandaháttur:
Svaf ég vært og vel mig dreymdi í vorsins skímu,
orti á meðan eina rímu.
Aulaháttur:
Er hrein og fögur Hugrún lá í heitu baði,
kom ég mér á Kjarvalsstaði.
Boðháttur:
Þessi kokteill þykir mér nú þurr og skrýtinn.
Best að fá sér bara einn lítinn.
Þvergirðingsháttur:
Til iðju verð ég eflaust seint af öðrum dreginn,
á móti öllu einhvern veginn.
Lýsingarháttur hinn forni:
Grænn og fagur, frjór og víður fjörður Skaga,
unaðslegur alla daga.
Lýsingarháttur hinn nýi:
Lýsing borgar bílinn svo þú blússa megir.
Opnast þér nú allir vegir.
Nafnháttur:
Tómas, Pétur, Trausti, Gunnar, Tryggvi,
Orri, Heimir, Friðbert, Halldór, Snorri.
Málsháttur:
Trauðla stendur teinrétt lengi tré án róta.
Mergjar til skal beinið brjóta.
Dólgsháttur:
Brjóstamikla beðjan fríða, bossastinna,
lát mig milli læra þinna.
Viðvaningsháttur:
Það er svaka skrýtið hvernig sumir byrja
sem kunna engar vísur að kyrja.
Limrur orti Jón Ingvar í blaðavís. Hér
er smá sýnishorn:
Að fá hana Fanndísi úr
flíkum var ókleifur múr.
Hún sagði: “Ó vei!
Ég svík karl minn ei
og svo er ég líka á túr.“
Á Bíldudal sagði hann Bæring:
„Það besta gegn hungri er næring.“
Með belgmikinn kvið
hann bætti svo við:
„Ég held að ég fái mér hræring.“
Hann Hannes vor hatar að slóra
og hamast því minnst á við fjóra.
Hann sló inn í vörd
sá slóttugi nörd
um sexhundruð síður frá Dóra.
Um fjölmiðlafrumvarpið orti Jón þann
13. maí 2004:
Ég trúi því tæpast um varp-
tímann menn samþykki frumvarp
og komist á legg
eitt kasúldið egg
sem ríkisstjórn ráðvillt og hrum varp.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
306MÆLT AF
MUNNI FRAM
Smáframleiðendur víða að af landinu kynntu vörur sínar á bændamarkaði
sem haldinn var á Garðatorgi í Garðabæ þann 1. október sl. í tilefni af
Uppskeruhátíð bæjarins. Verslunin Me&mu var meðal þeirra sem stóðu
að markaðnum og var þar hægt að smakka og skoða íslenskt framleiddar
mat- og handverksvörur. Ekki var annað að sjá en gestir hátíðarinnar hafi
kunnað að meta vörurnar beint úr héraði.
Fullt var út úr dyrum í nýrri verslun Líflands, sem opnuð
var á Austurvegi 69 á Selfossi laugardaginn 1. október
sl. Í boði voru opnunartilboð, auk veitinga fyrir gesti
og gangandi. Þá mætti Karlakór Hreppamanna og söng
nokkur lög. „Við munum bjóða upp á fjölbreytt úrval
af búrekstrar- og landbúnaðarvöru, svo sem áhöldum,
hreinlætisvörum, fóðri og bætiefnum. Hjá okkur er
einnig breitt úrval af girðingarefnum, meindýravörnum,
gæludýravöru, útivistarfatnaði og allt til hestamennsku,
svo sem reiðfatnaður, skeifur, fóður, reiðtygi og
undirburður,“ segir Guðbjörg Jónsdóttir, verslunarstjóri
á Selfossi. Með henni starfa þær Sjöfn Finnsdóttir og
Guðrún Margrét Valsteinsdóttir. Verslanir Líflands eru
nú orðnar sex talsins. / MHH
Bændamarkaður
í Garðabæ
Vörur Kikk&Krása, Kúrekanammi kitluðu bragðlaukana.
Handgerðu hágæðakryddin frá Mabrúka vöktu mikla hrifningu.
Sérvöruverslunin Me&Mu býður upp á matvæli úr hágæða íslensku hráefni.
Lífland opnar
verslun á Selfossi
Karlarnir í Karlakór Hreppamanna mættu í lopapeysunum sínum og sungu
nokkur lög við góðar viðtökur viðskiptavina verslunarinnar.
Forstjóri Líflands, Þórir Haraldsson, vippaði sér upp á
stól á opnunardaginn og ávarpaði gesti.
Guðbjörg Jónsdóttir verslunar-
stjóri, sem er mörgum sunn-
lenskum bændum kunn.
Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtakanna, lét sig ekki
vanta við opnunina en hér er hann með frænku sinni, Rögnu
Gunnarsdóttur, sem rekur Baldvin og Þorvald með Guðmundi,
manni sínum. Myndir / MHH