Bændablaðið - 06.10.2022, Qupperneq 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2022
Það ríkti mikil spenna í vor um
hver yrði Sleipnisbikarhafinn á
Landsmóti.
Þegar búið var að reikna út nýtt
kynbótamat rétt fyrir Landsmót
kom í ljós að tveir hestar voru efstir,
jafnir að aðaleinkunn. Það þurfti
því að skera úr á aukastöfum en
Sleipnisbikarhafinn 2022 var með
124 stig í aðaleinkunn kynbótamats
og 53 sýnd afkvæmi er Sjóður
frá Kirkjubæ.
Sjóður er undan Sæ frá Bakkakoti
og Þyrnirós frá Kirkjubæ sem var
undan Hróðri frá Refsstöðum og
Andreu frá Kirkjubæ. Ræktandi
Sjóðs er Ágúst Sigurðsson, oft
kenndur við Kirkjubæ, en eigandi
er Alexandra Hoop. Alex er frá
Liechtenstein en eftir að íslenski
hesturinn fangaði hjarta hennar hefur
hún varið miklum tíma hér á landi.
Alex eignaðist Sjóð þegar hann var
átta vetra gamall.
Örlögin gripu inn í
„Þetta er skemmtileg saga. Á þessum
tíma var ég í miklu samstarfi við
Guðmund Björgvinsson. Hann átti
sæti í íslenska landsliðinu fyrir næsta
heimsmeistaramót og var að leita sér
að hesti fyrir það verkefni. Ég var
að aðstoða hann í því og eftir mikla
leit áttuðum við okkur á því að þessi
hestur væri beint fyrir framan okkur
í hesthúsinu, en það var Sjóður. Það
fór svo að við keyptum hann. Þegar
kom að heimsmeistaramótinu var
erfitt að finna réttan kaupanda og
mér fannst of mikil áhætta að fara
með hann óseldan út.“
Kannski voru það örlögin sem
gripu þar inn í. Þegar farið er yfir
sögu Sjóðs spilar Guðmundur
þar stóran þátt en hann tamdi og
þjálfaði hestinn í mörg ár. Hann
kom fyrstur fram á honum í
kynbótasýningu þegar Sjóður var
fjögurra vetra gamall á Landsmóti
á Vindheimamelum 2011 þar sem
hann stóð efstur.
Kemur reglulega fram
„Gummi hefur átt stóran þátt í
farsælum ferli Sjóðs í gegnum
tíðina. Ekki bara þegar hann kom
fram fjögurra vetra heldur líka eftir
það. Hann sýndi hann á Landsmóti
2012 og 2014 og er alltaf með hann
í hópi topp stóðhesta á landinu.
Hann kom fram með hann í
keppni og hefur þar alltaf verið í
A-úrslitum. Hann á því stóran þátt í
velgengni hans og hafði áhrif á það
hvað Sjóður hélt vinsældum sínum
sem stóðhestur.“
Nú í seinni tíð hefur Teitur
Árnason verið með hestinn og komið
m.a. fram með hann í A-flokki á
Landsmóti 2018 þar sem hann endaði
í a úrslitum. Sjóður hefur alltaf verið
látinn koma reglulega fram, ef ekki í
keppni þá á sýningum og jafnvel með
afkvæmum. Hann hefur alltaf haldið
vinsældum sem stóðhestur en hann
er að fá eitthvað í kringum 40 til 50
merar á hverju ári sem Alexöndru
finnst hæfilegur fjöldi hjá hestinum.
„Ég vona að hann haldi áfram
vinsældum sínum. Hann er að
skila góðu geðslagi. Þessu geðslagi
sem hann sjálfur býr yfir. Þú getur
algjörlega stýrt spennustiginu.
Ef þú biður hann um afköst þá
skilar hann þeim en hann er líka alltaf
tilbúinn til að slaka þegar hann er
beðinn um það.
Virkilega auðfús hestur sem ég
myndi treysta fyrir börnum.“
Sjóður mun halda áfram í ræktun
hér á landi en Alex segir að hesturinn
muni aldrei yfirgefa landið.
Snýst ekki um peninga
„Hann mun vera hjá mér hér á
Íslandi. Ég hef fengið nokkur tilboð
í hann í gegnum árin en alltaf sagt
nei. Nú sé ég ekki alveg tilganginn.
Hann er orðinn 15 vetra og mér
finnst það ekki sanngjarnt að senda
hann út í þennan hita.
Þetta snýst líka ekki um
peninga eða sölu, þetta snýst
um íslenska arfleifð og að leyfa
íslenskum hrossaræktendum að
njóta hans. Besta afkvæmið hans
er líka á meginlandinu og er fulltrúi
hans þar.“Vitnar hún þar í Kveik frá
Stangarlæk sem sló í gegn á Lands-
mótinu í Reykjavík 2018.
Hæst dæmdi klárhestur heims
með 10 fyrir tölt og samstarfsvilja.
Sjóður hefur verið að skila
geðprýðishrossum með gott tölt, eða
eins og segir í afkvæmaorðum hans:
„Sjóður gefur fram falleg hross sem
fara vel í reið, þau eru þjál og traust
með góðan vilja.“
-En átti Alex von á því að hún
myndi standa inni í hringvellinum
á Landsmótinu og taka við
Sleipnisbikaranum, æðstu viður-
kenningu sem veitt er í íslenskri
hrossarækt?
„Nei, alls ekki. Ég hefði ekki einu
sinni getað ímyndað mér það. Þegar
hann hlaut afkvæmaverðlaun í fyrra
þá hugsaði ég og jú, það gæti alveg
verið möguleiki að hann tæki við
Sleipnisbikarnum á Landsmótinu.
Það er bara búið að vera frábært að
eiga hest eins og hann.
Hann er svo ljúfur og indæll
stóðhestur. Allur þessi árangur er
bara aukalega við það. Ekki í mínum
villtustu draumum hefði ég ímyndað
mér þetta.“
Sjóður er nú kominn í frí eftir
að hafa verið að sinna hryssum í
sumar. Síðan fer hann í þjálfun hjá
Teiti og eflaust koma þeir kannski
fram á einhverri sýningunni í vetur
eða vor. „Það er svo mikilvægt að
halda þeim í léttri þjálfun, bara upp
á heilsu. Kannski þegar ég er farin
að hafa meiri tíma til að ríða út tek
ég hann til mín í Dalsholt og hef
hann sem reiðhest hjá mér, hann er
frábær reiðhestur.”
HROSS&HESTAMENNSKA
Hulda Finnsdóttir
hulda@bondi.is
Afkvæmaverðlaun:
„Ekki í mínum villtustu draumum“
– Alexandra Hoop er eigandi Sleipnisbikarhafans Sjóðs frá Kirkjubæ
Frá afhendingu Sleipnisbikarsins á Landsmóti hestamanna 2022. Ræktendur Sjóðs er Ágúst Sigurðsson, sem heldur á bikarnum og Unnur Óskarsdóttir
er honum við hlið. Alexandra Hoop heldur á myndinni. Teitur Árnason situr Sjóð. Myndir / Aðsendar
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
VARAHLUTIR Í
KERRUR
2012
2021
Í seinni tíð hefur Teitur Árnason verið með hestinn í þjálfun og kom m.a.
fram með hann í A-flokki á Landsmóti hestamanna 2018.