Bændablaðið - 06.10.2022, Síða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2022
Samkomur og hátíðir þar sem fólk
kemur saman til að sýna sig og sjá
aðra hafa alltaf notið vinsælda.
Iðulega hafa slíkar samkomur
verið upplagðar til viðskipta,
kaupa og selja. Sveitahátíðir eiga
langa sögu og þar voru oft til sýnis
og sölu gripir, ávextir jarðarinnar,
amboð og önnur verkfæri.
Fyrsta skipulagða landbúnaðar-
sýningin var haldin í Lankaskíri á
Bretlandseyjum árið 1768 og árið
1807 var á sýningu í Pittsfield
í Massachusetts í Bandaríkjum
Norður-Ameríku keppt fyrst í
rúningi sem skemmtiatriði.
Árið 1921 var fyrsta landbúnaðar-
sýningin á Íslandi þar sem sýnd
voru búsáhöld og landbúnaðartæki
og var hún haldin við Gróðrarstöð
Búnaðarfélagsins við Laufásveg í
Reykjavík og í Vatnsmýrinni.
Landbúnaðarsýningar voru
lengi og eru víða enn sýningar á
gripum en smám saman hafa þær
orðið meira sýningar á búvélum
og nýjustu tækjum.
Landbúnaðarverkfæri í sinni
fjölbreyttustu mynd
Tilgangur sýningar 1921 var að
sýna þess tíma landbúnaðarverkfæri
í sinni fjölbreyttustu mynd og
sýningin nefnd Búsáhaldasýningin.
Á sýningunni voru verkfærin reynd
og bændum leiðbeint með notkun
þeirra. Alls voru sýnendur 124 og
hátt í fjórtán hundruð sýningargripir.
Meðal innlendra verkfæra sem
sýnd voru var skurðarpáll, sópljár,
tvær gerðir af dengingarvélum
og hverfisteinum og taðvél en af
innfluttum vélum voru plógar og
sláttuvélar áberandi. Auk minni
garðyrkjuverkfæra, girðingarefnis,
klifbera, aktygi fóðruð með gæru
og færeysk sviðusköft svo dæmi
séu tekin.
Á sýningunni kynnti A/S Norsk
Sprængstofindustrie sprengiefni
til notkunar í landbúnaði,
Gröftedinamit, Landbruks-Stjeme-
dinamit og Landbruks-Sikrit.
Í Búnaðarritinu 1922 segir:
„Tvær síðasttöldu tegundirnar eru
aðallega ætlaðar til að sprengja grjót,
en „Gröftedinamit“ til skurðgraftar,
eins og nafnið bendir til.“
Nokkuð af sprengiefninu var
til sýnis og var notkun þess sýnd í
Vatnsmýrinni meðan á sýningunni
stóð og á Vífilsstöðum eftir að
henni lauk. Einnig var einhverju
af sprengiefni útbýtt meðal
sýningargesta, víðs vegar að af
landinu, sem höfðu sérstakan áhuga
á að reyna það.
Starfshættir landbúnaðarins
um miðja síðustu öld
Sveinn Björnsson, forseti Íslands, hóf
ávarp sitt á Landbúnaðarsýningunni
1947 með því að segja: „Íslenska
þjóðin hefur meginhluta ævi sinnar
verið bændaþjóð. Þjóð sveita- og
sjávarbænda. Í skaut moldar og miða
sótti hún framfæri sitt.“
Í sýningarskrá segir meðal annars
að hugmyndin með sýningunni
sé að gefa nokkurt yfirlit um
þróun búnaðarmála síðustu ára
og sérstaklega var leitast við að
bregða upp myndum af starfsháttum
landbúnaðarins á þeim tíma.
Sýningunni var í megindráttum
skipt í jarðræktardeild, deild eldri
búsáhalda, búfjársýningar deild,
skógræktar- og sandgræðslu-
deild, garðyrkjudeild,búfjársjúk
dómadeild, mjólkur- iðnaðardeild,
kjötiðnaðardeild,heimilisiðnaðar
deild, skrifstofan Íslensk ull, Íslenskur
hör, deild teiknistofu landbúnaðarins,
grávörudeild og hlunnindadeild.
Auk þess sem Samband íslenskra
samvinnufélaga og Reykjavíkurbær
voru með sérdeildir og fjöldi
fyrirtækja með sérbása.
Til að fjármagna sýninguna var
meðal annars efnt til happdrættis
þar sem í vinning voru „Farmal A
- dráttarvél með sláttuvél, Jeppbíll
yfirbyggður og reiðhestur“.
Sýningin, sem Búnaðarfélag
Íslands stóð fyrir, var haldin í stórum
flugvélaskála og útisvæði umhverfis
hann vestast á Reykjavíkurflugvelli
í nágrenni við Tívolí sem þá var í
Vatnsmýrinni.
Í aðfaraorðum sýningarskrár
sýningarinnar segir Steingrímur
Steinþórsson, þáverandi búnaðar-
málastjóri, meðal annars að með
sýningunni „ ... viljum við benda á þátt
landbúnaðarins í þjóðarbúskapnum,
Sá þáttur er oft, vegna ókunnugleika
og vantandi upplýsinga talinn miklu
minn en rétt er.“
Vel tókst til með sýninguna og gestir
yfir 60 þúsund. Næstu árin var ráðgert
að halda aðra slíka sýningu í Reykjavík
en það dróst á langinn.
Selfoss 1958
Haldin var Landbúnaðarsýning á
Selfossi 1958 í tilefni af 50 ára afmæli
Búnaðarsambands Suðurlands.
Sýningin var vel sótt en fyrstu gestir
voru Hermann Jónasson forsætis- og
landbúnaðarráðherra, forstöðumenn
sýningarinnar og formaður
Búnaðarsambands Suðurlands, með
frúm sínum.
Fyrstur tók til máls Hjalti
Gestsson, ráðunautur Búnaðar-
sambands Suðurlands. Minntist hann
brautryðjenda um landbúnaðarmál
og bauð gesti velkomna.
LÍF&STARF
Landbúnaðarsýningar á Íslandi:
Þróun landbúnaðar í 101 ár
Aðkoma Landbúnaðarsýningarinnar 1947 sem haldin var í stórum flugvélaskála og útisvæði umhverfis hann vestast á Reykjavíkurflugvelli.
Myndir á þessari síðu / Myndasafn Bændasamtaka Íslands
Blómabás Landbúnaðarsýningarinnar 1947.
frh. á bls. 30a
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Sýningarbás skógerðarinnar á Landbúnaðarsýningunni 1947.
Sýningarskrá Íslensks landbúnaðar 2018 og
Landbúnaðarsýningar Selfoss árið 1978.
Frá sýningunni Íslenskur landbúnaður í Laugardalshöllinni 2018. Mynd / Hörður Kristjánsson