Bændablaðið - 06.10.2022, Qupperneq 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2022
Á Signýjarstöðum í Hálsasveit
tóku ungu hjónin Birna Rún
Ragnarsdóttir og Arnþór Páls
son við fjölskyldubúi þess
síðarnefnda.
Þar er kúabú með nálægt 65
mjólkandi kúm og 25 kindum. Í
vor stukku þau á óvænt tækifæri
þegar nágrannajörðin Refsstaðir
fór á sölu. Með þeim kaupum
hefur búreksturinn nærri þrefaldast
og mjólkurkýrnar orðnar 144 eftir
sameiningu. Þó þau segjast aldrei
hafa dreymt um að verða svona
stórir bændur þá segja hjónin að
allur rekstur hafi orðið auðveldari
með þessum breytingum.
Arnþór er uppalinn á Signýjar-
stöðum og Birna Rún er frá
Akranesi. Fyrir nokkrum árum
ákváðu þau að taka við býlinu af
Páli Herberti Jónassyni og Svandísi
Ástu Þorsteinsdóttur, foreldrum
Arnþórs.
„Ég vildi leyfa pabba að klára
að vera í búskap eins lengi og hann
vildi,“ segir Arnþór, en í sjö ár áður
ráku ungu hjónin hótelið í Reykholti.
Þegar Arnþór lofaði pabba sínum að
hann tæki við, ákvað Páll að halda
áfram að fjárfesta í búinu og bæta
aðstöðuna. Í því fólst meðal annars
að setja upp mjaltaþjón.
Voru tilbúin þegar kallið kom
Þar sem báðir aðilar voru búnir að
undirbúa sig fyrir kynslóðaskipti
í nokkur ár, gátu Arnþór og Birna
stokkið til árið 2020 þegar Páll varð
á tímabili heilsulítill. Þau sögðu upp
störfum sínum og hófu búskap á
Signýjarstöðum.
Þar með gat Páll, sem var að nálgast
sjötugt, tekið því rólega. „Hann er
samt enn þá á fullu í búrekstrinum,“
segir Arnþór.
„Það var mun auðveldara
líf að vera hótelstjóri en bóndi,
peningalega séð. Í Reykholti vorum
við í íbúð á vegum Íslandshótela og
við lifðum mjög þægilegu lífi. Við
hefðum getað gert nákvæmlega
það sem við vildum.
Ef við hefðum viljað kaupa
okkur bíl þá hefðum við nánast
getað gert það án mikillar
umhugsunar,“ segir Arnþór. Þau
vildu hins vegar gerast bændur
og var ákvörðunin auðveld þegar
kallið kom.
Vinnutími ekki allt
Þó svo að vinnutíminn sé ekki
frá klukkan átta til fjögur þegar
starfað er við landbúnað þá er
það ekki allt. Búskapur krefst
mikillar viðveru en samt segjast
Arnþór og Birna hafa meiri tíma
til að sinna fjölskyldunni og öðrum
hugðarefnum.
„Okkur líður miklu betur
andlega sem bændur en yfirmenn
á hótelinu. Ef þig langar til að
verða bóndi þá skaltu stökkva á það
og láta dæmið ganga upp,“ segir
Arnþór. „Ég er alinn upp í sveit
og ég vil gefa börnunum mínum
tækifæri á að alast líka upp í sveit.
Mér finnst það viss lúxus að starfa
við að umgangast skepnur.“
Arnþór myndi ekki velja annað,
jafnvel þótt honum væru boðin
tíföld laun. „Okkur hefur sjaldan
liðið jafn vel og eftir að við
urðum bændur.“
Lítill kvóti – þungur rekstur
Fjármögnunarhliðin er eitt erfiðasta
skrefið þegar ungt fólk er að fara í
landbúnað. Sem bændur þurfi þau
að hugsa miklu betur um peninginn
og allar fjárfestingar krefjist mikillar
yfirlegu. Með búið á Signýjarstöðum
eitt og sér var reksturinn nokkuð
þungur, sérstaklega þar sem þau
vantaði kvóta. Þrátt fyrir að hafa
reynt að láta kýrnar mjólka sem
minnst gátu þau lent í því að
vera búin með framleiðsluréttinn
í október. Þar með drógust
tekjurnar saman síðustu mánuði
ársins og róðurinn þyngdist. Eins
og kvótamarkaðurinn er núna er
erfitt að komast yfir greiðslumark
og sáu þau fram á að vera með of
lítinn kvóta næstu árin.
Fjósið á Signýjarstöðum er orðið
gamalt og er búið að byggja oft við
það. Elsti hluti fjóssins er frá sjötta
áratugnum og hefur verið byggt við
það oft síðan þá.
LÍF&STARF
bondi@byko.is
Stöðluð stálgrindarhús
Stærðir: 80m², 150m², 250m² og 350m²
Stálgrindin er heitgalvaniseruð og er
sérsmíðuð fyrir íslenskar aðstæður. Húsin
standast mestu snjó-og vindálagskröfur
sem gerðar eru í byggð á Íslandi og henta
því sem geymslu-og vélaskemmur í öllum
landshlutum. Húsin eru klædd 60mm PIR
yleiningum á veggi og 80/125mm yleiningum á
þök. Mögulegt er að velja liti á klæðningarnar.
Húsunum fylgja allar nauðsynlegar teikningar
til að fá byggingarleyfi ásamt teikningum
af grunni og vinnuteikningum. Einnig fylgir
keyrsluhurð, einn gluggi og tvær gönguhurðir.
Reyklosunargluggar eru á þaki sem hleypa
inn birtu.
á hagstæðu verði
Borgarfjörður:
Rekstur auðveldari á stærra búi
– Þrátt fyrir meiri skuldsetningu eru fjárhagsáhyggjur minni, segja ungir bændur á Signýjarstöðum og Refsstöðum
Unga fjölskyldan á Signýjarstöðum. Arnþór Pálsson, fæddur 1986, og Birna Rún Ragnarsdóttir, fædd 1989, ásamt
börnum sínum, Ragnari Páli, fimm ára og Rúnari Inga, þriggja mánaða. Myndir / ÁL
Á Signýjarstöðum var kúabú með 65 kúm. Í vor sameinaðist það Refsstöðum
þar sem voru í kringum 90 kýr. Eftir sameininguna er þetta orðið með stærri
búum og framleiðslurétturinn nálægt 750 þúsund lítrum.
Fjósið á Refsstöðum er nýlegt, byggt samkvæmt öllum nútímakröfum og
með tvo mjaltaþjóna.
Okkur hefur sjaldan
liðið jafn vel og eftir að
við urðum bændur ...“
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
- Framhald handan blaðaukans