Bændablaðið - 06.10.2022, Page 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 2022
Árið 2020 voru tímamót í
íslenskum sjávarútvegi þegar
geirinn undirritaði stefnu sem
nefnist „Ábyrgur sjávarútvegur
í sátt við umhverfi og samfélag.“
Stefnan, sem
er undir forystu
Samstaka fyrir-
tækja í sjávar-
útvegi (SFS),
byggir á heims-
markmiðum Sam-
einuðu þjóðanna.
Með undirritun-
inni skuldbinda
fyrirtækin sig til
að vinna samkvæmt stefnunni sem
skipt er í þrjá meginhluta: bæta
hringrásina, lágmarka sótsporið og
efla orkunýtingu.
Í kjölfar undirritunar var gerð
krafa um að fyrirtækin myndu auka
gagnsæi og birta upplýsingar í formi
samfélags- og umhverfisskýrslna.
Það er von SFS að öll fyrirtæki innan
vébanda þess skrifi undir stefnuna.
Nú, tveimur árum eftir
undirritunina, er áhugavert að
glugga í umhverfisskýrslur sjávar-
útvegsfyrirtækjanna sem skrifuðu
undir samkomulagið með SFS
árið 2020. Upplýsingum um
sjálfbærnistefnu fyrirtækjanna var
einnig safnað með samtölum við
stjórnendur þeirra.
Skýrt markmið umhverfisskýrslna
Brim var fyrst íslenskra sjávar-
útvegsfyrirtækja til að birta
samfélagsskýrslu árið 2018.
Síðan þá hefur orðið mikil
hugarfarsbreyting í átt að sjálfbærni
í íslenskum sjávarútvegi.
Markmið umhverfisskýrslna
er að gera grein fyrir öðrum en
fjárhagslegum þáttum fyrirtækja.
Þar vegur þyngst sjálfbærni,
mannauðsmál, vistsporið og
samfélagsleg ábyrgð.
Að útbúa umhverfisskýrslu
er góð leið til að skýra fyrir
hluthöfum og almenningi hvert
framlag fyrirtækisins er til
almennra framfara og umbóta í
sjálfbærni. Þessi þróun, að útbúa
sjálfbærniskýrslur, snýst um að
hugsa fram í tímann. Rekstraraðilar
sem horfa til framtíðar eru líklegri
til að hlúa að nýsköpun sem leiðir
af sér arðbærari verkefni.
Í skýrslunum er kolefnisspor
fyrirtækja mælt og þar eru gerðar
ráðstafanir til að draga úr sótspori
fram í tímann. Með þessu sparast
fé og nýjar hugmyndir verða til.
Eitt af nýsköpunarverkefnum Brim
árið 2021 var að hanna og innleiða
smáforrit þar sem starfsfólk pantar
olíu í skipin í gegnum farsíma.
Kolefnisspor (CO2) er skráð
beint í umhverfisgagnagrunn
fyrirtækisins þar sem stjórnendur
geta fylgst með nýtingu eldsneytis
á betri hátt en áður.
Annað gott dæmi um nýsköpun
er skrúfan í Breka, nýjum
togara Vinnslustöðvarinnar í
Vestmannaeyjum. Breki er með
4,7 metra skrúfu í þvermál í stað
rúmlega 3 metra eins og algengt er
fyrir skip í þessum stærðarflokki.
Þar sem um 80% af allri orkunotkun
skips fer í að knýja skrúfuna þá
verður 30-40% meiri olíusparnaður
með þessari skrúfu.
Umhverfisskýrslur auka
verðmætasköpun
Sjálfbærni í sjávarútvegi snýst
ekki eingöngu um að mæla
mengun heldur framfarir. Í dag
þurfa allir aðilar í virðikeðjunni
að taka ábyrgð og fylgja stefnu í
sjálfbærni. Markmiðið er að hlúa
að náttúruauðlindunum en jafnframt
auka arðsemi fyrirtækjanna sem
starfa í greininni.
Aukin krafa er frá erlendum
neytendum. Þeir vilja í ríkari
mæli vita hvert kolefnisspor
vörunnar er og hvort hún sé veidd
með sjálfbærum hætti. Þetta eru
kröfuharðir neytendur sem vilja
fá upplýsingar um rekjanleika og
aðbúnað starfsfólks. Með því að
birta umhverfisskýrslur er verið að
svara erlendum neytendum með
áhrifaríkum hætti. Það má því segja
að umhverfis- og sjálfbærnisskýrslur
séu hluti af markaðssetningu.
Án þessara upplýsinga verður
markaðssetningin fátæklegri og það
verður erfiðara að fá hærra verð fyrir
vöruna á erlendum mörkuðum.
Umhverfisvænt rafmagn
í stað olíu
Í dag bjóða nær allar hafnir í
kringum landið upp á landtengingar
og notkun á þeim fer vaxandi
samkvæmt RARIK. Langflest
fiskiskip tengjast rafmagni þegar
þau eru í höfn. Hafnarfjarðarhöfn
er fyrsta höfnin til að bjóða upp
á öfluga rafmagnslandtengingu
þar sem skip geta fengið allt að
1,2MW tengingu.
Síldarvinnslan hefur tekið í gagnið
búnað þar sem uppsjávarskipin eru
tengd við rafmagn á meðan þau landa.
Gert er ráð fyrir að þessi aðgerð
spari um 300 þúsund lítra af olíu
á ári. Stærsta aðgerð Síldarvinnsl-
unnar til að draga úr losun gróður-
húsalofttegunda er raforku-
væðing í fiskimjölsverksmiðjum
fyrirtækisins.
Í dag er verksmiðjan í Neskaup-
stað alfarið knúin með rafmagni
og olía er eingöngu notuð sem
varaafl. Sem dæmi þá notuðu
fiskimjölsverksmiðjurnar 18 milljón
lítra af olíu árið 2003. Árið 2021
var þessi tala komin í 1,4 milljónir
lítra af olíu.
Brim hefur sett sér það markmið
að auka notkun á landrafmagni til
skipa þegar þau koma til hafnar. Árið
2020 jókst notkun á landrafmagni
hjá Brim um 10,5%. Fór úr 571
MWh í 631 MWh. Félagið gerir ráð
fyrir að auka notkun á landrafmagni
um 10-20% fram til ársins 2025.
Sjórinn tekur ekki endalaust við
Með því að safna saman og skrá
stórar og smáar upplýsingar úr
rekstrinum um umhverfis-, félags- og
stjórnarhætti sjávarútvegsfyrirtækja
eru félögin að setja sér markmið um
að gera betur á þessu sviði. Með
þessu hagnast allir. Fyrirtækin ná
meiri arðsemi á sama tíma og hafið
nýtur góðs af betri umgengni.
Lengi tekur sjórinn við er gamalt
íslenskt máltæki sem nú hefur snúist
í andhverfu sína. Meðvitund okkar
um endurnýtingu á plasti og flokkun
sorps hefur tekið gríðarlegum
breytingum á undanförnum árum.
Þessi þróun, að sýna samfélagslega
ábyrgð í verki, mun halda áfram
sem mun verða öllum er starfa í
sjávarútvegi mikið heillaspor.
Sjálfbærni sparar fé
Hér áður fyrr var oft talað um að
fyrirtæki hefðu ekki efni á því að
vera græn. Því fylgdi kostnaður
sem væri erfitt að réttlæta. Í dag
hefur þetta viðhorf breyst. Aukin
sjálfbærni verðlaunar fyrirtæki.
Nýlegt dæmi er útgáfa blárra
skuldabréfa hjá Brim. Samkvæmt
sjálfbærniskýrslu Brim er það fyrsta
sjávarútvegsfyrirtækið í heiminum
til að gefa út blá skuldabréf. Þau
fyrirtæki sem sýna sjálfbærni með
mælanlegum árangri eru því líklegri
en önnur fyrirtæki til að fjármagna
sig á betri kjörum.
Hjá Brim eru umhverfismálin
og fjárhagslegur ávinningur
tengd saman. Þar er talað um
að sjálfbærnin lækki kostnað,
fjölgi tekjumöguleikum og ýti
undir hagræðingu í fyrirtækinu.
Á þennan hátt er sjálfbærni og
hagræðingu tvinnað saman inn í
stefnu fyrirtækisins.
Sjávarútvegsfyrirtæki rækta skóg
Brim hefur náð umtalsverðum árangri
þegar kemur að kolefnislosun. Á 7
ára tímabili hefur fyrirtækið náð að
lækka kolefnislosun fyrirtækisins
um rúm 7%, fór úr 71.688 tCO2 árið
2015 í 66.965 tCO2 árið 2021.
Hjá FISK Seafood á Sauðárkróki
er stefnt að því að félagið verði
kolefnishlutlaust árið 2040. Þetta
er metnaðarfullt markmið sem á að
nást með því að flokka allan úrgang,
minnka urðun, skipta út kælimiðlum,
draga úr notkun jarðeldsneytis
og kolefnisjafna reksturinn með
skógrækt. Eskja á Eskifirði hefur
samið við Skógræktina um að planta
80.000 plöntum í landi jarðarinnar
Freyshóla á Fljótsdalshéraði. Með
þessu markar Eskja sér metnaðarfulla
og trúverðuga stefnu út frá ábyrgri
kolefnisjöfnun sem mun styðja við
vegferð félagsins í átt að framtíðar
kolefnishlutleysi.
Síldarvinnslan stefnir að því að
kolefnisjafna hluta af sinni starfsemi
með skógrækt. Félagið tilkynnti í
upphafi þessa árs að það hefði
keypt jörðina Fannardag þar sem
stefnt er að því að hefja skógrækt á
næstunni. Markmið félagsins er að
gera Fannardal að eftirsóknarverðu
útivistarsvæði sem allir geti notið.
Samfélagsleg ábyrgð í
samningum við birgja
Í dag hafa fá fyrirtæki í sjávarútvegi
sett ákvæði um samfélagslega
ábyrgð og sjálfbærni í samningum
við birgja. Hjá Eskju er það markmið
að eiga reglulegt samtal við birgja
þar sem farið er yfir viðeigandi ferla
til að tryggja að birgjarnir framfylgi
lögum og reglum þegar kemur að
umhverfismálum, félagslegum
þáttum eða stjórnarháttum.
Gera má ráð fyrir að breyting
verði á þessu á næstu árum.
Fyrirtæki í sjávarútvegi munu
gera þá kröfu að birgjar sýni
samfélagslega ábyrgð í verki.
Birgjar sem ekki hafa skýra stefnu
í sjálfbærni eru líklegir til að missa
markaðsforskot sitt til fyrirtækja
sem hafa skilgreinda og vottaða
stefnu í sjálfbærni.
Starfsfólk hefur áhrif
á sjálfbærnistefnu
Flest sjávarútvegsfyrirtæki eru með
skýra stefnu í öryggismálum. Þetta
hefur orðið til þess að slysum hefur
fækkað mikið á undanförnum árum
og áratugum.
Ein af ástæðunum fyrir þessum
árangri er sú að starfsfólkið
tekur þátt í því að fylgja eftir
öryggismálum í fyrirtækjum sínum.
Í dag eru þessi sömu fyrirtæki að
fá starfsfólk sitt til að taka þátt í að
vinna eftir nýrri umhverfisstefnu.
Hjá Vísi í Grindavík var hrint af
stað verkefni þar sem sjómenn
halda samviskusamlega utan um
allan pappa sem fellur til út á
sjó. Pappanum er safnað saman
um borð, hann er flokkaður og
svo komið á flokkunarstöð þegar
skipin koma í land. Með þessu er
fyrirtækið að sýna samfélaglega
ábyrgð í verki og fær greitt fyrir.
Hjá Síldarvinnslunni koma öll
skip með allan úrgang flokkaðan
samkvæmt Marpol reglugerðinni.
Hvert skip heldur úti sorpdagbók
og skilar dagbókinni til hafnar-
yfirvalda þegar þau koma í land.
Samkvæmt Marpol má ekki henda
lífrænum úrgangi í hafið nema
hann sé kvarnaður. Nú eru öll skip
Síldarvinnslunnar með tæki um
borð sem kvarna lífrænan úrgang.
Sjálfbær framtíð
Það er ekki langt síðan að talað
var um að sjálfbærni skilaði
fyrirtækjum litlu, nema auknum
kostnaði. Á skömmum tíma hefur
þetta viðhorf breyst. Nú hefur verið
sýnt í verki að virk sjálfbærnistefna
ýtir undir nýsköpun, lækkar kostnað
og fjölgar tekjuleiðum fyrirtækja.
Í dag er aukin eftirspurn eftir
sjávarafurðum í hæsta gæðaflokki.
Í mörgum löndum Asíu stækkar
millistéttin hratt. Þar er að myndast
markaður með neytendur sem eru
tilbúnir að borga hærra verð fyrir
fisk sem er veiddur með sjálfbærum
hætti úr ómenguðum sjó.
Sjálfbærni er góð leið til að
auka traust á atvinnugreininni.
Þegar fyrirtæki birta gagnsæjar
og áreiðanlegar upplýsingar um
stefnu þeirra í sjálfbærni er verið
að efla verðmætasköpun og vernda
náttúruauðlind okkar til lengri tíma.
Bragi Smith,
viðskipta- og þróunarstjóri
hjá iTUB.
LESENDARÝNI
Samfélagsstefna Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi:
Umhverfisskýrslur auka
fjárhagslegan ávinning
– Sjálfbærni eflir nýsköpun og framþróun fyrirtækja
Það er ekki langt síðan að talað var um að sjálfbærni skilaði fyrirtækjum litlu, nema auknum kostnaði. Á skömmum
tíma hefur þetta viðhorf breyst. Nú hefur verið sýnt í verki að virk sjálfbærnistefna ýtir undir nýsköpun, lækkar
kostnað og fjölgar tekjuleiðum fyrirtækja.
Bragi Smith.