Bændablaðið - 06.10.2022, Qupperneq 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 6. október 2022
Alhliða fasteignasala
Kynslóða- / eigendaskipti bújarða
Stofnun og skráning landspildna og lóða
Loftur Erlingsson
Löggiltur fasteignasali
GSM 896-9565
loftur@husfasteign.is
Hús Fasteignasala · Austurvegi 26 · 800 Selfoss
Sími: 497 1155 · www.husfasteign.is
Varahlu�r í Bobcat
Eigum hina vinsælu vagna frá þessum
þekkta framleiðanda til afgreiðslu Strax
BÚFJÁRFLUTNINGAVAGNAR
frá Ifor Williams
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfða 8. - 110 Reykjavík
Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is
RAFGEYMAR
Græjurnar þurfa að komast í gang!
Rafgeymar í allar gerðir farartækja
Sendum um land allt
NÝTT: Vefverslun www.skorri.is
Skorri ehf • Bíldshöfði 12 • 110 Rvk • 577-1515 • skorri.is
Streymi heildverslun ehf.
Goðanesi 4
603 Akureyri
S
N
V
588 2544
streymi@streymi.is
www.streymi.is
Úrval af þægilegum og endingagóðum sokkum.
40 sölustaðir, hafðu samband til að fá upplýsingar um
sölustað í nágrenni við þig.
Sokka Kompaníið ehf. 230 Reykjanesbær - info@socks2go.eu - gsm: 831 8400 - www.socks2go.is
Terra Madre, stærsta bænda-
ráðstefna í heimi, fór fram í
septemberlok sl. í Torino-borg á
Norður-Ítalíu.
Þar koma saman smáfram-
leiðendur frá um 150 löndum,
samhliða Salone del Gusto, þar
sem fram fóru yfir 300 smakkanir
og fyrirlestrar um sértæk matvæli
og vín, enda eru þar komnir
saman margir helstu sérfræðingar
á sviði menningarlegrar matvæla-
framleiðslu, víngerðar og matseldar
úr heiminum. Slow Food miðar að
því að stytta bilið milli framleiðenda
og neytenda með fræðslu og þátttöku
grasrótarinnar um allan heim.
Meginmarkmið Slow Food er að
auka meðvitund fólks um mikilvægi
matarmenningar, þekkingar, hefðar
og landfræðilegs uppruna matvæla.
Endursköpun á forsendum
náttúrunnar
Aðalþemað í ár var „Regenaration“
eða endursköpun og sérstök áhersla
á fjölbreyttar tegundir sáðkorns
og belgjurta, heilbrigði og vernd
jarðvegs. Slow Food beita sér fyrir
heilbrigðri skynsemi og sjálfbærni
í umgengni um auðlindirnar í
fæðukeðju okkar sem byggjum
plánetuna Jörð. Að vernd náttúru
og líffræðilegs fjölbreytileika er
eina leiðin fram á við til að halda
vistkerfum okkar við og fæða
jarðarbúa framtíðarinnar.
Góður, hreinn og sanngjarn
Einkunnarorð samtakanna eru.„Good,
Clean and Fair“ sem má útleggja í
beinni þýðingu sem Góður, hreinn
og sanngjarn, og er þar átt við að
maturinn eigi að bragðast vel, hann
eigi að vera laus við aukaefni og sem
náttúrulegastur, og sanngjarn á þann
hátt að sá sem framleiðir matinn fái
sanngjarnt verð fyrir vinnu sína og
afurðir. Sem bændur um allan heim
þekkja á eigin skinni að er ekki alltaf
sjálfgefið í þeim kerfum sem þeir
starfa innan.
Þátttaka Íslendinga
í Terra Madre
Íslandsdeild Slow Food átti á annan
tug þátttakenda á Terra Madre í ár,
smáframleiðendur, bændur, kokkar,
matarnördar og vísindamenn sem
tóku þátt í ýmsum viðburðum
og funduðu einnig með öðrum
norrænum fulltrúum. Ísland átti
sviðið í Terra Madre Kitchen, þar
sem stjórnarmaður Slow Food á
Íslandi, matreiðslumeistarinn Dóra
Svavarsdóttir frá Drumboddsstöðum
og undirritaður elduðum tvo
morgunverðarrétti með íslenskum
og norrænum hráefnum. Norska
kartöflu-lefsu með sænskum ostum
og sultu, og alíslenskan bygggraut úr
byggi frá bændunum á Vallanesi með
súru slátri og lifrarpylsu.
Þátttaka í Terra Madre skilur
eftir sig innblástur til þess að
vinna áfram að hag staðbundinnar
matvælaframleiðslu og varðveislu
matarhefða með náttúruna og sértækar
aðstæður og tegundir á hverjum stað
í forgrunni. Fyrir allt áhugafólk um
mat, sanngirni í viðskiptum með
matvæli og sjálfbærni í umgengni um
náttúruna mæli ég svo sannarlega með
þátttöku í Slow Food-samtökunum á
www.slowfood.is
Hafliði Halldórsson,
sérfræðingur hjá
Bændasamtökum Íslands.
Terra Madre:
Hátíð Slow Food-
samtakanna
Þátttaka í Terra Madre skilur eftir sig innblástur til þess að vinna áfram að hag
staðbundinnar matvælaframleiðslu og varðveislu matarhefða með náttúruna.