Bændablaðið - 06.10.2022, Síða 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 2022
Síðustu árin hafa fleiri og fleiri
fyrirtæki lagt áherslu á að auka
enn frekar á sjálfvirknina við
kúabúskap og hafa orðið stórstígar
framfarir við margs konar
sjálfvirkt eftirlit með gripunum s.s.
sjálfvirkar mælingar á hreyfingu
gripa, meltingu eða mögulegum
veikindum og hafa þessi kerfi
fyrst og fremst verið hönnuð fyrir
fullorðna gripi, þ.e. mjólkurkýr.
Í dag bjóðast þó lausnir sem eru
sérhæfðar fyrir uppeldi og eftirlit
með smákálfum og eru sumar
þeirra einkar áhugaverðar.
Eftirlit mikilvægt
Allir sem halda kýr vita að ef
smákálfaeldið heppnast ekki
fullkomlega þá er afar ólíklegt
að viðkomandi gripur verði
afurðamikill þegar á fullorðinsár
kemur. Til þess að ná þessum
árangri þarf að gefa smákálfum
svo til fullkomið atlæti, umhirðu
og meðferð en það er tímafrekt og
kostnaðarsamt.
Umhirða og eftirlit með
smákálfum er því upplagt ferli
sem ætti að nýta tækni við og í
dag bjóðast bændum margar og
mismunandi leiðir til þess að ná
góðum árangri.
Segja má að nánast sé enginn
skortur á tækni sem getur safnað
margvíslegum gögnum tengdum
smákálfunum en hvort öll þau gögn
séu nýtanleg eða skapi verðmæti
fyrir kúabóndann er aftur á móti
spurning.
Skynjarar fóstrukerfisins
Líklega eru fóstrur algengasta
sjálfvirka kerfið sem er notað hér
á landi þegar smákálfar eru annars
vegar, þ.e. sjálfvirk mjólkurgjöf til
kálfa. Undanfarin ár hefur tæknin
sem notuð er við stjórn á fóstrum
tekið miklum framförum frá því
að vera einungis gjafakerfi á mjólk
yfir í það að vakta í raun kálfana og
atferli þeirra. Þannig geta tölvukerfi
sumra kerfa í dag látið bændur vita
ef kálfar hafa ekki fengið sér sopa
eða eru með mælanlegt atferli sem
er frábrugðið hefðbundnu atferli.
Þetta byggir á samspili mælinga
á fóðrunartímum og jafnvel á
legu kálfanna.
Þá geta gögn um drykkjaratferli
svo sem fáar heimsóknir í fóstru
eða stuttar drykkjarlotur bent til
þess að kálfurinn sé mögulega
að verða veikur. Enn fremur geta
mjög margar og ítrekaðar tilraunir
kálfa til þess að fá að drekka bent
til þess að mjólkurmagnið sé
mögulega af of skornum skammti
miðað við getu kálfsins, en fái
kálfurinn ekki það magn sem hann
getur torgað geta bændur verið að
fara á mis við mögulega þyngdar-
aukningu kálfsins.
Upplýst hálsbönd
Í dag er einnig hægt að fá sérstök
ljós á hálsbönd kálfanna sem
lýsa upp ef tölvukerfið telur að
viðkomandi kálfur þurfi á sérstakri
athygli að halda. Þetta getur t.d.
verið vegna þess að hann hefur
hreyft sig óeðlilega lítið síðasta
sólarhringinn eða hefur ekki
drukkið nóg.
Svona kerfi geta verið einkar
handhæg á kúabúum þar sem
smákálfarnir eru margir og þar
sem einstaklingarnir falla í hópinn.
Hröðunarskynjarar
Margir kúabændur nota í dag
svokallaða hröðunarskynjara sem
langoftast eru notaðir á kýr og
mæla þá hreyfingar þeirra og gefa
upplýsingar um ástand kúnna.
Svona skynjara má einnig
fá í dag á smákálfa en hreyfing
þeirra, og þá sérstaklega hraði
hreyfingar, gefur góðar upplýsingar
um væntanlegt heilsufar. Þannig
geta gögnin t.d. sýnt að kálfur sem
liggur lengi en í fáum legulotum sé
heilsulaus.
Fleiri möguleikar
En það eru fleiri möguleikar sem
standa bændum til boða í dag
til að fylgjast með því hvernig
smákálfunum vegnar. Þannig eru
m.a. til skynjarar sem mæla hitastig
þeirra, jórtrun og hjartslátt og
geta þá látið strax vita ef eitthvað
bendir til þess að heilsu kálfsins
sé að hraka. Þetta eru mikilvæg
gögn enda er þekkt að því fyrr sem
brugðist er við, því meiri líkur eru
á því að hægt sé að ná skjótum bata
og kálfurinn getur því mögulega
náð að þroskast vel og verða
afurðasamur gripur þegar frá líður.
Að sama skapi er þekkt að kálfar
sem veikjast illa en ná síðar heilsu
verða ólíklega afurðamiklir gripir,
sem er meginskýringin á því að
bregðast þarf hratt við.
Kjarnfóðurátsmælar
Einnig má benda á að verið er að
þróa búnað, og mögulega þegar
kominn á markað hjá einhverjum
Á FAGLEGUM NÓTUM
Grænmetisframleiðsla á sér
bjarta framtíð hér á landi.
Eins og staðan er núna þarf
að auka ræktun íslensks
grænmetis, bæði þess sem
ræktað er í gróðurhúsum og á
garðlöndum.
Gæðin eru þekkt meðal
neytenda og vitneskja um kosti
þess að neyta innlendra matvæla
umfram þeirra innfluttu er
augljós.
Dreifing grænmetisins til
verslana hefur að miklu leyti
verið á höndum nokkurra
heildsala sem sækja vöruna til
framleiðanda og koma henni í
verslanir eins fljótt og hægt er.
Dreifingaraðilarnir sjá þá
um alla vinnuþætti að lokinni
framleiðslunni sjálfri, t.d.
innheimtu og umbúðamál. Á
síðustu árum hafa í auknum
mæli þróast nokkrar nýstárlegar
leiðir og áhersla verið lögð á
dreifingu beint til neytenda.
Netverslun með grænmeti
Nokkrir framleiðendur hafa
komið sinni vöru á framfæri
á netinu, bæði í gegnum eigin
heimasíður eða með tilstilli
netfyrirtækja sem sinna
dreifingu á afurðum bænda.
Oftast er þá boðið upp á að
varan sé sótt á tiltekna staði á
fyrirfram ákveðnum tímum eða
jafnvel heimakstur.
Þetta er nýlunda sem hefur
verið vel tekið. Sumar netsölur
selja aðeins eigin afurðir en
aðrar taka til dreifingar vörur
frá nokkrum framleiðendum og
einnig erlenda vöru, einkum þá
í lífræna geiranum.
Nefna má fyrirtækin Matland,
Vallanes, Austurland Food
Coop og Frú Laugu sem dæmi
um netsölu með þessum hætti.
Sambærileg netverslun færist
einnig í aukana í kjötvörum og
öðrum matvælum.
Heimasala
Líklega stunda flestir smærri
ræktendur heimasölu afurða
sinna í nokkrum mæli og sumir
að mestu leyti. Heimasala hefur
raunar verið stunduð allt frá því
að markaðsframleiðsla hófst
fyrir einni öld eða svo.
Nokkrir nýta sér fleiri
dreifileiðir, t.d. þjóna þeir
ákveðnum verslunum, veitinga-
húsum og öðrum stærri notendum
og eru þá í beinu sambandi við
dreifingaraðilana. Þannig geta
þeir sinnt neytendum sem best
og jafnvel sérframleitt grænmeti
sem væri vandkvæðum bundið
að framleiða án fyrirfram
umsaminnar dreifingar.
Smáframleiðendur matvæla
sýna hugvitssemi við
úrvinnslu og dreifingu
Samtakamáttur smáframleiðenda
um allt land hefur leitt til þess
að vara þeirra er nú sýnilegri
og aðgengilegri en áður. Með
náinni samvinnu, td. í gegnum
Samtök smáframleiðenda
matvæla (SSFM), hafa þeir náð
að dreifa fersku grænmeti og
öðrum ræktuðum afurðum til
neytenda og einnig opnað fyrir
nýjar leiðir í virðisaukningu á
vörum sínum með úrvinnslu
og sameiginlegri dreifingu.
Samvinna þeirra hefur treyst
rekstrargrundvöll fyrirtækjanna,
aukið skilvirkni í rekstri þeirra
og eflt þekkingarlegan grundvöll
í framleiðslu, úrvinnslu og
markaðssetningu.
Nýjar tegundir í ræktun,
smærri framleiðendur
draga vagninn
Smærri framleiðendur hafa
oft nýtt sér þá leið að auka
fjölbreytni í ræktun fremur
en að beina allri athyglinni að
einni eða fáum tegundum. Þar
má sjá tegundir til sölu sem
varla sjást í stórmörkuðum úr
íslenskri ræktun, eins og radísur,
næpur, toppkál, nýstárlegar
grænkálstegundir, spírur og
sprettur, hvítlauk, chilialdin í
ólíkum styrkleikum, kryddjurtir
og salattegundir, kúrbít, eggaldin
og ertur svo dæmi séu tekin. Nú
má sjá í verslunum hampte úr
útiræktuðum íslenskum hampi
sem ekki þekktist sem söluvara
fyrir fáeinum árum.
Á þann hátt hafa smærri
ræktendur í gegnum tíðina
með seiglunni opnað leiðir
inn á almennan markað fyrir
fáséðar tegundir sem síðar verða
eftirsóttari. Það krefst þrautseigju
að koma nýjum tegundum á
markað en ánægjan er þeim
mun meiri þegar því marki er
náð að mæta kröfum og þörfum
markaðarins.
Ingólfur Guðnason.
GARÐYRKJUSKÓLI LBHÍ REYKJUM
Óhefðbundnar leiðir við
dreifingu á íslensku grænmeti
Íslenskt kál. Mynd / Myndasafn Bbl.
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com
Tækniframfarir í landbúnaði:
Sjálfvirkt eftirlit með kálfum
Í dag er algengt að kálfar fái mjólk að drekka í kálfafóstrum. Myndir / SEGES
Ljós á hálsbandi kálfs getur auðveldað bændum að ná betri tökum á
smákálfaeldinu.
Það dylst væntanlega engum lesanda Bændablaðsins að tækninni í
mjólkurframleiðslu hefur fleygt fram á undanförnum áratugum enda
komnir rúmlega tveir áratugir síðan fyrstu alsjálfvirku mjaltaþjónarnir
litu dagsins ljós og gerðu þar með mannshöndina nánast óþarfa við
mjaltirnar.
Fjólublátt blómkál.