Veiðimaðurinn - 01.12.1960, Page 51
Frd aðalfundi
L. í. S.
AÐALFUNDUR Landssambands ís-
lenzkra stangveiðimanna var haldinn í
Þjóðleikhússkjallaranum þann 30. októ-
ber s.l. í Landssambandinu eru nú 18
stangveiðifélög, en fundinn sátu 40 full-
trúar víðsvegar að af landinu.
Lögðu fulltrúarnir áherzlu á, að
Landssambandsstjórnin ynni áfram að
því, að félögunum gæfist sem fyrst kostur
á að fá lax- og silungseldisseiði, til auk-
innar fiskiræktar í þeim ám og vötn-
um, er félögin hafa til umráða. Upplýst
var á fundinum, að Elliðaárstöðin getur
ekki afgreitt nema að litlu leyti þær pant-
anir, sem henni berast á kviðpokaseiðum,
víðsvegar að af landinu, livað þá af ali- og
sleppiseiðum, sem mikil eftirspurn er nú
eftir, en eru vart fáanleg. Töldu fundar-
menn það mjög aðkallandi nauðsyn að
eldisstöðvar fyrir lax og silung verði
reistar sem fyrst, veiðiréttareigendum
sem og leigutökum til aukinna hagsbóta.
Forráðamönnum klak- og eldisstöðvar-
innar við Elliðaár voru færðar þakkir
fyrir þá fyrirgreiðslu, sem stöðin hefur
látið sambandsfélögunum í té undan-
farin ár.
Um þessar mundir eru 10 ár liðin frá
stofnun Landssambands ísl. stangveiði-
manna, en það var stofnað 29. okt. 1950.
Aðalverkefni þess hefur jafnan verið að
stuðla að aukningu fiskistofnanna í ám og
vötnum, einkum með því að:
1. Vinna að nauðsynlegum endurbót-
um að lax- og silungsveiðilöggjöf lands-
ins.
2. Koma í veg fyrir livers konar rán-
yrkju og ofveiði í ám og vötnum.
3. Vinna að því að tekin verði til fiski-
ræktunar ár og vötn, er fisklaus eru, en
líkleg mættu teljast til árangurs, með
slíkri ræktun.
4. Vinna að aukinni fiskirækt með
byggingu klak- og eldisstöðva fyrir lax-
og silungsveiði.
5. Stuðla að góðri samvinnu stang-
veiðimanna og veiðiréttareigenda.
Stjórn Landssambands ísl. stangveiði-
manna er nú þannig skipuð:
Aðalstjórn: Formaður Guðmundur J.
Kristjánsson, Rvík. Bragi Eiríksson, Ak-
ureyri. Friðrik Þórðarson, Borgarnesi.
Hákon Jóhannsson, Rvík. Sigurpáll
Jónsson, Rvík.
Varastjórn: Alexander Guðjónsson,
Hafnarfirði. Helgi Júlíusson, Akranesi.
Sigmundur Jóhannsson, Reykjavík.
H. Jóh.
Fuglinn Kiwi.
KIWI heitir fugl, a£ strútaættinni, sem á heima
á Nýja-Sjálandi. Hann getur ekki flogið. Hann
verpir einu eggi, sem er 1/4 af þyngd hans sjálfs, en
hann er á stærð við hænsn. Eru þetta hlutfallslega
stærstm fuglsegg, sem vitað er um. Útungunin tek-
ur ellefu vikur og unginn er þrjú ár að ná fullri
stærð.
Hætta er talin á að fugl þessi muni brátt deyja
út, nema hann fái algerlcga friðuð svæði, þar sem
hann verður ekki fyrir áreitni. Hann þykir góður
til raatar.
Veiðimaðurinn
41