Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Síða 12
Henderson kaupmaður frá Edinborg
reisti niðursuðuverksmiðju á Laxamýri í
Þingeyjarsýslu vorið 1860, keypti þar lax
og sauð niður (sbr. Jón Jónsson: 1968, 51
og 53).
Eg ætla nú ekki í þessu máli mínu að
halda mig við Borgarfjörðinn eða Þing-
eyjarsýslu, heldur skyggnast um hér aust-
anfjalls. Menn hafa svolítið velt vöngum
yfir því hvenær fyrst hafi verið farið að
veiða á stöng hér í Ölfusá og öðrum ám fyr-
ir austan fjall. Prentaðar heimildir um það
eru fáar. A Selfossi hefur oft verið nefndur
í þessu sambandi Adam nokkur Hoffritz
en hann hóf að veiða á stöng hér í ánni upp
úr 1930. Sigurður Ingi Sigurðsson fyrrv.
oddviti á Selfossi hefur sagt frá því og
hefur það eftir föður sínum Sigurði Þor-
steinssyni frá Flóagafli, að Englendingar
þeir sem unnu að smíði Ölfusárbrúarinnar
sumarið 1891 hafi haft með sér veiðisteng-
ur og veitt lax fyrir Hellislandi, þar sem nú
nefnist „Miðsvæðið“, en því hafi lítill
gaumur verið gefinn og ekki tekið upp eft-
ir þeim. Sigurður Þorsteinsson bjó þá að
Helli og mun hann daglega hafa átt sam-
skipti við brúarsmiðina. Þá eru skráðar
frásagnir um stangaveiði í Soginu neðan
fossa þegar komið er fram yfir aldamótin,
m.a. er til sögn um að Kristján konungur
X. hafi dregið lax við Sogsbrúna hjá Al-
viðru í byrjun júlí 1921. Hann á að hafa
stansað þar örlitla stund, rennt og dregið
einn (sbr. Daníel Daníelsson: 1937, 261).*
I Stóru-Laxá hefur stöngin komið þeg-
ar Gestur á Hæli tók að laða að veiðigesti.
Það mun líklega hafa verið árið 1913 eða
1914 og voru þá oft kunnir menn að veið-
um þar eins og Magnús Sigurðsson banka-
stjóri og Magnús Arnbjarnarson á Sel-
fossi. Einar Benediktsson skáld var þar
einnig gestur hans og segir sagan að það
hafi kannski öllu fremur verið Gestur
sjálfur sem laðaði skáldið að heldur en
laxinn (sbr. Guðmundur Daníelsson:
1970, 274-275).
Bent skal þó á, að erlendir ferðamenn
hafa rennt fyrir fisk í Stóru-Laxá löngu
fyrr. Til dæmis er til frásögn frá árinu 1863
er Englendingarnir Sir Charles H. J.
Anderson og Frank sonur hans voru þar á
*Ekki þykir mér alveg ljóst hvaða dag þetta var. Af endurminn-
ingum Daníels virðist mega ráða að þetta eigi að hafa gerst þann
3. júlí, en skv. öðrum heimildum var konungur þá kominn til
Reykjavíkur. Hugsanlega skakkar þarna degi í frásögn.
1
Fluguhjol sem sóst er eftir
Fæst í næstu
sportvöruverslun
Einkaumboð
I. Guðmundsson & co hf. i
Símar: 24020/11999
8
VEIÐIMAÐURINN