Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Side 33
Jón Kristjánsson
Um nýlegan inn-
f lutning á laxa-
hrognum frá Noregi
Áður en fjallað er um titil þessa erindis, er
nauðsynlegt að hafa nokkurn inngang eða
formála svo menn viti hvað felst í flutningi
físks af manna völdum frá einu umhverfí í
annað.
Stofnhugtakið
Frá grárri forneskju hafa menn tekic
eftir því að laxastofnar ánna eru mismun-
andi. Nokkur hundruð ár eru síðan mem
vissu að margir stofnar komu í samfloti ini
fjörðinn, skildu og hver fór til síns heima
Á vorum dögum tala menn enn um sér-
staka stofna, og hver kannast ekki við setn-
ingar eins og: „Það er búið að dreifa þess-
um Elliðaárstofni um allt“, þegar þeim
fínnst vera mikið af smálaxi í ánni sinni.
Eg hef engan hitt sem efast um að til séu
sérstakir stofnar í ánum, enda hafa nútíma
vísindi fært sönnur á tilvist þeirra.
Veiðimenn efast ekki um þetta flestir
hverjir, en sömu mennirnir hafa verið og
eru enn, með dyggum stuðningi fiskeldis-
manna, að rífa niður skipulag náttúrunnar
í algjöru athugunar- og andvaraleysi. I
samningum stangveiðifélaga og áreigenda
má enn finna ákvæði um s.k. ræktun, þ.e.
sleppingu seiða af ótilteknum uppruna, og
þess eru dæmi að samið sé um að hluti leig-
ugjalds sé greiddur með seiðum.
Rannsóknir hafa staðfest að sérstakir
stofnar eru staðreynd og að á þeim er erfða-
Jón Kristjánsson lauk prófi í vatnalíffrceði
við háskólann íOslóárið 1971. Hann hefur
starfað á Veiðimálastofnunni síðan 1972.
Hann hefur skrifað margar greinar um lax
og silung t blöð og tímarit, m.a. í Veiði-
manninn. Meðfylgjandi grein er byggð á
erindi, sem Jón flutti 31. janúar s.l. á
fundi, sem haldinn var á vegum L.S. og
sagt er frá hér í blaðinu.
VEIÐIMAÐURINN
29