Veiðimaðurinn - 01.04.1987, Blaðsíða 56
son, Lýður Jónsson, Ragnar Georgsson og
Steinar Petersen. Fleiri félagsmenn lögðu
fram drjúga vinnu eins og oft áður. Verk-
efnin voru fyrst og fremst hin venju-
bundnu, bæði utan húss og innan, sem lúta
að viðhaldi og undirbúningi að vori og
að frágangi ýmiss konar að loknum veiði-
tíma. Veiðiréttareigendur sáu sjálfir um
laxastigann við Glanna og um viðgerð á
stiganum í Laxfossi. Síðast en ekki síst ber
að geta nýrrar vatnslagnar alla leið frá
Litla-Skarði og heim að veiðihúsum.
Sjá einnig skýrslu um veiðina í 122. tbl.
Veiðimannsins.
Gljúfurá: Arnefndin var skipuð Guð-
mundi Guðmundssyni, formanni, Guð-
jóni Sverri Sigurðssyni og Sigurði Þor-
grímssyni. I júní var sleppt 1800 göngu-
seiðum í ána og 4500 sumaröldum í ágúst.
279 laxar veiddust yfír sumarið eða um
helmingi meir en árið á undan, 149 hrygn-
ur og 130 hængar. Stærsta laxinn veiddi
Olafur Olafsson. Var það 14 punda hæng-
ur. Hann veiddist í Fossinum.
Sjá og skýrslu um veiðina hér í blaðinu.
Langá: Félagið hafði á leigu neðsta
veiðisvæði árinnar frá Sjávarfossi að efri
landamörkum Ánabrekku að sunnan en
Langárfossi að vestan, frá 8. ágúst til 11.
september. Veiðin var góð í Langá í sumar.
Miðá: I árnefnd fyrir Miðá og Tunguá í
Dölum eru Gottfreð Árnason, formaður,
og Þórhallur Jónsson. Þetta var annað
sumarið, sem S VFR hafði þessar ár á leigu.
Þokkalegt veiðihús er í landi Kvenna-
brekku. Veitt er á þrjár stangir, sem seldar
eru saman, enda hentar húsið best fyrir
samstæða hópa. Dagana 7. og 8. júní kom
árnefnd vestur í Dali til þess að útbúa
sleppiþró, sem hún kom fyrir í Skarða-
fljóti. Guðmundur Bang, Finnbjörn
Hjartarson, Runólfur Runólfsson og Frið-
rik D. Stefánsson komu síðan með 2000
gönguseiði norðan af Drangsnesi, sem ár-
nefnd kom fyrir í þrónni, en þar voru þau
í eldi til 20. júní, er gönguseiðunum var
sleppt. Hinn 22. júní kom Guðmundur
Bang með 10.000 sumaralin seiði, sem ár-
nefnd ásamt bændum dreifði á ólaxgeng
svæði í Austurá, Reykjadalsá og Tunguá.
Við upphaf veiðitímans, 20 júní, var
mjög gott vatn í ánum, en enginn fiskur var
þá genginn. Fyrsti laxinn fékkst 11. júlí.
Reytingsveiði var í júlí og ágústbyrjun.
BeHdw
Trilene
iún lætur ekki undan
ine er níðsterk þungavigtarlína frá Berkley.
í næstu sportvöruverslun
LinKaumDo
ð I. Guðmundsson & co hf. símar 24020/11999
52
VEIÐIMAÐURINN