Læknablaðið - 01.07.2022, Page 7
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 327
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Björn Guðbjörnsson
gigtarlæknir og prófessor
rannsóknarstofu í gigtar-
sjúkdómum
Landspítala og Háskóla
Íslands
bjorngu@landspitali.is
Sjúkdómar eins og beinkröm, skyrbjúgur
og taugakröm hafa verið þekktir um
aldir. Orsök þeirra var þó óþekkt þar til í
lok 19. aldar þegar menn fóru að tengja
einhæft mataræði við þessa sjúkdóma en
í raun vissu menn ekki af tilvist vítamína
á þessum tíma
doi 10.17992/lbl.2022.0708.697
Fjórða vítamínið – D-vítamín – uppgötvaðist árið
1922, en áður hafði verkun A-, B-, og C-vítamína
verið lýst.1 D-vítamínið er þó talið þróunarlega elst
þeirra og jafnvel elsta hormón okkar mannanna.
Talið er að það eigi uppruna sinn í ljóstillífun
plöntu svifs djúpt í Atlantshafi hinu forna, fyrir allt
að 750 milljónum ára.
Sjúkdómar eins og beinkröm, skyrbjúgur og
taugakröm hafa verið þekktir um aldir. Orsök þeirra
var þó óþekkt þar til í lok 19. aldar þegar menn fóru
að tengja einhæft mataræði við þessa sjúkdóma en í
raun vissu menn ekki af tilvist vítamína á þessum
tíma.
Breski læknirinn Sir Edward Mellanby hafði tek-
ið eftir því að beinkröm var mjög algeng í Skotlandi,
en hún var einnig nefnd The English Disease. Hann
grunaði að þessi kvilli væri tengdur vannæringu og
ákvað að rannsaka mataræði Skota, sem samanstóð
mikið til af haframjöli. Hann ákvað því að ala hunda
sem hann hélt innandyra á höfrum og sýndi fram á
að þeir fengju beinasjúkdóm í ætt við beinkröm. Sir
Mellanby tókst að lækna hundana með þorskalifur
og taldi í fyrstu að þetta væri sjúkdómsástand sem
orsakaðist af A-vítamínskorti.1
Lífefnafræðingurinn Elmer McCollum við John
Hopkins-háskólann vildi sanna tilgátu Sir Mellan-
by, en McCollum hafði uppgötvað A-vítamín árið
1914. Hann ákvað að hvarfa burt A-vítamínið úr
þorskalifrarmaukinu sem hundunum var gefið. Með
þessari meðferð á þorskalifrinni var ekki unnt að
koma í veg fyrir augnkríma í hundunum, sem menn
þekktu sem sjúkdóm tengdan A-vítamínskorti, en
honum til undrunar læknaði maukið samt bein-
krömina í hundunum. McCollum nefndi þenn-
an áður óþekkta áhrifavald D-vítamín eða fjórða
vítamínið.2
Þjóðverjinn Adolf Windaus fékk síðan Nóbels-
verðlaunin í efnafræði árið 1928 fyrir rannsóknir
sínar á sterólum og tengslum þeirra við vítamín.
Það varð þó ekki fyrr en árið 1932 að efnasamsetn-
ing D-vítamíns varð þekkt þegar Askew tókst að
einangra D2-vítamín.3 Nokkrum árum síðar varð
vísindamönnum ljóst að ólíkt öðrum vítamínum gat
mannslíkaminn framleitt hið virka form D-vítamíns
með því að útsetja húðina fyrir sólarljósi. Því er enn
deilt um það hvort D-vítamín sé í raun vítamín eða
hormón, nema hvort tveggja sé. Það var svo ekki fyrr
en árið 1969 að frumuviðtaka D-vítamíns var lýst
og snemma á sjöunda áratugnum jókst skilningur
manna á samspili húðar, lifrar og nýrna til að virkja
D-vítamínið. Síðar kom lífeðlisfræðilegur skilning-
ur á áhrifum D3-vítamíns á fosfór- og kalkbúskap og
þar með beinheilsu.
Á Íslandi hafa læknar lengi mælt með lýsi og
D-vítamíni. Jón Þorsteinsson, gigtarlæknir og pró-
Aldarafmæli D-vítamíns
fessor var í fararbroddi við að hvetja sjúklinga með
bólgusjúkdóma að tryggja sér nægilegt D-vítamín.
Árið 1995 hófust mælingar á D-vítamíni á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur í Fossvogi, fyrir áeggjan Gunnars
Sigurðssonar, prófessors. Síðastliðið ár voru fram-
kvæmdar um 31.000 mælingar á D-vítamíni hér
á landi.4 Við ættum því að þekkja vel D-vítamín-
búskap þjóðarinnar og einnig þá árstíðabundnu
sveiflu sem er á D-vítamíngildum okkar sem búum
svo norðarlega á jörðunni.
Jón Þorsteinsson hafði rétt fyrir sér um gagn-
semi lýsis og D-vítamíns fyrir gigtarsjúklinga,
langt á undan sinni samtíð. Seinni tíma rannsóknir
hafa sýnt fram á að sjúklingum með rauða úlfa og
sjálfsónæmissjúkdóma farnast betur ef þeir tryggja
sér nægjanlegt D-vítamín. Auk þess hafa rannsókn-
ir sýnt fram á mikilvægi D-vítamíns fyrir beinheilsu
og að það tryggir betri vöðvastyrk og taugaboð og
dregur þannig úr byltum og beinbrotum aldraðra.
Einnig er að byggjast upp aukin þekking og skiln-
ingur á hlutverki D-vítamíns í þróun ýmisskonar
verkjavanda og tilurð langvinnra sjúkdóma, eins
og sykursýki, háþrýstings, taugasjúkdóma, illkynja
meina og fleiri sjúkdóma. Fram-
tíðarrannsóknir verða að skera úr
um það hvort D-vítamín dregur
úr elliglöpum og bætir færni og
heilsufar aldraðra. Barnalæknar
hafa einnig rannsakað þýðingu
D-vítamíns í endurteknum sýking-
um og eyrnabólgum hjá börnum.
Í heimsfaraldri vegna kór-
ónuveiru hefur áhugi manna og
forvitni vaknað um hvort D-vítamín hafi áhrif á
framþróun COVID-19-sjúkdómsins. Stórar rann-
sóknir hafa sýnt að áhættan á smiti og alvarlegri
sýkingu með gjörgæsluvistun sé meiri meðal þeirra
sem eru með lægri gildi af D-vítamíni í blóði en
hinna sem hafa eðlileg eða há gildi.4 Aðferðafræði-
lega eru margir hnökrar á þessum rannsóknum sem
erfitt er að leiðrétta fyrir, en þó er unnt að álykta að
vegna félagslegrar einangrunar og inniveru löngum
stundum á COVID-tímum megi gera ráð fyrir því
að stór hluti þjóðarinnar þurfi að tryggja sér meiri
D-vítamínneyslu á komandi misserum.
Björn Guðbjörnsson, MD, PhD
professor
Centre for Rheumatology
Research
University Hospital and Faculty of
Medicine University of Iceland
Reykjavík
Centenary of vitamin-D
Heimildir
1. Mellanby E. An experimental investigation on rickets. Lancet 1919; 1:
407-12.
2. McCollum EV, Simmonds N, Becker JE, et al. An experimental demon-
stration of the existence of a vitamin which promotes calcium depos-
ition. J Biol Chem 1922; 53: 293-8.
3. Askew FA, Bourdillon RB, Bruce HM, et al. The distillation of vitamin
D. Proc R Soc 1931; B107: 76-90.
4. Kaya MO, Pamukçu E, B Yakar B. The role of vitamin D deficiency
on COVID-19: a systematic review and meta-analysis of observational
studies. Epidemiol Health 2021; 43: e2021074.