Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.2022, Síða 7

Læknablaðið - 01.07.2022, Síða 7
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 327 R I T S T J Ó R N A R G R E I N Björn Guðbjörnsson gigtarlæknir og prófessor rannsóknarstofu í gigtar- sjúkdómum Landspítala og Háskóla Íslands bjorngu@landspitali.is Sjúkdómar eins og beinkröm, skyrbjúgur og taugakröm hafa verið þekktir um aldir. Orsök þeirra var þó óþekkt þar til í lok 19. aldar þegar menn fóru að tengja einhæft mataræði við þessa sjúkdóma en í raun vissu menn ekki af tilvist vítamína á þessum tíma doi 10.17992/lbl.2022.0708.697 Fjórða vítamínið – D-vítamín – uppgötvaðist árið 1922, en áður hafði verkun A-, B-, og C-vítamína verið lýst.1 D-vítamínið er þó talið þróunarlega elst þeirra og jafnvel elsta hormón okkar mannanna. Talið er að það eigi uppruna sinn í ljóstillífun plöntu svifs djúpt í Atlantshafi hinu forna, fyrir allt að 750 milljónum ára. Sjúkdómar eins og beinkröm, skyrbjúgur og taugakröm hafa verið þekktir um aldir. Orsök þeirra var þó óþekkt þar til í lok 19. aldar þegar menn fóru að tengja einhæft mataræði við þessa sjúkdóma en í raun vissu menn ekki af tilvist vítamína á þessum tíma. Breski læknirinn Sir Edward Mellanby hafði tek- ið eftir því að beinkröm var mjög algeng í Skotlandi, en hún var einnig nefnd The English Disease. Hann grunaði að þessi kvilli væri tengdur vannæringu og ákvað að rannsaka mataræði Skota, sem samanstóð mikið til af haframjöli. Hann ákvað því að ala hunda sem hann hélt innandyra á höfrum og sýndi fram á að þeir fengju beinasjúkdóm í ætt við beinkröm. Sir Mellanby tókst að lækna hundana með þorskalifur og taldi í fyrstu að þetta væri sjúkdómsástand sem orsakaðist af A-vítamínskorti.1 Lífefnafræðingurinn Elmer McCollum við John Hopkins-háskólann vildi sanna tilgátu Sir Mellan- by, en McCollum hafði uppgötvað A-vítamín árið 1914. Hann ákvað að hvarfa burt A-vítamínið úr þorskalifrarmaukinu sem hundunum var gefið. Með þessari meðferð á þorskalifrinni var ekki unnt að koma í veg fyrir augnkríma í hundunum, sem menn þekktu sem sjúkdóm tengdan A-vítamínskorti, en honum til undrunar læknaði maukið samt bein- krömina í hundunum. McCollum nefndi þenn- an áður óþekkta áhrifavald D-vítamín eða fjórða vítamínið.2 Þjóðverjinn Adolf Windaus fékk síðan Nóbels- verðlaunin í efnafræði árið 1928 fyrir rannsóknir sínar á sterólum og tengslum þeirra við vítamín. Það varð þó ekki fyrr en árið 1932 að efnasamsetn- ing D-vítamíns varð þekkt þegar Askew tókst að einangra D2-vítamín.3 Nokkrum árum síðar varð vísindamönnum ljóst að ólíkt öðrum vítamínum gat mannslíkaminn framleitt hið virka form D-vítamíns með því að útsetja húðina fyrir sólarljósi. Því er enn deilt um það hvort D-vítamín sé í raun vítamín eða hormón, nema hvort tveggja sé. Það var svo ekki fyrr en árið 1969 að frumuviðtaka D-vítamíns var lýst og snemma á sjöunda áratugnum jókst skilningur manna á samspili húðar, lifrar og nýrna til að virkja D-vítamínið. Síðar kom lífeðlisfræðilegur skilning- ur á áhrifum D3-vítamíns á fosfór- og kalkbúskap og þar með beinheilsu. Á Íslandi hafa læknar lengi mælt með lýsi og D-vítamíni. Jón Þorsteinsson, gigtarlæknir og pró- Aldarafmæli D-vítamíns fessor var í fararbroddi við að hvetja sjúklinga með bólgusjúkdóma að tryggja sér nægilegt D-vítamín. Árið 1995 hófust mælingar á D-vítamíni á Sjúkra- húsi Reykjavíkur í Fossvogi, fyrir áeggjan Gunnars Sigurðssonar, prófessors. Síðastliðið ár voru fram- kvæmdar um 31.000 mælingar á D-vítamíni hér á landi.4 Við ættum því að þekkja vel D-vítamín- búskap þjóðarinnar og einnig þá árstíðabundnu sveiflu sem er á D-vítamíngildum okkar sem búum svo norðarlega á jörðunni. Jón Þorsteinsson hafði rétt fyrir sér um gagn- semi lýsis og D-vítamíns fyrir gigtarsjúklinga, langt á undan sinni samtíð. Seinni tíma rannsóknir hafa sýnt fram á að sjúklingum með rauða úlfa og sjálfsónæmissjúkdóma farnast betur ef þeir tryggja sér nægjanlegt D-vítamín. Auk þess hafa rannsókn- ir sýnt fram á mikilvægi D-vítamíns fyrir beinheilsu og að það tryggir betri vöðvastyrk og taugaboð og dregur þannig úr byltum og beinbrotum aldraðra. Einnig er að byggjast upp aukin þekking og skiln- ingur á hlutverki D-vítamíns í þróun ýmisskonar verkjavanda og tilurð langvinnra sjúkdóma, eins og sykursýki, háþrýstings, taugasjúkdóma, illkynja meina og fleiri sjúkdóma. Fram- tíðarrannsóknir verða að skera úr um það hvort D-vítamín dregur úr elliglöpum og bætir færni og heilsufar aldraðra. Barnalæknar hafa einnig rannsakað þýðingu D-vítamíns í endurteknum sýking- um og eyrnabólgum hjá börnum. Í heimsfaraldri vegna kór- ónuveiru hefur áhugi manna og forvitni vaknað um hvort D-vítamín hafi áhrif á framþróun COVID-19-sjúkdómsins. Stórar rann- sóknir hafa sýnt að áhættan á smiti og alvarlegri sýkingu með gjörgæsluvistun sé meiri meðal þeirra sem eru með lægri gildi af D-vítamíni í blóði en hinna sem hafa eðlileg eða há gildi.4 Aðferðafræði- lega eru margir hnökrar á þessum rannsóknum sem erfitt er að leiðrétta fyrir, en þó er unnt að álykta að vegna félagslegrar einangrunar og inniveru löngum stundum á COVID-tímum megi gera ráð fyrir því að stór hluti þjóðarinnar þurfi að tryggja sér meiri D-vítamínneyslu á komandi misserum. Björn Guðbjörnsson, MD, PhD professor Centre for Rheumatology Research University Hospital and Faculty of Medicine University of Iceland Reykjavík Centenary of vitamin-D Heimildir 1. Mellanby E. An experimental investigation on rickets. Lancet 1919; 1: 407-12. 2. McCollum EV, Simmonds N, Becker JE, et al. An experimental demon- stration of the existence of a vitamin which promotes calcium depos- ition. J Biol Chem 1922; 53: 293-8. 3. Askew FA, Bourdillon RB, Bruce HM, et al. The distillation of vitamin D. Proc R Soc 1931; B107: 76-90. 4. Kaya MO, Pamukçu E, B Yakar B. The role of vitamin D deficiency on COVID-19: a systematic review and meta-analysis of observational studies. Epidemiol Health 2021; 43: e2021074.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.