Læknablaðið - 01.07.2022, Qupperneq 9
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 329
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
The Herbal Garden of Nes
Lilja Sigrún Jónsdóttir MD
General Practitioner, Clinical
lecturer of the Primary Care of
the Capital area
In the editorial board of
Læknablaðið
Urtagarðurinn í Nesi
Í Nesi við Seltjörn á Seltjarnarnesi liggja rætur opin-
berrar heilbrigðisþjónustu á Íslandi, frá árinu 1763.
Nesstofa hýsti fyrsta landlækninn, Bjarna Pálsson,
og Björn Jónsson, fyrsta lyfjafræðinginn og apótek-
arann. Þeir nýttu þekkingu þess tíma úr náttúruvís-
indum og sóttu virk efni til lækninga í náttúruna, þar
sem þeirra var von. Björn kom upp garði sunnan við
Nesstofu til ræktunar lækningajurta í samræmi við
kröfur lagðar á hann eins og aðra lyfsala með fyrstu
lyfjaskránni sem kom út í Danmörku, Pharmacopoea
Danica 1772. Birni bar að eiga jurtir til að framleiða
640 lyf, flest úr jurtum eða jurtaafurðum. Hann stóð
fyrir ræktunartilraunum, meðal annars á korni og
trjám, brautryðjandi á því sviði hér á landi. Á upp-
hafsárum Bjarna Pálssonar í starfi sem landlæknir
var meginverkefnið að forða skortsjúkdómum með
leiðsögn um neyslu ferskmetis og hvatningu til nytja
á ýmsum jurtum.
Árið 2010 var stofnað til Urtagarðsins í Nesi til
minningar um Bjarna, Björn og Hans Georg Schier-
beck landlækni. Það var vegna þeirra tímamóta að
250 ár voru þá liðin frá skipan Bjarna Pálssonar í
embætti landlæknis og 125 ár frá því Hans Georg
Schierbeck stóð að stofnun Garðyrkjufélags Ís-
lands. Samstarfsaðilar um garðinn voru upphaf-
lega Garðyrkjufélag Íslands, Embætti landlæknis,
Læknafélag Íslands, Lyfjafræðifélag Íslands, Lækn-
ingaminjasafnið, Lyfjafræðisafnið og Seltjarnarnes-
bær. Þegar Lækningaminjasafnið var lagt niður tók
Þjóðminjasafnið við sem samstarfsaðili. Urtagarður-
inn í Nesi hefur alla tíð notið stuðnings frá Lyfja-
fræðisafninu, enda hefur þar verið reglubundin
starfsemi og margir gestir fengið leiðsögn í Urta-
garðinn þaðan á starfstímanum.
Haustið 2021 var afhjúpaður minnisvarði um
Björn Jónsson lyfsala og apótekara í Urtagarðinum í
Nesi. Tímasetningin tengdist lokaprófi Björns í lyfja-
fræði frá Kaupmannahafnarháskóla í desember 1771
og að þann 18. mars 2022 voru 250 ár liðin frá skipun
hans í embætti lyfsala í Nesi. Verkið er bautasteinn
úr grágrýti sem sóttur var í Seltjarnarnesvör og Guð-
rún Indriðadóttir lyfjafræðingur sá um hönnun og
útfærslu.
Plöntusýningin í Urtagarðinum hefur þróast í
tímans rás. Fyrst var svokölluð tilgátusýning á 128
plöntum sem talið var líklegt að Björn Jónsson hefði
ræktað, út frá þekkingu þess tíma. Síðar var fléttuð
við hana sýning á klausturjurtum sem heimildir
fundust um ræktun á, við rannsóknir á klaustrum
hér á landi. Stór hluti þeirra var þegar í plöntusýn-
ingunni.1 Þriðja viðbót var byggð á sagnfræðirann-
sóknum um ræktun Björns sem byggðu bæði á rann-
sóknum í skjalasöfnum í Kaupmannahöfn og rýni á
bréfaskiptum Björns við Hannes Finnsson biskup.2
Þeim sem heimsækja garðinn í sumar gefst færi
á að sjá tvær sérlega fágætar plöntur. Annars vegar
villiepli, ræktað af fræi fengnu frá Þrándheimi sem
er eins skylt og næst komist verður því sem fannst
á Skriðuklaustri við fornleifauppgröft. Hins vegar
Vossahvönn, sem er sérstakt yrki hvannar með
þykkveggja eða jafnvel gegnheilum stilk sem gerði
hana áður fyrr eftirsóknarverða sem matjurt. Hún
er viðkvæm í ræktun en er viðhaldið í dag í Voss á
Hörðalandi í Noregi. Einnig gefst tæki-
færi til að spreyta sig á plöntugreiningu á
átta plöntum í sýningarreit. Þær eru ekki
merktar með nafni heldur er fólk hvatt
til að finna sambærilegar plöntur annars
staðar í garðinum og þar má finna nöfn-
in. Tilvalið verkefni fyrir grasafræðinga
framtíðarinnar.
Áherslur í Urtagarðinum í dag hafa
beinst að sögulegum heimildum og
tímamótum í starfi frumkvöðla sem þar
voru á ferð, en samstarf þvert á fræðisvið
skapar tækifæri til umræðu um náttúruna, vísinda-
lega vinnu og þróun þekkingar.
Það er við hæfi að beina sjónum að sögu sam-
starfs lækna og lyfjafræðinga hér á landi, nú að
loknu átaki vegna kórónaveirufaraldursins. Þróun
þekkingar hefur verið mikil en enn eru þó í notkun
lyfin Digitalis (úr Fingurbjargarblóminu), Colchicine
(úr Haustlilju) og lyf unnin úr ópíum (úr Valmúa)
sem þekkt voru fyrir 250 árum og eru öll í garðinum.
Urtagarðurinn í Nesi er mikilvæg tenging lækna við
sögulegan stað og við getum hugsað til þeirra félaga
þegar við heimsækjum Nesið og Urtagarðinn í sum-
ar.
doi 10.17992/lbl.2022.0708.698
Áherslur í Urtagarðinum í dag hafa
beinst að sögulegum heimildum og
tímamótum í starfi frumkvöðla sem
þar voru á ferð, en samstarf þvert á
fræðisvið skapar tækifæri til umræðu
um náttúruna, vísindalega vinnu og
þróun þekkingar
Lilja Sigrún Jónsdóttir
heimilislæknir,
klínískur dósent við
Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins,
í ritstjórn Læknablaðsins
lilja.sigrun.jonsdottir@heilsugaeslan.is
alvogen.is
DEXÓL
FÆST ÁN LYFSEÐILS Í NÆSTA APÓTEKI | LESIÐ FYLGISEÐILINN FYRIR NOTKUN
TIL MEÐFERÐAR VIÐ ÞURRUM OG ERTANDI HÓSTA
Dexól 3 mg/ml, mixtúra, 160 ml. Virkt efni:
Dextrómetorfan HBr einhýdrat. Ábending: Dexól er
ætlað til meðferðar við einkennum á ertandi og
þurrum hósta án uppgangs. Nauðsynlegar upp-
lýsingar fyrir notkun: Ekki má nota Dexól samhliða
MAO hemlandi þunglyndislyfjum eða í 14 daga eftir
að meðferð þeirra lýkur, ef um alvarlega öndunar-
færakvilla er að ræða eða samhliða brjóstagjöf.
Meðferð skal standa yfir í eins stuttan tíma og
mögulegt er. Lyfið getur verið ávanabindandi. Ef
hóstinn varir enn eftir 4 til 5 daga skal hafa samband
við lækni.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgi-
seðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða
lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum
um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar
um lyfið á www.serlyfjaskra.is
DEX.L.A.2022.0001.01
SAFT INNIHELDUR DEXTRÓMETORFAN MÁ NOTA FRÁ 6 ÁRA ALDRI HÓSTASTILLANDI

A4/MOTTA
TOPPHILLA
L-STANDUR
Heimildir
1. Kristjánsdóttir S, Larsson I, Åsen PA. Icelandic Medieval
Monastic Garden – Did it Exist? Scand J History 2014; 39:
560-79.
2. Guðmundsdóttir JÞ. Viðreisn garðræktar á síðari hluta 18.
aldar. Saga 2014; 52: 9-41.