Læknablaðið - 01.07.2022, Side 13
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 333
R A N N S Ó K N
eingöngu og náði hámarki í 70-79 ára aldurshópnum, eða 24,8%.
Hlutfall hjáveituhópsins var hins vegar hæst í aldurshópnum 60-
69 ára, eða 16,6%, en 72,6% af öllum hjáveituaðgerðum voru fram-
kvæmdar á sjúklingum á aldursbilinu 60-79 ára. Aldursdreifingin
var ólík á meðferðarhópunum þremur (p<0,001) þar sem víkkun-
arhópurinn var á breiðasta aldursbilinu en hjáveituhópurinn á því
þrengsta (mynd 2B).
Ekki reyndist marktækur munur á líkamsþyngdarstuðli, sögu
um háþrýsting eða hlutfalli sjúklinga með skerta nýrnastarfsemi í
meðferðarhópunum þremur (tafla I). Alls voru 52 sjúklingar í
rannsóknarhópnum í hjartabilunarlosti við þræðingu og voru 44
(84,6%) af þeim meðhöndlaðir með kransæðavíkkun. Lyfjameð-
ferðarhópurinn hafði oftar fyrri sögu um hjartadrep (34,2% á móti
23,7% í víkkunarhópi og 17,9% í hjáveituhópi, p<0,001) og fyrri
sögu um hjáveituaðgerð (36,9% á móti 14,6% í víkkunarhópnum).
Hjá þeim sem voru með annars konar frábendingu fyrir hjáveitu-
aðgerð var hlutfallið hæst í víkkunarhópnum, eða 4,6% borið
ekki notuð í rannsókninni til að halda sem mestum tölfræðilegum
styrk í samanburði hópa. Af 1905 tilfellum voru 415 (21,8%) konur
og 1490 (78,2%) karlar og fóru 1230 (64,6%) þeirra í kransæðavíkk-
un, 274 (14,4%) í kransæðahjáveituaðgerð en 401 (21,0%) fékk
einungis lyfjameðferð. Af þeim sjúklingum sem fóru í víkkun
voru 236 (19,2%) með frábendingu fyrir hjáveituaðgerð en 154
(38,4%) af lyfjameðferðarhópnum. Frábending fyrir hjáveituaðgerð
var í flestum tilfellum vegna fyrri sögu um opna hjartaaðgerð, en
hluti sjúklinga hafði þó annars konar frábendingu fyrir aðgerðinni
samkvæmt mati hjartateymis.
Í töflu I sést samanburður á bakgrunnsþáttum meðferð-
arhópanna þriggja. Meðalaldur var 67 ± 10 ár, hæstur í lyfjameð-
ferðarhópnum en lægstur í víkkunarhópnum (p<0,001). Flestir í
rannsóknarhópnum voru á aldursbilinu 60-69 ára, eða 643 (33,8%)
sjúklingar, en aldurshópurinn 70-79 ára var einnig fjölmennur
með 617 (32,4%) sjúklinga (mynd 2A). Meðferðarval breyttist með
aldri. Með hækkandi aldri fjölgaði þeim sem fengu lyfjameðferð
0
100
200
300
400
500
600
0−39 40−49 50−59 60−69 70−79 80−89 90−99
Aldur í árum
Fj
öl
di
Meðferð
PCI
CABG
Lyfjameðferð
A
0.00
0.01
0.02
0.03
0.04
30 40 50 60 70 80 90
Aldur í árum
Þé
ttn
i
Meðferð
PCI
CABG
Lyfjameðferð
B
Mynd 2. Aldur sjúklinga með kransæðasjúkdóm og sykursýki eftir því hvaða meðferð var beitt.
A: stöplarit sýnir fjölda tilfella eftir aldursflokkum. B: þéttnigraf sýnir aldursdreifingu þar sem heildarflatarmálið undir ferli hvers með-
ferðarkostar er 1.
PCI=percutaneous coronary intervention (kransæðavíkkun). CABG=coronary artery bypass grafting (kransæðahjáveituaðgerð).
75.8
2.1
22.1
73.6
7.9
18.5
46.3
29.9
23.8
55
20
25
47.1
32.4
20.6
40
43.3
16.7
44.1
40.7
15.3
0%
25%
50%
75%
100%
1 æ
ð
2 æ
ða
r
3 æ
ða
r
HS
HS +
1 æ
ð
HS +
2 æ
ða
r
HS +
3 æ
ða
r
Dreifing sjúkdóms
H
lu
tfa
ll
Meðferð
PCI
CABG
Lyfjameðferð
Mynd 3. Skipting sjúklinga með kransæðasjúkdóm og sykursýki eftir
dreifingu kransæðasjúkdóms og meðferðarvali.
Gildi á y-ás eru hlutfall. HS=höfuðstofn.
PCI=percutaneous coronary intervention (kransæðavíkkun).
CABG=coronary artery bypass grafting (kransæðahjáveituaðgerð)