Læknablaðið - 01.07.2022, Page 20
340 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
R A N N S Ó K N
Breytur í lífsgæðakvarða eru mældar á 5 bila Likert-kvarða
(0=aldrei, 1=mjög sjaldan, 2=stundum, 3=oft, 4=mjög oft). Heildar-
summa á skalanum getur verið frá 0-196 stig,21 sá sem fær 0 stig
upplifir engin neikvæð áhrif eigin munnheilsu á lífsgæði en þeir
sem hærra skora upplifa skert lífsgæði. 21
Tölfræðileg úrvinnsla
Reiknuð var lýsandi og greinandi tölfræði með forritinu IBM SPSS
Statistics, útgáfa 27.0. Reiknað var summuskor fyrir lífsgæða-
kvarðann í heild sinni og fyrir hvern undirkvarða. Meðalskor voru
borin saman milli tveggja óháðra hópa og reiknað t-próf (jafnbila-
breytur), kí-kvaðrat próf (raðbreytur) og miðað var við marktækni-
mörk p=0,05 í öllum útreikningum. Í aðhvarfsgreiningu við sam-
anburð á meðaltölum milli óháðra hópa í var leiðrétt fyrir aldri og
kyni þátttakanda. Ef gildi vantaði í spurningalistum var þeim
sleppt í útreikningum. Skýribreyta rannsóknar er klínísk tann-
heilsa þátttakenda, skráð samkvæmt OHS (fjöldi tanna og ástand
tanna, tegund tanngerva, ástand slímhúðar). Útkoma er mæld
með OHIP-49-lífsgæðakvarðanum sem mælir neikvæð áhrif
munnkvilla á félagslega, sálræna og líkamlega virkni einstak-
lingsins og lífsgæði.
Niðurstöður
Þátttakendur og bakgrunnur
Alls gáfu 82 íbúar tveggja hjúkrunarheimila (heimili A og heimili
B) kost á sér í rannsóknina, af þeim luku rúmlega 89% (N=73) báð-
um hlutum rannsóknar, sem var að láta skoða munnheilsu og
ljúka við að svara spurningalista. Fjórir hættu þátttöku (4,9%) á
meðan rannsóknin stóð yfir og 5 íbúar (6,1%) mættu ekki í klíníska
skoðun. Þátttakendur voru á aldrinum 73 til 100 ára og var meðal-
aldur þeirra 86,8 ár (± 5,7). Aldur íbúa á heimili A var örlítið lægri
Tafla I. Samanburður á bakgrunni íbúa (N=73) eftir búsetu á dvalar- og hjúkrunarheimili.
Hjúkrunarheimili
Bakgrunnur þátttakenda A (N=38) B (N=35) Samtals (N=73)
p-gildiaFjöldi (%) Fjöldi (%) Fjöldi (%)
Kyn
Karlar 13 (34,2) 15 (42,9) 28 (38,4)
Konur 25 (65,8) 20 (57,1) 45 (61,6)
Samtals 38 35 73 0,448
Aldurshópar
Yngri en 80 ára 5 (13,2) 3 (8,6) 8 (11,0)
80-89 ára 23 (60,5) 14 (40,0) 37 (50,7)
Eldri en 90 ára 10 (26,3) 18 (51,4) 28 (38,4) 0,027b
Samtals 38 35 73 0,088
Búseta°
Reykjavík 26 (70,3) 29 (82,9) 55 (76,4)
Kaupstað 9 (24,3) 4 (11,4) 13 (18,1)
Þorpi 0 (0,0) 1 (2,9) 1 (1,4)
Sveit 2 (5,4) 1 (2,9) 3 (4,2)
Samtals 37 35 72 0,338
Menntun
Barnaskóli 24 (68,6) 18 (51,4) 42 (60,0)
Gagnfræðaskóli 11 (31,4) 10 (28,6) 21 (30,0)
Tæknigreinar 0 (0,0) 7 (20,0) 7 (10,0)
Samtals 35 35 70 0,019
Hjúskaparstaða
Ógift - ókvæntur 2 (5,4) 2 (5,7) 4 (5,6)
Gift - kvæntur 2 (5,4) 2 (5,7) 4 (5,6)
Ekkja - ekkill 27 (73,0) 23 (65,7) 50 (69,4)
Fráskilin(n) 6 (16,2) 1 (2,9) 7 (9,7)
Gift – kvæntur en
maki býr annars
staðar
0 (0,0) 7 (20,0) 7 (9,7)
Samtals 37 35 72 0,028
Skýringar: aKí-kvaðrat próf. bTvíhliða marktektarpróf á hlutfallstíðni í dálkum. °Búseta fyrir flutning á hjúkrunarheimili.