Læknablaðið - 01.07.2022, Page 28
348 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
R A N N S Ó K N
kransæðasjúkdóma hjá þeim sem hafa minni menntun og tengsl
við kransæðastíflu og dauða, er ekki vitað hvort útbreiddari eða
meiri dulin æðakölkun fylgi menntunarstigi.
Markmiðið með þessari rannsókn var að kanna tengslin
milli menntunarstigs og dulins æðakölkunarsjúkdóms, metið
sem magn æðakölkunarskella í hálsslagæðum. Sambandið milli
menntunarstigs og helstu áhættuþátta var kannað og áhættuhlut-
fall (HR) þess að greinast með hjarta- eða æðasjúkdóm á 10 ára
eftirfylgnitíma var reiknað eftir menntunarstigi.
Efniviður og aðferðir
Áhættuþáttakönnun Hjartaverndar (REFINE) er lýðgrunduð lang-
sniðsrannsókn sem framkvæmd var með innköllun úr almennu
þýði Reykvíkinga 2005-2011. Þátttakendur voru 6661 einstakling-
ur á aldrinum 25-69 ára. Þátttökuhlutfall var 70% af innkölluð-
um. Útilokaðir voru 39 þátttakendur (0,6%) þar sem upplýsingar
vantaði um menntunarstig og 6 sem ekki komu til hálsæðaómun-
ar. Rannsóknarþýðið samanstóð því af 6616 einstaklingum, 3251
karli (49,1%) og 3365 konum. Að auki gáfu 334 þátttakendur ekki
samþykki fyrir notkun sjúkrahúsupplýsinga og voru því ekki
hluti af lifunargreiningu í þessari rannsókn. Hjá hverjum þátt-
takanda voru mældir áhættuþættir kransæðasjúkdóma: hæð,
þyngd, reiknaður líkamsþyngdarstuðull, sykursýki 2, LDL-kól-
esteról, regluleg hreyfing metin og ættarsaga um kransæðasjúk-
dóm og reykingavenjur, mældur blóðþrýstingur og fyrri saga um
Konur Grunnskóli Iðnmenntun Stúdentspróf Háskólapróf
n 836 814 446 1269 p-gildi
Aldur m (sf) 54 (10,4) 53 (10,0) 45 (12,1) 46 (10,4) <0,001
Líkamsþyngdarstuðull m (sf) 28,3 (5,8) 27,5 (5,4) 26,5 (5,0) 26,2 (4,9) <0,001
Líkamsþyngdarstuðull > 30 264 (31,6) 213 (26,2) 88 (19,7) 240 (18,9) <0,001
Sykursýki 48 ( 5,7) 25 ( 3,1) 9 ( 2,0) 16 ( 1,3) <0,001
LDL kólesteról (mmol/L) m (sf) 3,3 (0,97) 3,3 (0,90) 3,0 (0,95) 3,0 (0,89) <0,001
HDL kólesteról (mmol/L) m (sf) 1,59 (0,42) 1,65 (0,43) 1,62 (0,39) 1,68 (0,42) <0,001
Heildarkólesteról (mmol/L) m (sf) 5,5 (1,06) 5,4 (1,01) 5,1 (1,06) 5,1 (0,99) <0,001
Þríglýseríðar (mmol/L) miðgildi (fm*) 1,06
(0,77;
1,46)
0,94
(0,70;
1,37)
0,85
(0,65;
1,15)
0,8
(0,59;
1,12)
<0,001
Slagbilsþrýstingur mmHg m (sf) 122 (17,7) 129 (16,3) 116 (16,5) 115 (14,4) <0,001
Reglubundin hreyfing <0,001
Lítil 318 (38,0) 200 (24,6) 114 (25,6) 259 (20,4)
Miðlungs 273 (32,7) 314 (38,6) 161 (36,1) 555 (43,7)
Mikil 245 (29,3) 300 (36,9) 171 (38,3) 455 (35,9)
Háþrýstingslyf 293 (35,0) 232 (28,5) 76 (17,0) 173 (13,6) <0,001
Blóðfitulækkandi lyf 84 (10,0) 58 ( 7,1) 9 ( 2,0) 42 ( 3,3) <0,001
Aspirín 84 (10,0) 53 ( 6,5) 10 ( 2,2) 49 ( 3,9) <0,001
Reykingasaga <0,001
Aldrei reykt 242 (28,9) 286 (35,1) 207 (46,4) 688 (54,2)
Hefur reykt 330 (39,5) 323 (39,7) 148 (33,2) 434 (34,2)
Reykir 264 (31,6) 205 (25,2) 91 (20,4) 147 (11,6)
Fjölskyldusaga um kransæðasjúkdóma 367 (43,9) 352 (43,2) 142 (31,8) 449 (35,4) <0,001
Efnaskiptavilla 214 (25,6) 155 (19,0) 65 (14,6) 120 ( 9,5) <0,001
Alvarleg æðakölkunarskella 128 (15,3) 83 (10,2) 18 ( 4,0) 45 ( 3,5) <0,001
Leyfði tengingu við sjúkraskrá 791 (94,6) 767 (94,2) 413 (92,6) 1170 (92,2) 0,10
Saga um kransæðasjúkdóm eða heilaáfall 35 ( 4,4) 22 ( 2,9) 5 ( 1,2) 15 ( 1,3) <0,001
Saga um kransæðasjúkdóm 23 ( 2,9) 17 ( 2,2) 2 ( 0,5) 10 ( 0,9) <0,01
Kransæðasjúkdómur eða heilaáfall innan 10 ára 55 ( 7,0) 46 ( 6,0) 12 ( 2,9) 29 ( 2,5) <0,001
Kransæðasjúkdómur innan 10 ára 43 ( 5,4) 31 ( 4,0) 11 ( 2,7) 16 ( 1,4) <0,001
Dauðsfall innan 10 ára 36 ( 4,6) 34 ( 4,4) 3 ( 0,7) 24 ( 2,1) <0,001
Sf: staðalfrávik, m: meðaltal, *fm = fjórðungamörk
Tafla I. framhald