Læknablaðið - 01.07.2022, Qupperneq 36
356 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Erfitt að manna
Læknavaktina vegna álags
á heilsugæslulækna
Læknavaktin er í bullandi krísu vegna mönnunarvanda. Þetta segir stjórn-
arformaður hennar. Hann óttast þó ekki að ríkið taki þjónustuna yfir eins og
það gerði með 1770 þjónustusímann. Framkvæmdastjóri Heilsugæslunnar á
Kirkjusandi gagnrýnir breytta tilhögun símaráðgjafarinnar
F R É T T I R
„Við þurfum að lágmarki 80 manns til
að vaktaálag á Læknavaktinni sé bæri-
legt en höfum aðeins 46. Við fáum ekki
lækna á vakt og höfum brúað bilið í
COVID með því að fá sérnámslækna inn.
Þeir hafa bjargað okkur,“ segir Gunn-
laugur Sigurjónsson, stjórnarformaður
Læknavaktarinnar og framkvæmdastjóri
lækninga þar. Breytist ástandið ekki, fjari
undan starfseminni. Hann lýsir ástæðu
manneklunnar.
„Álagið í heilsugæslunni er botnlaust.
Læknar vinna langt fram á kvöld og kom-
ast því ekki til okkar,“ segir Gunnlaugur,
sem einnig er læknir og einn eigenda
sjálfstætt starfandi Heilsugæslunnar
Höfða.
„Heilsugæslustöðvar eru gríðarlega
undirmannaðar og það ástand mun
versna. Ég hef því verulegar áhyggjur af
Læknavaktinni en ekki að hún verði lögð
niður af ríkinu heldur vegna mönnunar-
vanda. Fólk er örþreytt og treystir sér ekki
á þessar aukavaktir,“ segir Gunnlaugur,
en ríkið tekur í haust yfir símaráðgjöfina
1770 sem vaktin hefur veitt og setur til
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Hann
er ósáttur við vinnubrögðin þar.
„Við eigum erfitt með að skilja
ákvörðunina og finnst ljótt hvernig
staðið var að þessu. Aldrei var talað við
okkur,“ segir Gunnlaugur. Málið sé ekki
fjárhagslegt heldur óttist hann að sú
mikla þekking sem safnast hefur innan
Læknavaktarinnar með þjónustusímanum
glatist.
„Verkefnið hefur sífellt stækkað. Fyrir
COVID svöruðum við 60-80 þúsund sím-
tölum á ári. Í COVID-fárinu fóru símtölin
í 300.000 á ári.“ Þau fjórfölduðu mann-
aflann í svörun til að mæta þeim stormi.
Hann hafi sérstakar áhyggjur af lands-
byggðinni en þjónustan hafi dregið úr
útköllum lækna á landsbyggðinni um 50%
með símtölunum. Ekki hafi verið spurt
um eðli símtalanna í þessum breytingum.
„Nei, heldur aðeins um fjölda þeirra,
en við teljum að það þurfi heilbrigðis-
menntun til að svara um 80-90% af þess-
um símtölum.“
Oddur Steinarsson, framkvæmdastjóri
Heilsugæslunnar á Kirkjusandi, segir að
þau sjálfstætt starfandi hafi mörg áhyggj-
ur af samráðsleysinu sem sýnt hafi verið
í þessu ferli. „Einnig því að með þessu
verður það í verkahring Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins, sem rekur 15
heilsugæslustöðvar í samkeppni við
okkur, að þjónusta viðskiptavini okkar í
gegnum síma.“
Hann segir að miðað við þessar
vendingar væri
eðlilegast að skipta
Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins upp.
„Annars vegar að hún
sinni stoðþjónustu við
allar heilsugæslustöðv-
ar og þróun þeirra. Hins
vegar að hún reki sínar
stofur.“ Hann hafi einnig,
eins og Gunnlaugur,
áhyggjur af auknu álagi á landsbyggðar-
lækna.
Oddur bendir á að sjálfstætt starfandi
heilsugæslustöðvar komi afar vel út úr
nýrri þjónustukönnun Maskínu fyrir
Sjúkratryggingar Íslands. „Þær skipa 1., 2.,
3. og 5. sæti af 19. Ég átta mig ekki á því
af hverju við erum talin lakari kostur í að
veita svona þjónustu.“
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, fram-
kvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins, segir undirbún-
ing flutningsins ganga vel. „Allt ætti að
verða klárt,“ segir hún. „Við erum með
alla þessa þjónustu nú þegar. Við svörum
um 500 símtölum og 300 í netspjalli á
Upplýsingamiðstöðinni á dag og bætum
nú næturvaktinni við. Þjónustan verður
hraðbrautin inn í heilbrigðiskerfið og með
þessum breytingum styrkjum við þá hug-
mynd.“
Gunnlaugur Sigurjónsson segist ekki óttast að þjónusta
Læknavaktarinnar verði færð til heilsugæslunnar eins
og símaráðgjöf hennar. Hún færist til heilsugæslunnar
þegar líður á haust. Mynd/gag
Oddur Steinarsson,
framkvæmdastjóri
Heilsugæslunnar á
Kirkjusandi
Þórdís, Ragnar, Sólveig og Magdalena.
Breyttar stjórnir aðildarfélaga
Þórdís Þorkelsdóttir hefur tekið við stjórnartaumunum í
Félagi almennra lækna, FAL, af Árna Johnsen. Ragnar Freyr
Ingvarsson er nýr formaður Læknafélags Reykjavíkur. Hann
tekur við af Guðmundi Erni Guðmundssyni. Með manna-
breytingunum breytist einnig stjórn LÍ: Sólveig Bjarnadóttir
kemur ný inn fyrir FAL, Magdalena Ásgeirsdóttir fyrir FSL
og svo Ragnar Freyr fyrir LR.