Læknablaðið - 01.07.2022, Síða 42
362 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
V I Ð T A L
„Ég get sagt að ég vinn styttri vinnudaga
en ég gerði fyrir 10 árum síðan. Maður
verður skilvirkari með árunum að mörgu
leyti en ég nýti enn mörg kvöld og margar
helgar,“ segir Guðmundur Jóhannsson,
sérfræðingur í lyflækningum og inn-
kirtlafræðum við Sahlgrenska-sjúkrahúsið
í Gautaborg og prófessor og aðstoðar-
deildarstjóri lyflækningadeildar Háskól-
ans í Gautaborg.
Guðmundur sest niður eftir langan
vinnudag og ræðir við Læknablaðið. Raf-
rænt. Hann hefur með elju komið ár sinni
vel fyrir borð. Vann sig upp af minni
sjúkrahúsum á stærri og kveðst hafa notið
sannmælis þrátt fyrir að vera ekki inn-
fæddur.
„Já, ég held það. Ég hef aldrei fundið
annað,“ segir hann en bætir við: „Ég segi
þó stundum að því lengra sem þú kemst
upp fjallstindinn þeim mun harðara
blæs.“ Hann brosir, er hógvær um leið og
hann lýsir því hvernig það geti þó verið
gott að þekkja mann og annan á leiðinni
upp metorðastigann.
„En á sama tíma finnst mér að ég hafi
alltaf fundið meira en minna fyrir því
að vera alltaf tekinn fyrir það sem ég er.
Horft er til þekkingarinnar sem maður
býr yfir,“ segir hann. „Ég get ekki sagt að
ég hafi fundið fyrir öðru.“
Guðmundur var lengi ritari og síðan
forseti Fagráðs vaxtarhormónarann-
sókna (Growth Hormone Research Soci-
„Það er erfitt að hafa annað hobbí en læknastarfið og rannsóknarvinnuna sem því
tengist,“ segir Guðmundur Jóhannsson innkirtlalæknir sem hefur síðustu áratugi fengið
hvert stóra verkefnið á fætur öðru í Svíþjóð þar sem hann hefur starfað síðustu 35 ár
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Heppni og samstarf við
hæfileikaríkt fólk litar
starfsferilinn
ety Council) og einn ritstjóra Evrópska
innkirtlatímaritsins (European Journal of
Endocrinology). Hann hefur setið í Europe-
an rare network, ráði Evrópusambandsins,
frá upphafi. Það miðar að því að veita
fólki með sjaldgæfa innkirtlaröskun sömu
þjónustu óháð búsetu. Svo hefur hann
fylgt fjölda sérnámsnema eftir í dokt-
orsnámi og er vísindamaður.
Yfir 300 vísindagreinar hans hafa
verið birtar í ritrýndum tímaritum. Heila-
dingulssjúkdómar, vaxtarhormón og áhrif
kortisóls eru efst á áhugasviðinu. Verkefn-
in eru mörg. Hann átti ríkan þátt í þróun
lyfsins Plenadren® sem hefur verið notað
við kortisólskorti allt frá árinu 2011. Afrek
sem bætir lífsgæði margra.
Ávísar eigin lyfi
„Afrek og afrek,“ segir hann góðlátlega
og dregur úr þætti sínum. „Segja má að
það sé heppni eða hæfileiki til að velja
sér góða samstarfsaðila. Það er það sem
gefur mest við að leysa vandamál og finna
lausnir. Samvinna er svo mikilvæg og að
vinna í hópi sem gefur og tekur. Það er
skemmtilegast í starfi og skiptir þá ekki
máli hvort maður er í rannsóknarvinnu,
að stjórna eða á klíníkinni,“ segir hann.
„Það er þó svolítið sérstakt að standa
á bak við hugmynd sem lifir. Það er
skemmtilegt. Ég var heppinn að hitta rétt
hæfileikaríkt fólk á sínu sviði. Niðurstað-
an var lyf sem virkar vel, er til um alla
Evrópu og er notað til að hjálpa sjúkling-
um – gerir gagn.“ Það sé sérstök tilfinning
að hafa síðasta áratuginn getað skrifað út
eigið lyf sem hann varði mörgum miss-
erum í að vinna að. En getur hann lýst
tilfinningunni?
„Nei það er svolítið erfitt,“ segir hann.
„Ætli það sé ekki neikvæður eiginleiki hjá
mér að þegar ég er búinn með einn hlut
tekur næsti við á einhvern hátt.“
Sænska lífið
Annir í starfi Guðmundar eru miklar og
hann viðurkennir að fjölskyldutíminn hafi
stundum verið skorinn við nögl. „Já, það
er erfitt þegar börnin eru lítil, en núna eru
engin smábörn og því auðveldara að stela
sér tíma hér og þar,“ segir Guðmundur
sem á þrjú uppkomin börn; í Malmö,
Amsterdam og á Íslandi. Lífið sé gott og
hann giftur Titti Ölmstjerna sem á sín tvö.
„Við höfum verið gift í nær 15 ár.
Hún þjálfar hunda í hæsta klassa. Það er
áhugamálið hennar og þýðir að maður
þarf að vera mikið úti, fara í gönguferðir
og verja mörgum klukkutímum í skógin-
um.“ Þá sé gott að geta stokkið úr amstri
miðborgar Gautaborgar í sveitina.
„Við erum við með lítið hús suður af
Gautaborg, fyrir utan Halmstad, sem við
erum í þegar tími gefst til. Það er algjör
andstæða við miðborgarheimilið þar sem