Læknablaðið - 01.07.2022, Blaðsíða 48
368 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
Tugir verðandi
lækna á tímamótum
„Nú birtist heill heimur nýrra möguleika og ég hvet
ykkur til að fara inn í hann með opinn huga,“ sagði
formaður Læknafélags Íslands þegar hún ávarpaði hóp
hátt í 60 lækna sem útskrifast í ár
„Ég get lofað ykkur að það er líf eftir læknadeild og hvert ykkar
getur blómstrað á mörgum mismunandi sviðum og í mismunandi
sérgreinum, lykillinn er að hella sér út í það sem maður velur að
lokum af krafti og metnaði,“ sagði Steinunn Þórðardóttir formaður
Læknafélagsins við þau sem rituðu undir Læknaeiðinn í húsakynn-
um Læknafélagsins fimmtudaginn 2. júní.
„Þið eigið sem læknar framtíðarinnar kröfu um fyrsta flokks
starfsaðstæður þar sem þekking ykkar fær að njóta sín til fulls. Þið
eigið rétt á hvíld eftir erfiðar vinnutarnir, næði á vinnustað til að
einbeita ykkur og sinna viðkvæmum málum, handleiðslu í takt við
þróun í sérnámi, tíma til að sinna vísinda- og gæðavinnu og þaki á
það álag og þá ábyrgð sem vinnuveitandi getur lagt á ykkur hverju
sinni. Fyrir þessu berst Læknafélagið af fullum krafti,“ sagði hún
þegar hún hvatti hópinn áfram.
Aftasta röð: Ágústa Björg Friðriksdóttir, Gissur Atli Sigurðarson, Jóhann Ragnarsson, María Rós Gústavsdóttir, Hlíf Samúelsdóttir, Kristín Haraldsdóttir,
Jóhann Hauksson, Guðrún Karlsdóttir, Bryndís Björk Bergþórsdóttir, Jóhann Þór Jóhannesson, Dagbjört Aðalsteinsdóttir og Eir Andradóttir.
Næst aftast frá vinstri: Auður Gautadóttir, Oddný Brattberg Gunnarsdóttir (aðeins á bakvið), Elva Kristín Valdimarsdóttir, Diljá Guðmundsdóttir,
Anna Lilja Ægisdóttir, Edda Lárusdóttir, Guðrún Svanlaug Andersen, Edda Rún, Rakel Hekla Sigurðardóttir, Daníel Hrafn Magnússon, Teitur Ari Theodórsson,
Erla Gestsdóttir, Jón Erlingur Stefánsson, Kristín Birna Grétarsdóttir, Valdís Björg Hilmarsdóttir og Ulyana Miadzvedzeva.
Næst fremst frá vinstri: Nadía Atladóttir, Stefanía Katrín Finnsdóttir, Sigríður Óladóttir, Ragna Sigurðardóttir, Berglind Gunnarsdóttir, Ragnar Pétursson,
Halldór Bjarki Ólafsson.
Fremst frá vinstri: Jóhannes Aron Andrésson, Tómas Viðar Sverrisson, Thelma Kristinsdóttir og Jón Tómas Jónsson. Mynd/gag
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Sigurður Guðmundsson fyrrum landlæknir og Steinunn Þórðardóttir
formaður LÍ.
Valdís Björg Hilmarsdóttir, Kristín Birna Grétarsdóttir, Ágústa Björg Friðriksdóttir
og Auður Gautadóttir