Læknablaðið - 01.07.2022, Qupperneq 50
370 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
Að vakna
Ari Jóhannesson
Lyflæknir
ariari@simnet.is
New Britain General Hospital, Connecticut,
apríl 1978 Kl. 03.30
Það bregst ekki. Apríl er grimmastur
mánaða, sagði frægt skáld fyrir löngu. Ég
er ekki sammála – hvað mig varðar á apríl
sér ellefu bræður og alla jafnósvífna. Fyrir
hálftíma fleygði ég mér á fletið í litlu vakt-
kompunni, dró gisið tjald fyrir atburði
kvöldsins og stillti öndunarmiðstöðina
í heilastofni á SVEFN, VINSAMLEGA
ÓNÁÐIÐ EKKI! Samt geltir símboðinn
núna. Eins og alltaf. Gjammið brýst inn
í náðarstundina, ryður draumahólfið og
rífur upp varnarlaus augnlokin. Í fyrstu
nær rumskandi vitundin aðeins utan
um lítið brot af veröldinni: myrkvað her-
bergi, viftusuð, gamalkunna velgju – og
Bruno Stankiewicz, pólskan innflytjanda
á sextugsaldri sem vinnur í Stanley-verk-
smiðjunni hér í borg. Dag hvern velta þar
af færibandi þúsundir verkfæra: hamrar,
hallamál, sagir, borar. Harkan skín af
smíðatólunum frá Stanley og við fyrstu
sýn er eins og sindrið úr stálinu hafi síast
inn í andlit Stankiewicz með árunum. En
hann var ekki beint stálsleginn þegar ég
tók á móti honum í gærkvöldi og veiddi
ævi hans upp úr gömlum sjúkraskrám og
vitnisburði nágrannakonu sem vinnur á
bráðamóttökunni.
Alla virka daga kemur hann heim úr
verksmiðjunni, afklæðist snjáðri yfirhöfn,
heilsar konu sinni og fer rakleiðis að ís-
skápnum að sækja sér dós af Miller-bjór.
Hvissið þegar hann krækir í álflipann og
opnar dósina boðar daglega helgiathöfn
síðustu 30 ára: Miller time! Eins og í sjón-
varpsauglýsingunni. Sex bjórum síðar
dottar Bruno yfir hafnaboltaleik í sjón-
varpinu, oftast sjöunda leikhluta. Hann
nær aldrei þeim níunda og síðasta. Þar til
í gærkvöldi. Þegar kaldsveitt ógleðin lagði
af stað upp meltingarveginn var staðan
jöfn og þegar blóðgusan kom var Reggie
Jackson að tryggja New York Yankees
sigurinn gegn Los Angeles Dodgers með
höggi sem sendi boltann lengst upp í
stúku og aðdáendur hans í sjöunda himin.
Bráðamóttaka, kvöldið áður, kl. 23.10
Þegar ég spyr herra Stankiewicz út í
áfengi, kveðst hann stöku sinnum bragða
það. Hann fái sér eitt til tvö skot á kránni
með félögum sínum við sérstök tækifæri.
Sem bjóðist reyndar alltof sjaldan. Þegar
hér er komið sögu í framhaldsnámi mínu
veit ég að margir í hinum vinnandi stétt-
um vestanhafs líta ekki á bjór sem áfengi.
Ég þynni því spurninguna niður í 4% og
fæ grun minn staðfestan. Stankiewicz
gefst þó lítið tóm til að endurskoða skakka
heimsmynd sína því hinn nýi sannleikur
er rétt farinn að gára yfirborðið á pólska
jafnaðargeðinu þegar hann kastar aftur
upp blóði, rétt áður en meltingarlækn-
irinn kemur í hús. Sá hefst þegar handa
og skömmu síðar blasir sjúkdómsgrein-
ingin við. Æðagúll neðst í vélinda hefur
rofnað og úr honum vætlar blóð. Ég rifja í
huganum upp glósurnar úr læknanáminu:
Aukinn þrýstingur í „portabláæð” af völd-
um skorpulifrar veldur æðagúlum í vélinda
og/eða maga. Blæðing af völdum þeirra er
algeng dánarorsök í þessum sjúklingahópi.
Sjúkdómshorfur eru slæmar en skána um-
talsvert ef viðkomandi hættir að drekka.
Ég virði herra Stankiewicz fyrir mér.
Þunna húðina með marblettum á víð og
dreif. Framsettan kvið, fullan af vökva.
Kringum þrútinn nafla hlykkjast þandar
bláæðar. Caput Medusa. Höfuð Medúsu.
Ófreskjunnar í grískri goðafræði sem
engum eirir. Í stað hárs á höfði hennar
vaxa iðandi eiturslöngur og þeim sem
horfist í augu við hana breytir hún í stein.
Grísk klassík í hálfpólskum verksmiðju-
bæ í Ameríku. En ég lít ekki undan. Nú
býst sérfræðingurinn til þess að sprauta
alkóhóli inn í æðagúlinn og freista þess
þannig að stöðva blæðinguna. Kaldhæðið,
ekki satt, segir Dr. Tom Devers, meltingar-
læknir með írskt blóð í æðum og áhuga-
maður um kráarrölt með námslæknum að
loknum vinnudegi. Skömmu síðar hefur
blæðingin stöðvast og þriðji blóðpokinn
er að tæmast. Áður en Dr. Devers yfirgef-
Stjórn Öldungadeildar
Óttar Guðmundsson formaður
Helga M. Ögmundsdóttir ritari
Sigurður Guðmundsson gjaldkeri
Friðrik Yngvarsson
Gísli Einarsson
Öldungaráð
Guðmundur Viggósson
Jóhannes M. Gunnarsson
Kristófer Þorleifsson
Margrét Georgsdóttir
Reynir Þorsteinsson
Ritstjóri vefsíðu og
síðu Öldungadeildar
í Læknablaðinu:
Helga M.
Ögmundsdóttir
Magnús Jóhannsson
Ö L D U N G A D E I L D I N