Læknablaðið - 01.07.2022, Side 52
372 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
Ö L D U N G A D E I L D I N
Ferðasaga öldunga úr Borgarfirði
Að morgni föstudagsins 3. júní lögðu 39
glaðir öldungar upp í ferð um efri byggðir
Borgarfjarðar undir leiðsögn Óttars Guð-
mundssonar, frænda Snorra Sturlusonar,
og Helgu M. Ögmundsdóttur, sem lagði
til fróðleiksmola um jarðfræði.
Fyrsti áfangastaður var Hernámssetr-
ið í Hvalfirði. Húsráðandinn, Gauji litli,
tók á móti okkur, settist á svið og sagði
sögur. Hann hefur safnað ótrúlegum
fjölda muna sem hann hefur sett upp
eftir þjóðernum. Landhelgisgæslan, fjar-
skipti og börn fá sitt pláss. Hér má sjá
ferðapassa sem fólk var skyldugt að hafa
á sér og veggspjöld Íslenskra fasista. Svo
var ástandið – stúlkurnar sáu myndar-
lega, kurteisa menn sem burstuðu í sér
tennurnar – og hvað voru óuppteknir
silkisokkar að gera í kistli ömmu hans?
Hvernig finnur maðurinn eitthvað í öllu
þessu kraðaki?
Þá lá leiðin upp Dragann og sögð
saga erfingjans sem ekki vildi láta jarða
sig í vígðri mold. Allsherjargoðinn og
skáldsystkinin fengu sína frásögn og þá
var komið að jarðfræðinni þar sem sagan
telst í milljónum ára. Við Skorradalsvatn
voru sagðar sumarbústaðasögur.
Í Reykholti skoðuðum við kirkjuna sem
var byggð utan um orgelið og Sólarljóðin í
gluggum vekja sígilda íhugun. Settumst í
Snorrastofu og veltum fyrir okkur hvernig
Snorri leit út: eins og listamaðurinn sem
málaði hann eða Fridtjof Nansen? Sigrún
Þormar leiddi ferðahópinn í heim Snorra
í Reykholti þar sem ægði saman frillum
og börnum og ódauðlegum bókmenntum.
Þá var komið að fyrsta hádegismat,
en góðar sameiginlegar máltíðir með
líflegum samræðum í góðum félagsskap
einkenndu ferðina alla. Eftir stuttan
stans við Hraunfossa (í ft.) Barnafoss (í
et.) með tilheyrandi jarðfræðilegum og
sögulegum skýringum um aumingja
börnin frá Hraunsási var komið í náttstað
á Húsafelli. Þar nutum við Giljabaðanna
með bjór og snafs fyrir kvöldmat.
Helga M. Ögmundsdóttir og Óttar Guðmundsson
Laugardagur var bjartur og fagur,
áheit á heilagan Þorlák brugðust ekki.
Ekið var um Hvítársíðuna og komið fyrst
að Gilsbakka. Þar er fremur óvenjulegt
myndefni altaristöflunnar, Kristur breytir
vatni í vín. Staðnæmst var við leiði Jóns
Helgasonar og Áfangar rifjaðir upp. Við
sungum um pabbastúf og mömmuljúf í
minningu Guðmundar Böðvarssonar og
konu hans. Á Háafelli var geitum klapp-
að alúðlega og hádegisverður í Kraumu
var úr jurtaríkinu. Tókum dálítinn
krók að Bæ í minningu Stulla frænda.
Stuttur stans við Hvítárbrú í minningu
Órækju sem var svikinn af Gissuri og
Kolbeini þrátt fyrir svardaga við flís úr
krossi Krists. Óttar grét beisklega örlög
frænda síns en Pétur Pétursson hló. Jarð-
fræðipistillinn var samtímaheimild frá 10.
öld, Hallmundarkviða. Grár jötunn skek-
ur jörðina, björg springa, strókar standa
úr þremur gígum og hraun rennur – er
kannski heimsendir í nánd? Menn farast
og fólk stynur en getur notið þess að
lauga sig í volgu vatni. Svo ræður Þór bug
á jötninum gráhærða og sendir eldinn
aftur ofan í jörðina. Hallmundur kveður
en fer fram á að menn læri kvæðið. Fjalla-
sýn var fullkomin, allir jöklar hálendisins
glenntu sig. Í Víðgelmi voru endalausir
gangar – gengum þó ekki nema hálfa
lengd – og kynjabirta.
Á sunnudagsmorgni hélt rigningin
sig enn til hlés og við gengum með Tótu
um Húsafell og listaverk Páls. Jóhanna
söng sálm eftir föður Óttars. Kaldidalur
var lokaður (skipuleggjendur einum
of bjartsýnir) en Lundarreykjadalur og
Uxahryggir sviku ekki. Snæddum nesti
frá hótel Húsafelli við mikla fjallasýn.
Pétur P. fór með rímuð heilsuheilræði
og lyfjaleiðarvísa og orðaskylmingar
við Hjálmar. Síðasti jarðfræðipistillinn
var með orðum þjóðskáldsins um fjall-
ið Skjaldbreið. Ekki fór að rigna fyrir
alvöru fyrr en næstum var komið að
Þingvöllum. Í lok ferðar voru allir glaðir
og þakklátir, ekki síst Ámunda bílstjóra
sem skilaði okkur í Hlíðasmárann um
kaffileytið.
Hópurinn sæll og glaður við kirkjuna á Húsafelli sem Halldór H. Jónsson arkitekt teiknaði eftir hugmynd Ásgríms
Jónssonar listmálara. Úr penna Halldórs komu líka til dæmis Hótel Saga, Háteigskirkja og Domus Medica. Mynd/
Jóhanna V. Þórhallsdóttir.