Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Page 97

Arkitektúr og skipulag - 01.03.1989, Page 97
REGLUR UM SNJÖMOKSTUR Á ÞJÓÐVEGUM. 1. Vegagerðin sér um allan snjómokstur á þjóðvegum, og hafa verkstjórar hennar stjórn hans á hendi. Verkstjórar greiða því ekki annan kostnað við snjómokstur en þann, sem þeir hafa stofnað til eða samþykkt. 2. Vegagerðin greiðir helming kostnaðar við snjómokstur á öllum þjóðvegum þegar beðið hefur verið um hann og greiðsla hins helmnings kostnaðarins verið tryggður, enda telji verkstjóri moksturinn koma fleiri vegfarendum til góða en þeim, sem um moksturinn biður. Óskir sveitarfélaga um helmingamokstur gangi að jafnaði á undan óskum einstaklinga. 3. Vegagerðin greiðir allan kostnað við mokstur nokkurra mikilvægra samgönguleiða, þó ekki nema ákveðinn fjölda daga í viku eða mánuði. Sé óskað eftir meiri mokstri á þeim vegum skal kostnaði við hann skipt skv. 2. grein. Hver verkstjóri fær skrá yfir þá vegi á hans svæði, sem þessi grein nær til. 4. Vegagerðin greiðir fyrsta mokstur á haustin (október, nóvember), svo fyrstu snjóar stöðvi ekki umferð og ökumönnum gefist kostur á að ljúka ferð sinni. Vegagerðin greiðir einnig síðasta mokstur á vorin (apríl, maí), nema um hann hafi verið beðið áður en verkstjóri telur tímabært. 5. Vegaeftirlitið í Reykjavík hefir með hendi samræmingu snjómoksturs um allt land. 6. Verkstjórum ber að varast að moka, þegar veður er óhagstætt eins og í snjókomu eða skafrenningi eða þegar slík veður eru fyrirsjáanleg. Ennfremur skulu þeir fækka mokstrardögum eða leggja mokstur niður um lengri eða skemmri tíma í samráði við vegaeftirlitið, þegar kostnaður við hann er orðin óhóflegur. 7. Ef vegir eru færir þann dag eða þá daga, sem moka á, verður ekki mokað aðra daga í stað þeirra. Sé ekki unnt vegna veðurs að opna á áætlunardegi, má opna næsta færan dag á eftir. 8- Þegar vegur er opnaður, skal stefnt að því,að hann sé opin til umferðar eins fljótt og unnt er eftir kl.8.°° að morgni. Lokist vegur eftir kl. 19.°°,verður hann ekki opnaður aftur nema í undantekningartilfellum. 9. Ekki er heimilt að opna sama veg oftar en tvisvar í viku, sé hann opnaður jafnoft eða sjaldnar samkv. snjómokstursreglum. ' 0. Á mjög snjóþungum vetrum geta sveitarfélög, sem verða fyrir verulegum útgjöldum vegna snjómoksturs sótt um endurgreiðslu til Vegagerðar ríkisins á hluta þess kostnaðar, sem, þeim ber að greiða samkvæmt 2. gr. Endurgreiðsla skal þó aldrei nema hærri fjárhæð en helmingi af hluta sveitarfélaga. *• Mánaðarlega skal senda til vegaeftirlitsins í Reykjavík upplýsingar um kostnað við snjómokstur á einstökum vegarköflum og skal haft samráð við vegaeftirlitið um það. Breiðdalsheiði sem styttir leiðina milli Héraðs og Suðurlands um 58 km. A vetrum eru famar aðrar leiðir sem auðveldara er að halda opnum. Fyrir fáum árum lokaðist vegurinn yfir Þorskafjarðarheiðina á sama hátt yfir vetrarmánuðina og var oft ekki opnaður aftur fyrr en í júnímánuði. Þá var ekki akfært til ísafjarðar stóran hluta ársins, en nú er kominn nýr vegur um Steingrímsfjarðarheiði og unnt hefur verið að opna þann veg samkvæmt „snjómokstursreglum” einu sinni til tvisvar í viku allan veturinn. I mörgum tilfellum getur umferð og þörf vegfarenda til að komast á tnilli staða gefið tilefni til tíðari opnunar en nú er. Þar má nefna Breiðadals- og Botnsheiðar sem tengja saman Flateyri, Suðureyri og Samþykkt af Samgönguráðherra, desember 1985. ísafjörð, Fjarðarheiði sem tengir Seyðisfjörð við Hérað. Oddsskarð sem tengir Norðfjörð og Neskaupstað við Suðurfirði o.fl. A öllum þessum leiðum er hins vegar um erfiða og snjóþunga fjallvegi að fara og þá ræður kostnaður við opnun oft meiru um tíðni en þörf. Af framantöldum stöðum nýtur Seyðisfjörður þeirrar sérstöðu að þar er ekki flugvöllur. Á mynd er sýnt hvernig umferð hefur breyst á undanfömum árum á Biskupstungnabraut við Sog sem er dæmi um landsbyggðarveg sem að jafnaði er opinn til umferðar allt árið. Sama mynd fyrir Hafnarfjarðarveg sýnir hins vegar að lítill munu er á vetrar- og sumarumferð þegar komið er í þéttbýli.»» ARKITEKTUR OG SKIPULAG 95
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.